Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1994, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
25
Fréttir
Leikhús
Veiði dræm fyrir norðan:
730. laxinn veiddist
í Laxá á Ásum í gær
Þrátt fyrir rólega veiði í veiðián-
um fyrir norðan í sumar hefur
veiðin í Laxá á Ásum, dýrustu veið-
iá landsins, staðið undir vænting-
um veiðimanna. Þó sumir veiði-
menn hafi reyndar kannski ekki
veitt mikið í ánni gaf hún 730. lax-
inn í gær. Það er mjög gott í veiðiá
þar sem aðeins er veitt á tvær
stangir.
„Þetta var allt í lagi hjá okkur
félögunum, við fengum 9 laxa og
þetta voru laxar frá fjórum upp í
sex pund,“ sagði Hilmar Ragnars-
son í gær en hann var við fjórða
mann að hætta veiðum í Laxá á
Ásum á hádegi í fyrrdag.
„Við fengum þessa laxa á nokkr-
um stöðum í ánni og reyndar alls
ekki alla í Langhylnum. En Lang-
hylurinn hefur gefið mjög vel í
sumar. Síðan 28. ágúst hefur veiðst
feiknavel í ánni og það hafa verið
þetta 10-15 laxar á dag. Við lentum
í ijómaveðri en fengum þrátt fyrir
það þessa 9 laxa. Veiðimenn, sem
voru á undan okkur, veiddu 31 lax
á tveimur dögum. Það er veitt í
ánni núna til 20. september og það
eru lausar stangir 12. til 16. sept-
ember og stöngin kostar 30 þúsund.
Það eru laxar í ánni en þeir hafa
oft verið fleiri," sagði Hilmar enn-
fremur.
Veiðitíminn þetta árið er ekki
þrír mánuðir heldur þrír og hálfur
í fyrsta skipti í fjölda ára. Þetta
þýðir að veiðimenn geta veitt lax-
inn lengur en ella.
Brynjudalsá hefur gefið
á milli 70 og 80 laxa
Veiðin hefur verið róleg í Brynju-
Egill Guðjohnsen með 19 punda lax úr Miðfjarðará en stærstu laxarnir
þetta sumarið úr ánni eru enn' þá þrir 19 punda. DV-mynd FER
dalsá í Hvalfirði og hafa aðeins
veiðst á milh 70 og 80 laxar núna.
Laxinn er kominn um aha á.
Álftá hefur gefið 220 laxa
„Álftá á Mýrum hefur gefið 220
laxa og þeir eru þrír 16 punda þeir
stærstu ennþá,“ sagði Dagur Garð-
arsson í gærkvöldi er við spurðum
frétta af Álftá á Mýrum og Brenn-
unni í Borgarfirði.
„Sjóbirtingsveiðin hefur verið
nokkuð góð í Álftá og veiðimaður,
sem var að veiða fyrir skömmu,
veiddi fjóra á stuttum tíma.
Stærstu sjóbirtingarnir eru fjögur
pund. Brennan hefur gefið 144 laxa
og hann er 18 punda sá stærsti. Það
hefur verið jöfn og góð laxveiði í
Brennunni í sumar. Sjóbirtingur-
inn hefur verið að gefa sig í Brenn-
unni líka eins og í Álftá síðustu
vikur,“ sagði Dagur ennfremur.
Merming_____________________________________
RúRek - sunnudagur
Þrír Danir lögðu af stað...
Heiðursgestur RúRek, kontrabassasnillingurinn Niels Henning 0rsted
Pedersen, lék á opnunartónleikum hátíðarinnar á Hótel Sögu á sunnu-
dagskvöldið. Þetta mun vera í níunda sinn sem hann spilar hér á landi.
Með honum að þessu sinni voru landar hans sem einnig hafa báðir kom-
ið hingað áður, Ole Kock Hansen píanisti og stjómandi Radioens Big
Band, og Alex Riel trommuleikari. Þetta sama tríó heillaði íslenska áheyr-
endur fyrir tæpum sautján árum í Norræna húsinu með dönskum þjóðlög-
um og öðru. Og áheyrendur urðu ekki fyrir vonbrigðum í þetta sinn frek-
ar en fyrri daginn.
