Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Hópurinn saman kominn í Hraunsrétt i Aðaldal.
Hestaferð yfir Sprengisand:
Ævintýraf erð í al-
gjörri eyðimörk
Jóhanna S. Sigþórsdóttir, DV, Laugum:
„Ferðin hefur gengiö mjög vel og
það eru allir afskaplega ánægðir. Við
vorum tvo daga í algjörri eyðimörk,
meðan við riðum yfir sandinn, en
fólkinu fannst þetta mikið ævin-
týri,“ sagði Bjarni Páll Vilhjálmsson,
fararstjóri hjá ishestum, þegar
blaðamaður hitti hann með hóp
hestafólks sem riðið hafði yfir
Sprengisand.
Þetta er fyrsti skipulagði hópurinn
sem fer á vegum Ishesta þessa leiö
en ferðin tekur samtals níu daga.
Lagt var af stað frá Saltvík í S.-Þing.
og komiö í Fossnes í Gnúpverja-
hreppi. Þar var skipt um hóp og hald-
ið sömu leið til baka. Ferðamennirn-
ir sem tóku þátt í þessari fyrstu ferö
voru frá ýmsum löndum, Þýska-
landi, Ítalíu, Frakklandi, Sviss, Bret-
landi, Belgíu og svo aö sjálfsögðu
hérlendir hestamenn. Dagleiðirnar
voru frá 30 og upp í 50 kílómetrar.
„Við höfum verið fremur heppin
með veður," sagöi Bjarni Páll „en þó
lentum við í stórrigningu á leiðinni
noröur yfir. Það var ákveðið að fara
meö hópinn í hótel Kiðagil um kvöld-
ið og gista þar. Þar fengum við frá-
bæran viðurgjörning og ekki spillti
fyrir að við lentum í tööugjöldum.
Þetta hefur verið alveg frábær ferð í
alla staði.“
Það sáust engin þreytumerki, hvorki á mönnum né hestum, þótt níu daga
ferö væri senn að baki. DV-myndirJSS
________________________________DV
Ofbeldismál 1 Reykjavík um helgina:
Ráðist á 3 konur
og einni nauðgað
- grunur leikur á aö einnig hafi verið reynt aö nauöga hinum
Ein nauðgun og önnur tilraun til
nauðgunar var kærð til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins um helgina. Þá
hafði lögreglan í Reykjavík afskipti
af, að því er virðist, enn annarri
nauögunartilraun aðfaranótt sunnu-
dags.
Nauðgunin var kærð til RLR á
sunnudagsmorgun. Stúlka, sem er
19 ára, kærði 26 ára karlmann til lög-
reglu fyrir að hafa nauðgaö sér í
húsi í Breiðholti þá um nóttina.
Gleðskapur hafði veriö í húsinu og
átti atvikið sér stað þegar stúlkan var
sofnuð. Maðurinn lagðist við hlið
stúlkunnar þar sem hún var sofandi
og heldur hún því fram að hún hafi
vaknaði við það að maðurinn var að
athafna sig ofan á henni. Maðurinn
var kallaður til yfirheyrslu hjá RLR
í gær og fóru yfirheyrslur þar fram.
Ekki þótti ástæða til aö óska gæslu-
varöhaldsúrskurðar yfir manninum.
Þá var tilraun til nauðgunar eöa
árás á konu á Snorrabraut kærð til
rannsóknarlögreglu. Atvikiö átti sér
stað aðfaranótt laugardags. Réðst
maðurinn aftan að konunni og skellti
henni í götuna og reif utan af henni
fötin. Konan streittist á móti og kall-
aði á hjálp. Þá hljóp maðurinn á
brott. Henni tókst ekki að gefa grein-
argóða lýsingu á manninum og geng-
ur hann enn laus.
Þriðja atvikið átti sér stað aðfara-
nótt sunnudags á torgi á bak við
Kirkjustræti. Þar átti í hlut tvítug
stúlka og maður sem þekkti til henn-
ar. Hafði honum, að sögn sjónar-
votta, tekist aö rífa fot hennar og
gerði sig líklegan til að koma fram
vilja sínum. Heyrðu vegfarendur
hróp stúlkunnar og komu henni til
hjálpar. Héldu þeir árásarmanninum
þar til lögregla kom á vettvang. Hann
gisti fangageymslur um nóttina en
formleg kæra hafði ekki borist RLR
í gær.
Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins:
Atgangurinn f Guðmundi
veikir hreyf inguna
- ekkert veriö ákveðiö um komandi samninga
„Ég óttast það verulega að þessi
ummæli og atgangurinn í Guð-
mundi J. Guömundssyni veiki
verkalýðshreyfmguna. Það er mjög
slæmt þegar formaður stórs félags
eins og Dagsbrúnar, sem er virt
verkalýðsfélag og þýðingarmikið í
okkar keðju, er með allskonar
íjölmiðlayfirlýsingar sem vara-
formaður þess dregur svo til baka
daginn eftir. Það er alltaf slæmt
þegar forystumaður, sem er eitt-
hvað hlustað á og tekið eftir, skuli
koma fram með þessum hætti. Og
alveg sérstaklega þegar hann gerir
það áður en í raun er nokkuð farið
að ræöa það innan hreyfingarinnar
með hvaða hætti staðið verði aö
kjarasamningum að þessu sinni,“
sagði Benedikt Davíðsson, forseti
ASÍ, þegar borin voru undir hann
ummæh Guðmundar J. Guð-
mundssonar um forystumenn ASÍ
og að Dagsbrún verði ekki meö í
samfloti ASÍ-félaga í næstu kjara-
samningum.
„Ég vil benda á að það hefur ver-
ið með ýmsum hætti hvernig staðið
hefur verið að kjarasamningum
undanfarin ár. Stundum hafa félög-
in eða samböndin byrjað hvert fyr-
ir sig í samningagerð en síðan kom-
ið saman 1 samflot. Stundum hefur
verið samflot frá upphafi. Það er
ekki hægt að vinna þessa hluti öðru
vísi en að menn hagi sér eftir aö-
stæðum hverju sinni. Eins og Guð-
mundur J. segir í upphafi sinnar
baráttusögu, sem hann kallar svo,
segir hann: „í kjarasamningum er
ekki hægt að hafa neina eina aðferð
eða eina tilhögun á öllum viðræð-
um.“ Þetta er grundvallaratriði
sem Guðmundur hefur hitt á að
segja rétt í bók sinni,“ sagði Bene-
dikt.
Hann sagði að eins og komið hefði
fram í umræðum ýmissa verka-
lýðsfélaga og sambanda, bæði við
gerð síðustu kjarasamninga og
raunar við samningagerðina þar
áður, þá væri orðið mjög brýnt fyr-
ir hvert félag fyrir sig að komast
að samningaborðinu til að fara í
gegnum sérmál félaganna.
„Þetta á allt eftir að ræöa og eng-
ar ákvarðanir hafa veriö teknar
ennþá um eitt eða neitt varðandi
komandi kjarasamninga. Þetta er
allt á byrjunarstigi," sagði Bene-
dikt Davíösson.
Á valdi örlaganna
Þjóðleikhúsið hefur haft á prjónun-
um að setja upp óperu eftir Verdi.
Hún heitir Vald örlaganna og þykir
gott verk og hentugt til sýningar.
Leikhúsið vildi gera þetta með stæl,
enda langt síðan ópera hefur verið
sett á svið í Þjóðleikhúsinu. Varð
því að ráði að fá Kristján Jóhanns-
son tenórsöngvara til þátttöku,
enda búinn að gera garöinn frægan
erlendis.
Tónlistarunnendur tóku þessum
fréttum fagnandi og forstjórar í vel
megandi atvinnufyrirtækjum buð-
ust strax til að taka þátt í kostnaði
vegna komu Kristjáns og æfingar
hófust og spenningur í lofti. Kristj-
án var mættur á svæðiö og íslend-
ingar höfðu loksins heimt tenór-
hetjuna sína heim.
En ekki er allt sem sýxúst.
