Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
7
x>v Fréttír
Þorskveið-
arnar fara ró-
lega af stað
Engir togarar eru á Halamiöum,
samkvæmt upplýsingum frá Loft-
skeytastöðinni á ísaflröi. Svo virðist
sem menn ætli aö spara sér þorskinn
þrátt fyrir endumýjaðan kvóta á
nýju fiskveiðiári.
Mjög góð þorskveiði hefur verið á
Vestfjarðamiðum hjá þeim sem kom-
ið hafa þar við en endurteknar kvóta-
skerðingar hafa leitt til þess að skip-
in forðast þorskinn.
Loðnanyfir200
þúsundtonn
Loðnuaflinn á sumar- og haust-
vertíð er kominn yfir 200 þúsund
tonn og var nánar tiltekið samkvæmt
upplýsingum Samtaka fiskvinnslu-
stöðva í gær 202.904 tonn.
í fyrrinótt var tilkynnt um rúmlega
4 þúsund tonn. Sem fyrr hefur lang-
mest borist af loðnu til Siglufiarðar
eða 49.577 tonn, til Seyðisfiarðar
20.926 tonn og til Raufarhafnar 20.033
tonn.
Mývatnssveit:
Deilt um sam-
einingu skóla
„Það á eftir að koma í ljós hvort
eitthvað gerist í þessu máli annað en
að börnin fari í skólann í Reykja-
hlíð,“ segir Eyþór Pétursson, einn
íbúanna við sunnanvert Mývatn sem
hafa harðlega mótmælt því að börn
þaðan verði send með bílum í skóla
í Reykjahlíð.
Annað árið í röð hefur risið deila
í sveitinni um grunnskólahald í
Skútustaðahreppi. Að þessu sinni
eru þó línur skýrari, meirihluti
skólanefndar og sveitastjórnar hefur
algjörlega hafnað að hluti skóla-
haldsins verði á Skútustöðum sunn-
an vatnsins og fulltrúi menntamála-
ráðuneytisins segir að ráðuneytið
gangi ekki gegn vilja meirihluta
sveitarstjómar og hafi ekki frekari
afskipti af málinu.
Kolbeinsey:
Breytingum
að Ijúka
Breytingum á togaranum Kol-
beinsey frá Húsavík er að ljúka þessa
dagana, en verkið er unnið hjá Stál-
smiðjunni í Reykjavík sem átti
lægsta tilboðið í verkið.
Að sögn Einars Njálssonar, bæjar-
stjóra á Húsavík, er reiknað með að
skipið komi til heimahafnar um
miðjan mánuðinn. Settur var búnað-
ur í skipið til að heiifrysta aflann um
borð sem þýöir að hægt verður að
beita skipinu á veiðar utan kvóta.
„Það þýðir einnig að við getum eftir
atvikum miðlað kvóta skipsins til
báta hér á Húsavík," segir Einar
Njálsson bæjarstjóri.
Og* nú er hann
tvöfaldur!
Veröur hann
100
milljónir?
Grilljónauppskrift Emils:
7. Skundaðu á næsta
sölustað íslenskrar getspár.
2. Veldu réttu milljónatölurnar
eða láttu sjálfvalið um getspekina.
3. Snaraðu út 20 krónum
fyrir hverja röð sem þú velur.
4. Sestu I þægilegasta stólinn
ístofunniá miðvikudagskvöldið
og horfðu á happatölurnar
þínarkrauma í Víkingalottó
pottinum I sjónvarpinu.
5. Hugsaðu um alltþað sem
hægt er að gera fyrir 700 milljónir.
Verðiykkurað góðu!
V
MÁ ESJÓÐA ÞER í DANS?
Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri.
KENNSLUSTAÐIR
• Reykjavík:
Brautarholt 4, Árbær, Foldahverfi,
Breiðholt
• Mosfellsbær
• Hafnarfjörður
• Innritun í síma 91-20345
kl. 13-19 í Brautarholti 4
• Suðurnes: Kefiavík
• Innritun í síma 92-67680 •
frá kl. 20 til 22, 12.-16. sept.
KENNSLA HEFST MANUDAGINN 12. SEPT.
• Afhending skírteina í Brautarholti 4, sunnu-
daginn 11. sept. kl. 16-19
• Síðasti innritunardagur laug-
ardaginn 10. sept.
Systkinaafsláttur - fyrsta barn fullt
gjald, annað barn hálft gjald, þriðja
barn og þar yfir fritt.
Aukaafsláttur ef foreldri
er einnig í dansnámi.
Samkvæmisdansar (suður-amerískir, Doop og standard) - Gömlu dansarnir
Hip Hop - Disco - Tjútt og Rockn'roll. Erlensdir gestakennarar. Allir aldurshópar.