Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
5
Fréttir
Ríkisábyrgðasjóður ábyrgðist rúman miUjarð til smíði fjögurra togara 1987:
Talið að um 700millj-
ónir króna séu tapaðar
- sáralitiðhefurfengistuppívextiogafborganir
„í útboðinu var tekið fram að skip-
unum fylgdi kvóti sem nam meðalk-
vóta minni togara af bolfiski, svo og
ótakmarkaður réttur til rækjuveiða.
Þetta gekk ekki eftir og það var
reiknað út að til að þetta standi þurf-
um við 500 þorskígildi í viðbót. Það
hafa verið haldnir fundir um máhð
en engin niðurstaða fengist. Það
verður að finna á þessu máli lausn,"
segir Kári Snorrason, útgerðarmað-
ur Nökkva HU sem er eitt svokall-
aðra raðsmíðaskipa.
Ríkisábyrgðasjóður ábyrgðist árið
1987 rúman milljarð á núvirði til
smíða fjögurra togara, svonefndra
raðsmíðaskipa. Lán til smíðanna
nam um 75 prósentum af smíðaverði
skipanna. Þessi skip voru á sínum
tíma smíðuð samkvæmt póhtískri
ákvörðun tíl þess að skapa íslenskum
skipasmíðaiðnaði verkefni. Tvö skip-
anna voru smíðuð á Akureyri, eitt á
Akranesi og eitt í Garðabæ.
Skipin hafa síðan flest verið í fuh-
um rekstri og gert það gott, það hefur
þó ekki nægt til þess að lánardrottn-
ar fengju sitt th baka því hvorki vext-
ir né afborganir hafa verið reiddar
af hendi. Tap skattborgaranna vegna
þessa „ævintýris" er, ef reiknað er
með því að afskrifa megi vexti af
meirihluta lánanna, rúmar 700 mhlj-
ónir króna.
Það sem kannski er einkennilegast
við málið er þaö að svo viröist sem
einu sinni í mánuði öh þessi ár hafi
sjóður á vegum ríkisins endurgreitt
útgerðum skipanna samviskusam-
lega þau 7 prósent sem lögum sam-
kvæmt eru dregin af aflaverðmæti
skipanna th að standa straum af
skuldbindingum. Þarna er um að
ræða Stofnfjársjóð fiskiskipa sem
fær þetta hlutfall af tekjum ahra
fiskiskipa.
Ríkið ábyrgist 1100 milljónir
Skipin sem eiga í hlut eru Jöfur ÍS,
Oddeyrin EA, Gissur ÁR og Nökkvi
HU. Samkvæmt veðbókarvottorði á
Ríkisábyrgðasjóður fyrsta veðrétt í
skipunum. Lánin sem á þeim hvíla
eru tvískipt. Annars vegar eru 3
milljónir 250 þúsund dollarar og hins
vegar 750 þúsund dollarar eða sam-
anlagt 4 mhljónir dollara. Einhveijar
útgerðir hafa greitt af lægri upphæð-
inni en látið stærra lánið óhreyft.
Samtals er skuldin þar sem ekkert
hefur verið greitt að upphæð 4 millj-
ónir dollara eða 272 mihjónir ís-
lenskra króna eða samanlagt til þess-
ara flögurra skipa tæpar 1100 millj-
ónir.
Sigurgeir Jónsson, forstjóri Lána-
sýslu ríkisins sem hefur meö Ríkis-
ábyrgðasjóð að gera, sagði máliö vera
raunasögu frá upphafi. Hann segir
að Lánasýsla ríkisins hafi tekið við
sjóðnum í febrúar sl. en áður var
hann í umsjá Seðlabankans.
„Þaö voru lagatæknhegir vankant-
ar á að hægt væri að ganga að skip-
unum með uppboði. Nú er það komið
í lag og fyrsti veðrétturinn tryggður.
Við eigum í samningum við útgerð-
irnar og ég er aö vona að það sjái
fyrir endann á því og samkomulag
náist m.a. um að þeir greiði afnota-
gjald fyrir þann tíma sem liðinn er,“
segir Sigurgeir.
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
á Laugardalsvelli 7. september kl. 20:00
Þeir bestu í
markakóngsþrautum
KSÍ og Coca-Cola sýna
listir sínar
Heimsmeistarinn
í Jó-Jó er mættur til
landsins og mun halda
sína fyrstu sýningu í
hálfleik
Tryggið ykkur miða í tíma og verið þátttakendur í stórviðburði ársins