Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
■' ' "■ ■II'ID.IMI
:
Tsrsmn
■a i?
Bff £«
■aia'
»» ««:
■trr-ír* c pc| STT- s r
- * —. v.7’ í
» “
Allir erfingar, að mökum og sambúðaraðilum undanskildum, þurfa að greiða skatt.
Erfðafjár-
skattur
Megineinkenni erföafjárskatts-
ins er aö greiða skal skatt af hveij-
um einstökum arfshluta, þ.e. hver
erfingi greiðir skatt af sínum arfi,
en ekki er greiddur skattur af dán-
arbúinu í heild. Sitji maki í óskiptu
búi greiðist erfðaíjárskattur ekki,
fyrr en búinu er skipt. Skatthæðin
er mismunandi og fer hún eftir
skyldleika arfláta og erfingja. Hún
verður hærri því fjarskyldari sem
aðilar eru. Því hærri sem arfurinn
er því hærri er skattprósentan.
1. Hverjir eru erfingjar?
Erfmgjar skiptast í tvo flokka,
lögerfinga og bréferfinga. Lögerf-
ingar eru taldir upp tæmandi í
Erfðalögunum frá 1962, en þeir eru:
Maki hins látna, böm hans og aðr-
ir niðjar, þ.e. bamabörn og barna-
bamaböm o.s.frv. Sé þeim ekki
fyrir að fara þá em erfingjar for-
eldrar arfláta og niðjar þeirra, en
ella ömmur og afar arfláta og böm
þeirra en ekki aðrir niðjar. Bréferf-
ingjar eru alhr þeir sem hinn látni
nefnir erfingja sína í erfðaskrá eða
öðrum erföagerningum. Um erfða-
skrár gilda strangar form- og efnis-
reglur og verður ekki farið nánar
út í þær hér.
2. Hverjir þurfa
að greiða skattinn?
Meginreglan er sú að allir erfingj-
ar þurfa að greiða skatt. Ekki skipt-
ir máh hvort um er að ræða arf
skv. lögum, erfðaskrá, dánargjöf-
um, fyrirframgreiddum arfi eða
gjafaarfi. Skyldleiki breytir hér
engu um. Frá þessari meginreglu
er þó mikilvæg undantekning, en
hún er sú að maki hins látna greið-
ir aldrei skatt, hvort sem um arf
er að ræða eða hann situr í óskiptu
búi. Sambúðaraðilar njóta einnig
þessara skattfríðinda, þótt ekki séu
lögerfðatengsl þeirra á milh, þ.e.
sambúðaraöilar erfa ekki hvor
annan sjálfkrafa samkv. lögunum
heldur þurfa þeir að gera þar sér-
stakar ráðstafanir t.d. með erfða-
skrá. Þegar talað er um sambúða-
raðila er átt við óvígöa sambúð
aðha af gagnstæðu kyni en á ekki
við um sambúð samkynhneigðra
aðila.
Umsjón
ORATOR
félag laganema
3. Af hvaða eignum þurfa
erfingjar að greiða skatt?
Alhr erfingar, að mökum og sam-
búðaraðilum undanskildum, þurfa
að greiða skatt. Erfingjar þurfa þó
aðeins að greiða skatt af sínum
hluta arfsins, en ekki af öllu dánar-
búinu í hehd sinni. Aöeins er
greiddur skattur af fjárhagslegum
verðmætum, þ.e. peningum og
bankainnstæðum og eignum sem
hægt er meö góðu móti að meta til
fjár. Ekki er greiddur skattur af
persónulegum munum hins látna
og munum sem hafa minjaghdi, en
þetta er alltaf háð mati hveiju
sinni. Ef arfurinn er undir 10.000
kr. þarf ekki að greiða skatt af hon-
um.
4. Flokkun skattaðila
Erfingum er skipt í þrjá mismun-
andi flokka, fer skipan eftir skyld-
leika erfingja og arfláta. Bréferf-
ingjar geta fallið undir hvaða flokk
sem er. Greiða erfingjar mismun-
andi háa skattprósentu, eftir því í
hvem flokkinn þeir lenda.
Flokkur A.
