Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
17
Iþróttir
s Brolin um ísland - Svíþjóð á morgun:
í góöu formi og hjálpar það
til að hafa leikið á HM í
Bandaríkjunum í sumar. Ég
hef bætt mig síðan ég fór til
Ítalíu og á vonandi eftir að
bæta mig enn frekar,“ sagði
Brolin.
Hann bjóst við að slagur
um ítalska titilinn myndi
standa á milli Parma, Juvent-
us, AC Milan, Lazio og
Sampdoria. Brolin hefur leik-
iö 38 landsleiki og skorað í
þeim 23 mörk. Þetta er í ann-
að sinn sem Brolin kemur til
íslands en hann lék með 21-
árs Uði Svía í Eyjum 1988.
„Veitir ekki
af því besta“
Tommy Svensson, landsliðs-
þjálfari Svía, varaði sænska
blaðamenn við að vera of sig-
urvissa fyrir leikinn gegn ís-
lendingum á Laugardalsvell-
inum annað kvöld. Um 50
sænskir blaðamenn eru
komnir hingað til lands í
tengslum við leikinn.
„Ég er að vona að að þeir leik-
menn sem hafa átt við
meiðsli að stríða verði orðnir
góðir fyrir leikinn. Okkur
veitir ekkert af að stilla upp
besta liðinu okkar. Ég þekki
íslenska liðið vel og það verð-
ur örugglega mjög erfitt að
eiga við það á heimavelli,"
sagði Svensson á blaða-
mannafundinum.
Thomas Ravelli, markvörð-
ur sænska liðsins, æfði í
fyrsta sinn með liðinu að
Varmá síðdegis gær. Svens-
son var bjartsýnn á að Ra-
velli myndi byrja í markinu
en það ætti samt eftir að
koma í ljós. Svensson til-
kynnir byijunarliðið í kvöld.
„ísiand fær
mörg stig“
„Ég get ekki leynt því að við
stefnum að sigri í þessum
riðli keppninnar. Það verður
síður en svo auðvelt en liðið
þroskaðist mikið í heims-
meistarakeppninni í sumar
og hefur alla burði til að
standa sig vel. íslenska liðið
á eftir að fá mörg stig í riðlin-
um og flest þeirra koma á
sterkum heimavelli. Eins hef
ég trú á tyrkneska liðinu sem
eru í stöðugri sókn. Nokkrir
leikmanna íslenska hðsins
búa yfir góðri reynslu úr at-
vinnumennskunni. Ég þekki
vel til Arnórs og Hlyns hjá
Örebro en þeir báðir hafa
staðið sig vel á tímabilinu.
Eins kannast ég við Guðna,
sem var hjá Tottenham, og
Eyjólf sem nú leikur í Tyrk-
landi,“ sagði Svensson.
Þess má geta að Svíar hafa
aldrei komist í úrslit í Evr-
ópukeppninni en á síðasta
móti, sem var í Svíþjóö, voru
þeir gestgjafar.
Brolin.
ig Eggert Magnússon, formaður KSÍ.
elmingsmöguleika á sigri gegn Svíum.
ir 6000 miðar á leikinn á morgun.
dngar
r í kvöld
M-7 í Evrópukeppninni í körfuknatt-
vík. Þetta er frumraun Grindvíkinga
itaborg, og varð í 5. sæti úrvalsdeild-
ir landsliðsmenn, þar af tveir sænsk-
n). Þar eru einnig tveir bandarískir
Lm McCoy, sló stigamet háskólaliðs
mar en Julius „Dr.J.“ Erwing, sem
Meðalaldurinn í sænska liðinu er 25
heima, mætum ákveðnir til leiks og
aðra umferð. Ég vona að sem flestir
air eru með mjög hávaxið lið en geta
m, þjálfari Grindvíkinga, sem hafa
u til alls líklegir í leiknum.
áðefnilegi, verður með í leiknum en
anum og góðar líkur eru á að hann
rinn Joe Wright meiddist í leik gegn
inn að ná sér.
Sfrákarnirsem
mætaSvíum
Ásgeir Elíasson tilkynnti í gær
byrjunarlið U-21 árs landsliðsins
sem mætir Svíum á Kaplakrika-
velli klukkan 17.15 í dag.
Eggert Sígmundsson stendur í
markinu. Lárus 0. Sigurðsson,
Pétur Marteinsson og Óskar Þor-
valdsson eru varnarmenn. Á
miðjunni Ottó K. Ottósson, Krist-
inn Hafliðason, Sturlaugur Har-
aldsson og Tryggvi Guðmunds-
son og í framlínunni Eiður S.
Guðjohnsen, Helgi Sigurðsson og
Guðmundur Benediktsson.
