Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
13
Jóhanna Bogadóttir í Hafnarborg:
Litbrigði
náttúrannar
í myndlist samtímans er ríkjandi
naum hyggja og innsetningar þar
sem lágmyndaformiö er nýtt til hins
ýtrasta. Þó er ekki þar meö sagt aö
allir listamenn snúist um shka
möndla. Margir eru þeirrar gerðar
aö vilja rækta garöinn sinn í friöi frá
stefnum og straumum í núhstum og
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
kæra sig kollótta um tískubólur.
Meöal slíkra listamanna má nefna
Jóhönnu Bogadóttur sem hefur á
undanfömum árum þróað sérstakan
expressjóniskan stíl í málverki er
hefur náttúrulegar skírskotanir án
þess að fara yfir á svið hlutveruleik-
ans. Markmiö hennar hefur verið að
fanga stemningar og hughrif frá ólík-
um stöðum. M.a. sá áhrifa frá Ind-
landsferö listakonunnar stað á sýn-
ingu hennar á Kjarvalsstöðum fyrir
þremur árum og í Listasafni ASÍ á
síðasta ári þar sem gul- og grænleit
htbrigði hófu sókn gegn hinum
rauðu og bláu. Nú hefur Jóhanna
sett upp sýningu á tuttugu olíumál-
verkum, tuttugu og einni vatnslita-
mynd og fjórum olíukrítarmyndum
í Hafnarborg og fetar þar svipaðar
slóðir og á síðustu sýningum.
Sjálfsprottin pensilteikning
Olíumálverkin eru hvað þéttust í
sér og eðh ohuhtarins gefur hstakon-
unni færi á að byggja upp stemningu
með htbrigðum. Jóhönnu gengur þó
misvel að byggja undir þá stemningu
sem er inntak myndanna hverju
sinni. Henni hættir th að ofvinna
myndflötinn þannig að sjálfsprottin
penshteikningin verður stíf og þétt í
staö þess að fljóta og vera léttleik-
andi. Sem dæmi um shka ofvinnu
má nefna mynd númer nítján, sem
ber þann magnaða titil „Ljósið I“, og
er við innganginn í Hafnarborg og
nýtur hvað mestrar birtu. Öðru máh
gegnir um verk á borð við númer
eitt, „Höfuöskepnur" og númer sjö,
„Eyjar og haf ‘ þar sem uppbygging
er í senn léttleikandi og dýpt er í flet-
inum.
Víxlverkun
Vatnslitamyndimar eru mun
lausari í sér og þar er ekki um jafn
sannfærandi vinnubrögð aö ræða og
í ohumálverkunum. Það er helst í
myndum númer 27, „Hinni bláu ver-
öld“ og 31, „Skúraskini" sem Jó-
hanna nær að láta línuteikningu og
undirlag vinna saman að djúpstæðri
heild. Ohukrítarmyndirnar í kaffi-
stofunni eru að mörgu leyti sama
marki brenndar. Mynd númer 44,
„Gróandi 11“ er þar undantekning.
Þar koma fram eigindir sem grafík-
verk Jóhönnu búa jafnframt yfir.
Vekur þetta verk væntingar um frek-
ari myndgerð af hennar hálfu á sviði
grafíkhstar, en hstakonan einbeitti
sér að grafík um árabil, einkum
steinprenti. Þess eru mörg dæmi að
víxlverkandi áhrif hinna ýmsu listm-
iðla kveiki nýjar hugmyndir og veki
aðra myndsýn og er greinilegt að
listakonan rær á þau mið um þessar
mundir. Sýning Jóhönnu Bogadóttur
í Hafnarborg stendur th 19. septemb-
er.
Rúrek - sunnudagur:
„Einungis fyrir djass“
Sunnudaginn 4. september var hin árlega RúRek-
djasshátíð sett í Útvarpshúsinu við Efstaleiti. Að loknu
ávarpi Guðmundar Emilssonar léku tveir af erlendum
gestum hátíðarinnar, Niels-Henning Orsted Pedersen
og Ole Kock Hansen, þrjú íslensk þjóðlög. Þetta var
fremur stutt hjá Dönunum enda áttu þeir að leika á
tónleikum um kvöldið. En útsetningarnar hljómuðu
vel, ekki síst „Kindur jarma í kofunum" sem virtist
hér tengjast bæði blús og barokktónlist tryggðabönd-
um.
