Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1994, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
Sviðsljós
f hringiðu helgarinnar
Þessir krakkar skemmtu sér vel á hrekkjavökunni sem haldin var í Upplýs-
inga- og menningarmiðstöð nýbúa um helgina. Farið var í margs konar leiki
og voru flest börnin klædd í skemmtilega búninga eins og tíðkast þennan dag.
Eins og flestum er kunnugt hefur jó-jó herferð Vífilfells hf. varað sl. tvo
mánuði. Jó-jó meistarinn Ivan Hagen hefur feröast vítt og breitt um landið
og haldið fjölda sýninga og keppna í skólum, verslunum, félagsmiðstöðvum,
spítölum og víöar. Síðast liðinn laugardag var svo haldin íslandsmeistara-
keppnin í jó-jó í Kringlunni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Þau Jóhann G. Kristjánsson, Birna Björnsdóttir, Viðar Ólafsson, Ásta Hrólfs-
dóttir, Ágúst Haraldsson og Erla Þorsteinsdóttir komu í boð sem haldið var
í tilefni útgáfu bókarinnar „Að elska er aö lifa“ eftir þá Hans Kristján Áma-
son og Gunnar Dal. í bókinni ræðir Hans Kristján við Gunnar tun marg1
leg málefni og bregður Gunnar upp heimsmynd sinni á mjög skýran
skemmtilegan hátt, eins og honum einum er lagið.
Mjódd og Lynghálsi 10
Reykjavík
Furuvöllum 1
Akureyri
na
Stillholti 16 Mjallargötu 1
Akranesi ísafirði
Gestir sem fóru í Sundlaug Reykjavíkur á laugardaginn
í þeim tilgangi að fá sér sundsprett urðu heldur en ekki
hissa þegar þeir urðu varir við óvænta gesti undir vatns-
yfirborðinu. Þar voru á ferð kafarar úr Sportkafarafé-
lagi Reykjavíkur og einnig áhugasamir gestir sém komu
til að fá að prófa þetta spennandi sport. Fólki bauðst að
prófa köfun í 20 mínútur og eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd þótti spennandi að fá að prófa að anda í vatn-
Salurinn í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði
iðaði á laugardag þegar þar fór fram alþjóðleg dans-
keppni undir heitinu The Viking open Hafnarfjörður.
Alls tóku um 80 pör þátt í keppninni, á aldrinum 6 ára
og upp úr. Mikil uppsveifla er í dansi um þessar mund-
ir og sagði Níels Einarsson keppnisstjóri að á milli 20
og 30 þúsund manns stunduðu þessa iðju hér á landi.
Meiming
Regnboginn - Reyfari: ★★ */2
Gangið á guðs
vegum eða deyið
í upphafi myndar sinnar Pulp Fiction birtir Quentin
Tarantino orðabókarskýringu á orðinu „pulp“. í orða-
bók Tarantinos er ein merking þessa orðs „mauk“, svo
vitnað sé í ensk-íslenska orðabók Amar og Örlygs, auk
reyfaramerkingarinnar sem brúkuð er í heiti myndar-
innar og þar vísað í þær mauksuðubókmenntir sem
Kaninn kallar Pulp Fiction og segir frá bófum og þvi-
umlíku sómafólki. Enda uppsuðan hálfgert mauk.
Enn á ný eru þaö bófar og fylgifiskar þeirra sem
Tarantino segir frá og horfir á úr ískaldri fjarlægð.
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
Tarantino, þetta óskabam sem allir hampa, sem hóf
leikstjóraferil sinn með eftirminnfiegum hætti í Res-
ervoir Dogs, glæpamannamynd sem var afinokkuð
öðruvísi en maður átti að venjast. En því miður hefur
honum ekki tekist að fylgja henni nógu vel eftir með
þessari nýju mynd.
Eins og fyrri myndin skiptist þessi í aðgreinda kafla
þar sem hefðbundin tímaröð er ekki virt í frásögn-
inni. í þetta sinn em sagðar þijár sjálfstæðar sögur
sem þó eiga sitthvað sameiginlegt, svo sem ofbeldið
og ýmsar persónur sem flakka á milli, jafnvel eftir að
hafa látið lífið í næsta kafla á undan. Utan um sögum-
ar þrjár er svo hin fjórða sem er framan og aftan við
hinar, einskonar rammi utan um þær.
Tarantino kynnir okkur fyrir fjölskrúðugu safni
persóna: lánlausu pari sem dettur í hug að ræna veit-
ingastaðinn þar sem það er að fá sér morgunverð,
leigumorðingjunum Jules (Jáckson) og Vincent (Tra-
volta) sem ganga erinda bófaforingjans (Rhames), eig-
inkonu (Thurman) bófaforingjans sem Vincent fer út
meö eina kvöldstund og tvistar við, hnefaleikakappa
(Willis) sem svíkur bófaforingjann með því að stúta
andstæðingi sínum í síðustu viðureigninni og loks alls-
heijarreddaranum Winton Wolf (Keitel) sem bjargar
þeim Jules og Vincent úr vondri khpu. Svo aðeins
helstu persónumar séu nefndar.
Kaflarnir em misáhugaverðir en allir em þeir upp-
fuflir af löngum og oft hallærislegum samtölum um
fimm dollara sjeika eða erótískt gildi fótanudds eða
gullúr sem geymt var í endaþarmi í mörg ár, kannski
tfi að sýna okkur að kaldrifjaðir leigumorðingjar em
bara rétt eins og við hin, sífeflt blaðrandi um aflt og
ekki neitt.
Af öllum persónunum sem Tarantino leiðir fram em
Bruce Willis I hlutverki boxarans í Reyfara Tarantinos.
leigumorðingjamir tveir, þeir Vincent Vega og Jules,
áhugaverðastir. Það er ekki síst fyrir frábæra frami-
stöðu leikaranna tveggja. John Travolta er ekki lengur
þessi sæti súkkulaðihjúpaði og aftursleikti töffari sem
hann var í laugardagsfárinu og fitukleprunum. Hér
sýnir hann og sannar að í réttu hlutverki og undir
stjóm rétts manns getur hann gert jafn vel og hinir
aflra bestu. Það má þó vart á milli sjá hvor þeirra er
betri, Travolta eða Samuel L. Jackson í hlutverki
Júlla, þyljandi texta úr Bibliunni áður en hann pump-
ar blýi í einhveija ólánsama aumingja.
Og af uppbyggingu myndarinnar og örlögum persón-
anna má ráða að Tarantino hvetji okkur öll, að
minnsta kosti leigumorðingjana og bófana meðal vor,
tfi að finna guð því annars sé voðinn vís og okkar bíði
ekkert nema dauðinn.
En þótt þetta sé allt voðalega sniðugt og flott og jafn-
vel svartfyndið á köflum dugar það ekki til að gera
úr bútunum sannfærandi hefid.
Reyfari (Pulp Fiction).
Handrit og leikstjóm: Quentin Tarantino.
Leikendur: John Travolta, Samuel L. Jackson, Uma
Thurman, Harvey Keitel, Bmce Willis, Tim Roth,
Amanda Plummer, Eric Stoltz, Ving Rhames, Rosanna
Arquette, Christopher Walken, Maria de Medeiros.