Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Side 2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
DV
Mexíkóskur listamaður gaf Listahátíð Hafnarflarðar hf. feiknastórt útihstaverk:
Bærinn greiddi Listahátíð
3 milljónir fyrir verkið
„Mexíkóski listamaðurinn gaf
Listahátíð Hafnarfjaröar hf., sem
stofnuð var um listahátíðina, þetta
Ustaverk. Bærinn keypti síðan verk-
ið af félaginu á sléttar 3 milljónir
króna. Verkið stóð við Hafnarborg í
fyrrasumar en síðan taldi enginn sér
skylt að sjá um það og klára málið,
það er aö koma því fyrir í högg-
myndagarðinum á Víðistaðatúninu.
Þá var verkinu komið fyrir á vökt-
uðu geymslusvæði áhaldahússins og
er þar enn,“ sagði Gunnar Rafn Sig-
urbjörnsson, bæjarritari í Hafnar-
firði, við DV.
Umrætt listaverk er eftir mexí-
kóska listamanninn Alberto Guti-
errez Chong. Verkið er nú geymt á
geymslusvæði bæjarins í Kapellu-
hrauni. Starfsmaður geymslusvæð-
isins leit reyndar ekki á verkið sem
listaverk, notaði það sem landamerki
fyrir Hafnarfjarðarbæ og hengdi þar
til gert skilti á það.
Samkvæmt heimildum DV tengjast
kaup listaverksins um 6 milljóna
króna hallarekstri sem varð á Lista-
hátíð Hafnarfjarðar, er í raun viðbót-
arfjárveiting frá bænum. Bæjarsjóð-
ur Hafnarfjaröar veitti 20 milljóna
króna styrk til hátíðarinnar í fyrra
í samræmi við fjárhagsáætlun sem
þá lá fyrir.
Reikningar hátíðarinnar hafa verið
í endurskoðun og hefur nýr meiri-
hluti bæjarstjórnar vakið athygli á
greiðslum vegna listaverksins.
Stjórn Listahátíðar Hafnarfjarðar og
endurskoðandi ársreikninga munu
hittast hjá Magnúsi Jóni Ámasyni
bæjarstjóra í dag og fjalla um reikn-
ingana. Verður svara óskað hjá Ar-
nóri Benónýssyni, fjármálastjóra
hátíðarinnar, í því sambandi.
Guðmundur Ami Stefánsson, fyrr-
um bæjarstjóri, réð Arnór sem fjár-
málastjóra listahátíðarinnar. í samn-
ingi milh hans og bæjarins, sem und-
irritaður er af bæjarritara, segir:
„Arnór tekur áð sér listræna ráð-
gjöf og eftirlit með listahátíð í Hafn-
arfirði fyrir Hafnarfjarðarbæ. Einnig
skal hann hafa umsjón meö fjármál-
um og fylgja starfinu efdr þar til til-
tekt og uppgjör hefur farið fram.
Amór starfar með stjóm Listahátíð-
Óttastaðbörn
séumeð
sprengiefni
Sprengiefnið sem stolið var úr
gámi sem stendur á vinnusvæöi
viö Korpúlfsstaöi um helgina er
enn ófundið. Um er aö ræða að
allt að 80 túbur af sprengiefni og
200 hvellettur, auk sprengihnalls.
Sjónarvottar telja slg hafa séö
börn að leik á vinnusvæðinu um
það leyti sem taliö er að brotist
hafi verið inn og útilokar Rann-
sóknarlögregla rikisins ekki aö
börnin hafi komist yfir sprengi-
efniö. Hvetur hún foreldra i Graf-
arvogi til að grennslast fyrir um
það hvort börn þeirra geti haft
hluta af þýfinu undir höndum.
Stuttar fréttir
Fætri fiskeldisstöðvar
Fiskeldisstöðvum hér á landi
hefur á undanfómiun fjórum
ámm fækkaö um 29%, eða úr 105
árið 1990 í 75 á síðasta ári. Heild-
arverömæti seldra afurða í fisk-
eldi var 970 milljónir í fyrra.