Hljómsveit Carls Möllers lék þvínæst nokkur lög
eftir hljómsveitarstjórann og saxófónleikarann Stefán
S. Stefánsson. Auk þeirra skipa hljómsveitina bassa-
leikarinn Gunnar Hrafnsson, tenórsaxófónleikarinn
Ólafur Jónsson, Guðmundur Steingrímsson trommari
og söngkonan Ehen Kristjánsdóttir. Fyrsta lag þeirra
var „Haustdagar" eftir Carl. Gott lag sem virtist að
einhverju leyti rekja ættir sínar í nánd við svalan djass
og harðbopp. Sama má segja um hin lög Carls, „Ein
með þér“ og „Hver ert þú?“, bæði við texta Þorsteins
Eggertssonar. Ehen gerði þeim góð skh sem og hljóm-
sveitin og er vist óhætt að bjóða Carl velkominn í th-
tölulega htinn en þó stækkandi hóp íslenskra djasstón-
skálda. Harðbopp-undirtónninn í lögunum kann að
stafa meira frá útsetningunum en hinum melódísku
lagasmíðum.
Annar meistari melódíunnar er Stefán S. Hér mátti
heyra hann í essinu sínu í laginu „Ogguhtið Bossa"
sem er óður í texta og tónum th þeirra Ghbertos og
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
Getz og ástarinnar anno 1973.
í „Sykur og salt“ er laglínan aðeins strembnari enda
brestur á ný tóntegund með norðanáttinni í textanum.
Þessu lauk svo með lagi theinkuðu hátíðinni, „Einung-
is fyrir djass", svona léttgeggjaðri djassveiflu sem kem-
ur flestum í gott skap. - Hljómsveitin var fín og vert
er að minnast á ágæta frammistöðu nýhðans í hópn-
um, Ólafs Jónssonar. Næstkomandi fimmtudagskvöld
er hægt að heyra meira í honum með hljómsveitinni
Lovemakers á Kaffi Reykjavík.
Menning
Verk eftir Jóhönnu Bogadóttur.
Nú eru skólarnir ab byrja og tilvalib ab fá sér sam-
stæbu fyrir veturinn, sem gerir námib aubveldara
MAGNARI:
60W með tónsvið 20 - 30.000,
rafdrifnum styrkstilli, 5 banda tónjafnara,
3 innbyggðum hljómstillingum, aðgerða-
Su a Ijósaskjá, JJItra Bass Booster-
Ijómi, plötuspilaratengi og tengi
fyrir heyrnartól o.fl.
UTVARP:
30 stöðva forval, FM/MW/LW-bylgjur,
PLL Synthesizer-stillir o.fl.
KASSETTUTÆKI:
tvöfalt tæki, sjálfvirk spilun beggja hliöa,
Dolby B, sjálfvirk byrjun viö upptöku frá
geislaspilara o.fl.
• GEISLASPILARI:
16 bita spilari,32 laga forval, síspilun,
handahófsspilun, synishornaspilun o.fl.
• 2 HATAþARAR
• FJARSTYRING:
fyrir allar aðgerðir hljómtækjasam-
sjæbunnar
• UTVARPSVEKJARI innbyggður.
Tilbobsverð aðeins 44.900,- kr. eða
3^.900^ - stgr.
VISA: U.þ.b. 3.012,- kr. á mán. í 17 man.
EURO: 4.585,- kr. á mán. í 11 mánubi
Munalán: 11.225,- út og 3.362,- á mán í 12 mán.
NAMSMENN
SKIPHOLT119
SÍMI 29800
Samkmt
munIlAn
Frábær
grei&slu-
kjör viö
allra hæfi
FjÁRFESTING í tölvunámi veitir þér forskot á
VINNUMARKAÐINUM!
82 klst. starfsmenntunarnámskeið með áherslu á
undirbúning fyrir störf á nútíma skrifstofum.
Verð aðeins
58.600.-
kr. stgr.
Afb.verð kr. 61.700.- eða 3.943 • ~ kr. á mánuði!
Skuldabréf í 19 mánuði, allt innifaUð.
KENNSLUGREINAR: . ÍT.u%'«..4,„V....
- Almenn tölvufræði . fEm iöl •
- MS-DOS og Windows
- Ritvinnsla ' ' '' •
- Töflureiknir og áætlanagerð
- Glærugerð og auglýsingar
- Tölvufjarskipti
- Umbrotstækni
Innritun fyrir haustönn er hafin. Hringdu og fáðu sendan
bækling eða kiktu til okkar í kaffi.
Tölvuskóli Reykjavíkur
B0RGARTÚNI 28. 105 REyKJAOÍK. sími 616699. fax 616696
i