Músíkantar og aðrir meðaljónar í
menningarlífinu voru ekki jafn
hrifnir. Það spurðist fljótt að Kristj-
án fengi betri laun en aðrir ogfjöðr-
in flaug og áður en varði var full-
yrt að Kristján fengi átta hundruð
þúsund krónur fyrir hverja sýn-
ingu! Sagan komst í fiölmiðlana og
nú tóku hljóöfæraleikarar til sinna
ráða. Þeir heimtuðu kauphækkun
eins og Kristján. Kórinn hótaði líka
öllu Ulu og leikaramir voru með
kurr og spurðu: hvað með okkur?
Svo ekki sé nú talað um alla hina
einsöngvarana sem heyrðu engan
mun á sér og Krisfiáni og töldu sig
órétti beitta.
Allt þetta hð safnaðist saman og
mótmælti. Þaö var staðráðið í að
koma í veg fyrir að Kristján fengi
að syngja fyrir meiri pening en það
sjálft. Það var eiginlega staðráðið í
því að koma í veg fyrir að Kristján
syngi. Kristján Jóhannsson getur
sungið í útlöndum fyrir þá peninga
sem honum sýnist, en hér heima
eru allir jafnir og enginn betri en
annar og sumir segja jafnvel að
Kristján syngi ekki nærri eins vel
og hinir. Þetta er barasta plat með
Kristján. Hann er Garðar Hólm og
svoleiöis mistök henda ekki aftur
ef músíkantar fá að ráða.
Hljófærarleikaramir standa
saman sem einn maöur. Þeir neita
að spila undir þegar Krisfián syng-
ur fyrir meira kaup en þeir fá. Og
almenningur tekur undir og spyr í
forundran: hvemig má það vera að
einn maöur geti fengið átta hundr- 5
uö þúsund krónur fyrir að standa ■
á sendunni í Þjóðleikhúsinu og
syngja aríur eftir Verdi? Og hver
borgar spyr þessi sami almenning-
ur. Ekki ætlum við aö borga, ekki
ætlum við að láta Kristján Jó-
hannsson komast upp með það aö
féfletta okkur.
í stuttu máli sagt: íslendingar
hafa gert allt sem í þeirra valdi
stendur til að hrinda þessum tenór-
söngvara af höndum sér. Hann má
sosum syngja fyrir ekki neitt, enda
er hann ekki of góður til þess, ís-
lenskur sem hann er. En ef honum
dettur í hug aö fá himinháa
greiðslu fyrir að syngja fyrir landa
sína þá má hann eiga sig. Þá höfum
við ekkert gott um hann að segja.
Er hann eitthvað betri heldur en
hinir? Hafa aörir söngvarar fengið
að spreyta sig í útlenskum óperu-
húsum eins og Kristján og hver
segir aö þeir geti ekki sungiö alveg
eins vel og hann ef þeir fengju tæki-
færið? Krisfián Jóhannsson er svo
sannarlega á valdi örlaga sinna
þegar hann uppgötvar að það kost-
ar sitt að vera Islendingur. Ef hann
hefur haldið að hann komist upp
með það að vera íslendingur og
syngja betur en aðrir íslendingar
þá er það misskilningur. Hér geng-
ur nefnilega maður undir manns
hönd í að Scmnfæra sjálfa sig og
aðra um að Kristján eigi ekkert
meira eða betra sktlið en hver ann-
ar hljóðfæraleikari eða kórsöngv-
ari þegar kemur að því að troða
upp.
Verdi og Þjóðleikhúsið og Kristj-
án Jóhannsson eru á valdi þeirra
örlaga að íslenskt músíklíf vill ekki
söngvara sem skara fram úr. Vei
þeim manni sem ætlast til aö fá
borgað meira heldur en aðrir. Vei
þeim atvinnufyrirtækjum sem
voga sér að leggja pening í kaup
handa Krisfiáni en neita að borga.
öðrum. Vei því Þjóðleikhúsráði
sem lætur sér detta í hug aö það
komist upp með aö fá Krisfián til
aö syngja rullu sem alhr aðrir geta
sungið alveg eins vel.
Þetta er ekki spurning um að fá
Kristján Jóhannsson til að syngja.
Þetta er spurning um jafnrétti,
sanngimi og gott kaup handa öll-
um þeim hinum sem eru á valdi
þeirra örlaga að stööva söng Krisfi-
áns.
Dagfari