Aftaka á þjóðveginum
Varaoddvitinn í Kolbeinsstaða-
hreppi drap nýverið 2 tófur með
því aö blinda þær meö ökuljósum
og aka síðan yfir þær. Morgun-
blaðið greindi ffá þessu.
Norski þorskurinn bestur
Norskur þorskur er betri til
endurvinnslu en sá íslenski og
rússneski. Sjónvarpið hafði þetta
eftir kanadiskum fiskverkanda.
Lánsféð uppurið
Lánsfé Húsnæðisstofnunar í
húsbréfakerfinu er nær uppumö.
Talið er að 2 til 3 milijarða vanti
til að sinna lánsfjáreftirspurninni
út áriö. Mbl, greindi frá þessu.
Rannsóknápiilunni
Tugir íslenskra kvenna taka nú
þátt í rannsókn á nýrri tegund
getnaöarvamarpillu á Landspíta-
lanum. Könnuð er mjólk kvenna
sem hafa böm á brjósti. Sjón-
varpiö skýrði frá þessu.
Borgarstjórinn í Reykjavík seg-
ir það óeðlilega afgreiöslu hjá
fyrrverandi borgarráði að veita
10 milljónir króna til smíða vík-
ingaskips tveimur dögum eftir
sveifarstjórnarkosningamar.
Sjónvarpið greindi ffá þessu.
Friðrik G. Friðriksson, varaformaður Félags dagvörukaupmanna, Þórhallur Steingrímsson formaður og Guðni
Þorgeirsson hjá Kaupmannasamtökunum dreifa hér gögnum á blaðamannafundi sem haldinn var til að kynna
efnisatriði kæru sem félagið sendi Samkeppnisstofnun. DV-mynd GVA
Ákveönar vörutegundir hjá rnnflytjendum og framleiðendum:
Allt að 70 prósent
dýrari en í Bónusi
- samkvæmt könnun Félags dagvörukaupmanna
Ásamt erindi til Samkeppnisstofn-
unar lagði Félag dagvömkaupmanna
fram niðurstöður verðkönnunar á 12
matvörutegundum hjá 10 innflytj-
endum og framleiðendum sem sýna
að sumar vörur eru allt að 70% dýr-
ari hjá innflytjendum og/eða fram-
leiðendum viðkomandi vöru heldur
en í Bónus-verslununum.
Tilefni könnunarinnar er grunur
félagsmanna um að í viðskiptum
þeirra við heildverslanir og iðnfyrir-
tæki njóti þeir viðskiptakjara sem
séu í „hróplegu ósamræmi" við þau
kjör sem þessar sömu heildverslanir
og iðnfvrirtæki veita Bónusi og dreif-
ingarfyrirtæki þess og Hagkaups,
þ.e. Baugi hf.
Félag dagvörukaupmanna efndi til
blaðamannafundar í gær þar sem
sjónarmið þeirra voru kynnt. Þar
kom fram hjá lögmanni félagsins,
Sigurði G. Guðjónssyni, að þetta
væri ekki spurning um hvort verið
væri að fara fram á eitt heildsöluverð
heldur að eðlileg samkeppni ríkti í
viöskiptum kaupmanna og heildsala.
í því skyni var Samkeppnisstofnun
sent erindi eins og DV greindi frá
fyrir helgi. Þar er óskað eftir úr-
skurði um hvort sú meinta mismun-
um innflytjenda og framleiðenda á
milli kaupmanna standist ný sam-
keppnislög.
Friörik G. Friöriksson, varafor-
maður Félags dagvörukaupmanna
og formaður verðlagsnefndar félags-
ins, hefur einkum unnið að gagna-
söfnun í þessu máli. Hann sagði á
blaðamannafundinum að það yrði
ekki upplýst hvaöa 10 fyrirtæki væru
í könnun félagsins á meðan Sam-
keppnisstofnun væri að afla gagna í
málinu. Þetta eru þó allt stór fyrir-
tæki.