Fyrri hluta tónleikanna léku þeir tvær syrpur, sem að ég held voru
allt tónsmíðar bassistans sjálfs. Tónleikarnir hófust á fallegu lagi með
miklum orgelpunkti í bassanum í upphafi, en svo var skipt yfir í hálfgerö-
Jass
Ársæll Másson
an mambóhryn í næsta dansi. Þar á eftir kom rólegur vals, en fyrri syrp-
unni lauk með nýju stefi yfir hið mikið notaða form í „I Got Rythm“
Gershwins. Seinni syrpan hófst á hægum töltara, og við tók vals, einnig
í rólegu tempói. Bassinn hljómaði svo einn um stund áður en yfir dundi
lokadans syrpunnar, geysihraður bebopfrasi. Lá við að ýmsum tónleika-
gestum létti þegar Pedersen missti niður eina línu og brosti við; hann er
þá mannlegur eftir allt saman. Seinni hluti tónleikanna var þjóðlagas-
víta, samsett úr ýmsum vel þekktum barnastefjum og norrænt ættuðum
lögum. „Þrír filar lögðu af stað í leiðangur" var upphafs- og lokastef syrp-
unnar.
Þessir hugljúfu Danir héldu athygli allra fanginni allan tímann með
eindæma smekklegu og hugmyndaríku spili. Þótt tónlist þeirra boði ekki
nýja tíma í djassi eru þau ekki mörg píanótríóin sem hafa bassann sem
fyrsta sólóhljóðfæri, og sjálfsagt er enginn annar sem gæti farið í hlut-
verk Niels Hennings í svona spilamennsku. Ole Kock Hansen og Alex
Riel spiluðu einrng frábærlega vel og smekklega; kannski er það líka eitt
þaö skemmtilegasta við þetta tríó að það er ekki bara verið að skiptast á
sólóum, heldur eru þeir mikið allir í framlínunni í einu. Þrátt fyrir heiðar-
lega tilraun Niels Hennings til að losna við aukalög þá urðu þau tvö; fyrst
rólegt lag sem ég kannaðist ekkert við, en svo var heilagur Tómas ílutfur
í lokin af einstökum gáska, ekki hvað síst hjá Ole Hansen sem ég sá ekki
að stykki bros allan tímann þrátt fyrir að félagar hans væru meira og
minna glottandi. Það er óhætt að segja að RúRek 94 fari vel af stað.
Gleðilega hátíð!
Tilkyniungar
Silfurlínan
Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga kl.
16-18.
Septembertónleikar
Selfosskirkju
halda áfram í kvöld, þriöjudagskvöld,
þann 6. sept. Ungur ítalskur orgelleikari,
Marco Lo Muscio frá Róm, leikur. Tón-
leikamir byrja kl. 20.30 og er aðgangur
ókeypis.
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RJKÍ gengst fyrir nám-
skeiöi í almennri skyndihjálp sem hefst
miðvikudagmn 7. sept. Kennt verður frá
kl. 20 til 23. Kennsludagar verða 7., 8., 12.
og 13. sept. Námskeiðið verður haldið í
Fákafeni 11, 2 hæö. Þátttaka er heimil
öllum 15 ára og eldri. Þeir sem hafa áhuga
á aö komast á þetta námskeið geta skráð
. sig í síma 688188 frá kl. 8-16. Námskeiðs-
gjald er kr. 4000.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Rvík
fer í sína árlegu haustferð fóstudaginn
9. september. Nánari upplýsingar í síma
43549 (Ásta Sigríður) og 875573 (Sigur-
borg).
Hópþjálfun fyrir gigtarfólk
hefst að nýju 14. september nk. á vegum
Gigtarfélags íslands. Skráning fer fram
hjá Gigtarfélagi íslands í síma 30760, dag-
ana 7., 8. og 9. september milli kl. 13 og 15.
Söngnámskeið
ítalska söngkonan og söngkennarinn
Eugenia Ratti heldur námskeið fyrir
söngvara og söngnema í Reykjavík og
hefst það 26. september. Hún kemur hing-
að á vegum Jóhönnu G. Möller söng-
konu. Innritun á námskeiðið, sem hefst
26. september og lýkur 25. október, er
þegar hafln.
Öryggi við skurð-
gröft og gryfjur
Myndbær hf. hefur lokið viö gerð
fræðslumyndar um öryggi við skurðgröft
og gryfjur. Myndin er unnin í samstarfi
viö Vinnueftirlit ríkisins, veitufyrirtæki
og Póst og síma og nýtist öllum þeim sem
vinna viö stjóm og í nánd við vinnuvél-
ar. Myndbandið er gefið út á VHS mynd-
bandi. Nánari upplýsingar í s. 35150.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Sala áskrlftarkorta til nýrra korttiafa er
hafin.