Þórður Guðjónsson hjá Boc-
hum átti sæti í U-21 árs liðinu en
tilkynnti forföll vegna meiðsla.
Búiðaðsefja
um 6000 miða
Forsalan á landsleik íslendinga
og Svía á morgun hefur gengið
mjög vel og þegar var uppselt í
stúku á fóstudagskvöldið. í gær-
kvöldi höfðu selst um 6000 rniðar
á leikinn en áhorfendametið er
rúmlega 15.000 manns sem sáu
Skota vinna sigur á íslendingum.
Eggert Magnússon, formaður
KSI, segir að þá hafi miðar í stúku
ekki selst upp fyrr en tveimur
dögum fyrir leikinn og miðað við
það ætti að vera möguleiki að
setja nýtt aðsóknarmet.
Kanastúlka
til Blikanna
Penni Pepper, 22 ára gömul
bandarísk stúlka, er gengin til
liðs við Breiöablik, nýliðana í l.
deild kvenna í körfuknattleik.
Pepper er 1,75 m á hæð, góð
skytta og með góðar sendingar
og kemur frá Ozarks-háskólan-
um í Arkansas. Ljóst er að hún
styrkir Blikaliðið geysilega. UBK
var áður búiö að fá landsliöskon-
urnar Olgu Færseth og Hönnu
Kjartansdóttur og við hefur bæst
Elfsa Vilbergsdóttir, hávaxin og
öflug stúlka úr Snæfelli.
Svíamir fá 120 þúsund
fyrir sigur gegn íslandi
- Ravelli verður með Svíum á morgun, segja sænsk blöð
Eyjótfur Harðarson, DV, Sviþjóð:
Sænskir fjölmiðlar fialla mjög
mikiö um landsleik íslendinga og
Svía á morgun. Sumir þeirra segja
að leikurinn verði auðveldur fyrir
Svíana en aðrir að íslendingar
verði mjög erfiðir heim að sækja.
í blaðinu I dag er birt stór mynd
af Roland Nilsson, fyrirliða Svía,
þar sem hann situr á skurðgröfu í
Laugardalnum. í blaðinu er sagt
að Svíarnir séu komnir til íslands
til að grafa eftir gulli, alveg eins
og á HM í Bandaríkjunum. Svíam-
ir fái 50 þúsund íslenskar krónur,
hver leikmaður, fyrir jafntefli gegn
íslandi en 120 þúsund íslenskar
krónur ef Svíarnir sigri. Ef sænska
liðið kemst í lokakeppni Evrópu-
keppninnar fær það 25 milljónir
íslenskra króna og skiptast þær
jafnt á milli leikmanna.
Flestir sænsku fiölmiðlanna full-
yrða að markvörðurinn Thomas
Ravelli verði í sænska markinu
annað kvöld og einnig sé víst að
Martin Dahlin leiki.
í Dagens Nyheter er heilsíðu-
grein um Eið Smára Guðjohnsen,
son Arnórs, og birt er viðtal viö þá
feðga.
Eitt sænsku blaðanna greinir frá
dví að Joachim Björklund hafi
fengið tilboð frá Arsenal sem hljóði
upp á 144 milljónir ísl. króna. Þá
hefur Jörgen Petterson, sem átti
að leika með u-21 árs liði Svia gegn
íslandi í dag, verið dæmdur í 8
leikja bann af UEFA og verður því
ekki með. Petterson hefur verið
iðinn viö að skora fyrir lið Malmö
undanfarið.
Arnór og Eiður Smári ræöa við sænskan blaðamann á Laugardalsvelli
i gær. DV-mynd Hson
Nafn:
KAUPBEIÐNI
Kennit:
Heimilisfang: S'imi:
□ EuroCH Visa.nr: Gildistími: □ Póstkrafa:
I I Stór-Reykjav'ikursvæðið C3 Akureyri
D 1 slembimiði CH 2 slembimiðar
Þú fyllir út kaupbeiöni/r og velur hvort þú viljir sjá leikina á Akureyri eöa Stór-Reykjavikursvæöinu. í
slembimiöapottinum verúa 5000 miíar og því er ekki öruggt aú þú fáir miúa. Slembimiöinn gildir á eitt leikkvöld
sem eru 2 eúa 3 leikir. I pottinum verúa 250 miúar á útsláttarkeppnina og eru þeir mun verúmeiri. Ef heppnin er
meú þér getur þú fengiú miúa á úrslitaleikinn fyrir aúeins 2500 kr.! Þeir aúilar sem verúa dregnir út fá skriflegt
svar fyrir I október og greiúa þeir 2500 kr. fyrir slembimiúann.
RA^VÍS
Pósthólf 170, 602 Akureyri.
S: 96-12999, 96-12800, 91-641522