Eins og áöur sagði kom fram allt
að 70% verðmunur hjá innflytjend-
um og framleiðendum annars vegar
og Bónusi hins vegar. Að sögn Frið-
riks má ætla að meðaltalsmismunur-
inn sé á bihnu 25 til 40%. Eingöngu
vorú kannaðar algengar neysluvör-
ur með stöðugu verði yfir árið en þó
ekki mjólkurvörur og sætindi.
Samkvæmt þessum tölum er þaö
hagkvæmt fyrir kaupmanninn á
horninu að kaupa þessar vörur hjá
Bónusi en ekki hjá heildsalanum.
Segja forráðamenn Félags dagvöru-
kaupmanna mörg dæmi um þetta.
En þeir vilja fá niðurstöðu hjá Sam-
keppnisstofnun sem fyrst.
ar í Hafnarfirði að framkvæmd há-
tíðarinnar en í nánu samráði við
bæjarritara og bæjarsljóra. Verk
þetta skal Arnór vinna á tímabilinu
15. janúar til 31. júlí 1993. Hafnar-
fiarðarbær greiðir Arnóri kr.
1.300.000 fyrir þetta verk.“
Samkvæmt heimildum DV var
þessi samningur gerður án vitundar
stjórnar Listahátíðar Hafnarfiarðar.
Hefur stjórnin því fyrirvara á undir-
ritun reikninga hátíðarinnar.
SverrirÓlafsson:
Peningamálin
ekki í höndum
stjórnar
„Stjórn Listahátíðar Hafnar-
fiarðar hf. hafði eingöngu faglega
og listræna ráögjöf undir hönd-
um auk verksfiórnarinnar. Pen-
íngamál listahátíðarinnar komu
aldrei inn á borð stjórnarinnar.
Þar af leiðandi vitum við ekki
hvemig fiárhagsdæmið lítur út.
Fjármálastjórnin var algerlega
mál Amórs Benónýssonar, sem
til þess var ráðinn, bæjarstjóra
og bæjarritara,“ sagði Sverrir
Ólafsson myndhöggvari sem sæti
átti í sfiórn Listahátiðar Hafnar-
fiarðar hf. ásamt þeim Erni Ósk-
arssyni og Gunnari Gunnarssyni.
Hólmavík og Drangsnes:
Undirbúasam-
einingu þriggja
fyrirtækja
„Við erum að vinna að samein-
ingu við Hólmadrang hf. Þaö er
búið að samþykkja innan stjórna
fyrirtækjanna að vinna að því að
sameining geti orðið," segir Jón
Alfreðsson, kaupfélagssfjóri á
Hólmavík.
Jón er þarna að vitna til fyrir-
hugaðrar sameiningar á fisk-
vinnslu á Ðrangsnesi og rækju-
vinnslu á Hólmavík auk
Hólmadrangs hf. sem rekur sam-
nefndan frystitogara.
Samanlögð velta þessara fyrir-
tækja var um 400 milljónir á síð-
asta ári og voru þau öh rekin með
tapi.
Norðurlandaráð:
Björk tilnefnd
til tónlistar-
verðlauna
Björk Guðmundsdóttir söng-
kona hefur verið tilnefnd til tón-
listarverðlauna Noröurlanda-
ráðs 1995 en þau verða afhent á
þingi ráðsins í Reykjavík í febrú-
arlok. Auk Bjarkar er Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari til-
nefndur af hálfu íslands.
Tónlistarverðlaunin hafa verið
veitt frá 1965. Hafa tveir íslend-
ingar unniö til þeirra, Ath Heimir
Sveinsson 1976 og Hafliði Hall-
grímsson 1986.
4
I