Undir hann faha, allir niðjar hins
látna, kjörbörn, stjúpbörn, fóstur-
böm eða niðjar þeirra, hvort sem
þeir hafa fengið arf skv. lögum eöa
erfðaskrá. Stjúp- og fósturbörn erfa
þó ekki stjúp- og fósturforeldra sína
lögum samkvæmt heldur þarf
erfðaskrá eða annan löggeming th.
Þetta er skattlægsti flokkurinn og
jafnframt sá vinsælasti. Skattpró-
sentan fer stighækkandi eftir fjár-
hæð arfsins, lægst er hún 5% en
verður aldrei hærri en 10%.
Flokkur B.
Undir hann falla foreldrar hins
látna og niðjar hins látna sem ekki
falla undir flokk A. Sem dæmi má
nefna systkini hins látna og systk-
inabörn. Kjörforeldrar faha hér
undir. Væntanlega falla hér einnig
undir fóstur- og stjúpforeldrar, en
þau þurfa þá að vera erfingjar skv.
erfðaskrá því lögerfðatengsl eru
ekki hér á milli. Sama á við um
stjúp- og fóstursystkini. Skattpró-
sentan fer hér einnig stighækkandi
eftir fjárhæð arfsins lægst er hún
17% en verður aldrei hærri en 25%.
Flokkur C.
Undir hann falla afar og ömmur
hins látna og börn þeirra. Einnig
fjarskyldari og óskyldir erfingjar
sem hafa tekiö arf skv. erfðaskrá.
Hér er skattprósentan hæst, og fer
einnig stighækkandi eftir fjárhæð
arfsins. Hún byijar í 30% og verður
hæst 45% Varðandi nánari útreikn-
ing vísast í 4. gr. 1. 83/1984.
5. Erfðafjárskýrsla o.fl.
Skylt er að fylla út erföafjár-
skýrslu, hvort sem erfingjar annast
sjálfir skipti dánarbúsins, eða fái
til þess aðstoö frá opinberum aðil-
um. í erfðafjárskýrslunni þurfa að
koma fram ahar eignir búsins og
áætla þarf verðmæti þeirra. Ekki
er þó skylt að telja upp aha per-
sónulega muni hins látna né þá
muni er hafa minjagildi ef verð-
mæti þeirra er ekki mikiö. Einnig
þarf að tiltaka allar skuldir hins
látna, þ.m.t. væntanleg opinber
gjöld, útfarakostnaður og annar
nauðsynlegur kostnaður varðandi
búskiptin. Þessi liðir koma til frá-
dráttar stofninum áður en erfða-
fjárskattur er reiknaður.
Sviðsljós
í hringiðu helgarinnar
Þeir voru einbeittir á svip þessir ungu skákmenn á fyrstu skákæfingu vetr-
arins á vegum Taflfélags Reykjavíkur um helgina. Á æfingunum eru tefldar
stuttar skákir en auk þess er boðið upp á fjölmargt annað, t.d. fyrirlestra
um skák, getraunaskákir, keppnir og vandaðar endataflsæfingar. Það verður
því heilmikið um að vera hjá ungu skákfólki næstu laugardaga.
Það er gott að fá sér hressingu eftir erfitt hlaup, eða það fannst þessari ungu
stúlku að minnsta kosti eftir að hafa tekið þátt í hinu árlega íslandsbanka-
hlaupi á laugardaginn. Alls skráðu 140 keppendur sig til leiks og voru þeir
á öhum aldri þó að mikiö hafi borið á börnum og unghngum sem gáfu full-
orðna fólkinu ekkert eftir.
Þeir Sveinbjörn Hjálmarsson, Þórður Hall Og Jón Reykdalvoru viðstaddir
opnun á sýningu Þórðar í Norræna húsinu á laugardaginn. Viöfangsefni
Þórðar á sýningunni eru náttúran, birtan og mismunandi tímaskeið í lands-
lagi. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-19 og lýkur þann 18. september.
„Thbrigði við ryksugu“ nefnist verk
Bjarkar Sigurðardóttur sem er til
sýnis á Nýlistasafninu um þessar
mundir. Björk nam í Frakklandi
1991-1992, í Myndhsta- og handíða-
skóla íslands 1990-1991 og 1992-1994,
og í Myndhstaskólanum í Reykjavík
1988-1990 og auk þess hefur hún
1 stundað tónhstarnám bæði hérlendis
log erlendis.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA! yujJSWAR