Með áskrittarkorti má tryggja sætrað
óperunni Vald örlaganna.
Miðasala á óperuna hefst 9. september.
Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20
meðan á kortasölu stendur. Tekið á
móti simapöntunum alla virka daga frá
kl. 10.
Græna línan 99 61 60. Bréfsími 6112 00.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litlasviðkl. 20.00 v.
ÓSKIN (G ALD R A-LOFTU R)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Leikgerð og búningar: Páll Baldvin Bald-
vlnsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Leikmynd: Stigur Steinþórsson.
Hljóðmynd: Hilmar Örn Hilmarsson.
Þjálfun: Árni Pétur Guðjónsson.
Leikstjórn: Páll Baldvin Baldvinsson.
Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson, Benedikt
Erlingsson, Ellert A. Ingimundarson,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Theodór Júliusson.
SONGLEIKURINN
Simi 112 00 - Greiðslukortaþjónusta.
Frumsýning laugardaginn 10. sept., upp-
selt.
Sunnud. 11. sept., uppselt.
Þriðjud. 13. sept.
Miðvikud. 14. sept.
Fimmtud. 15. sept.
Föstud. 16. sept.
SALA AÐGANGSKORTA ER HAFIN.
SEX SÝNINGAR AÐEINS KR. 6.400.
Miðasala er opin alla daga kl.
13.00-20.00 á meðan kortasalan
stendur yfir. Pantanir í sima 680680
alla virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhús
Textílkjallarinn
Laugardaginn 3. september sl. opnaði
Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður
nýja vinnustofu og verslun á Barónsstig
59, Reykjavík, sem hún kallar Textílkjall-
arann. Hrönn hefur sérhæft sig í hönnun
á textílvörum í svefnherbergi, svo sem
sængurverum, rúmteppum og náttfótum
auk ýmiss annars smávarnings. Sérstaka
athygli hafa vakið persónulegar áletranir
á varninginn en Hrönn hefur þróað að-
ferð til að rita nöfn eða texta á efnið eftir
óskum fólks án þess að þaö komi niður
á þvottþvoli litanna. Textílkjallarinn
verður opinn frá kl. 11-16 virka daga og
fyrsta laugardag í hverjum mánuði (lang-
ur laugardagur).
Tombóla
Þessar ungu hnátim, sem heita Erla,
Valgerður, Elin, Oddrún og Salka, héldu
nýlega tombólu til styrktar Rauöa krossi
íslands vegna hjálparsjóðs Rúanda. Þær
söfnuðu alls 1760 kr.
Bridgeklúbbur Félags eldri
borgara í Kópavogi
í kvöld kl. 19 veröur spilaöur tvímenning-
ur að Fannborg 8 (Gjábakka).
Kynningarfundur hjá Björgun-
arsveit Ingólfs
Björgunarsveit Ingólfs er nú aö byrja
vetrarstarfiö af fullum krafti og leitar
eftir nýjum félögum í sveitina. Kynning-
arfundur vegna nýhöastarfsins verður
haldinn í kvöld kl. 20 í Gróubúð, Granda-
garði 1, Reykjavík. Allt ungt fólk, sem
náð hefur 17 ára aldri, stelpur sem strák-
ar, er velkomið.
Á Hótel íslandi.
Frumsýning 10. sept. Miða- og
borðapantanir á Hótel Islandi í
síma 687111.
SÖNGSMIÐJAN
TÍSKA
////////////////////////////
Aukablað
TÍSKA
Miðvikudaginn 14. september nk. mun
aukablað um tísku fylgja DV.
Fjallað verður um tísku í víðum skilningi. M.a.
verður umfjöllun um nýjungar í tískiheiminum.
Föt, snyrtivörur og fylgihlutir
verða þar í brennidepli.
Auk þess verða birtar stuttar greinar um
tískutengt efni og ýmsar hagnýtar leiðbeiningar.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu blaði vinsamlega hafi samband við
Björk Brynjólfsdóttur, auglýsingadeild DV, hið
fyrsta í síma 632723.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 8. september.
ATH.! Bréfasími okkar er 632727.