Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1994, Síða 19
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
31
Meiming
Rán hefur veriö framið á skrifstofu útgerðarinnar. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Randver Þorláksson i
hlutverkum sínum.
Sjónvarpið - Sigla himinfley:
Mannlíf í hægagangi
Kvikmyndagerðarmenn okkar
hafa ekki mikla reynslu í gerðieik-
inna sjónvarpsþáttaraða, enda slíkt
dýr biti fyrir litla sjónvarpstöð að
leggja út í. Á meðan fátækt okkar
í gerð slíks efnis hefur staðið yfir
hefur Sjónvarpið oft verið að bjóða
upp á það besta sem gert er í heim-
inum af slíkum sjónvarpsseríum
og það eru þvi kröfuharðir áhorf-
endur sem leggja dóm sinn á fyrstu
alvöru sjónvarpsseríu okkar ís-
lendinga, Sigla himnfley. Og hvar
skyldi hún svo standa í saman-
burðinum. Jú, betri sjónvarpsser-
íur hafa sést, sérstaklega frá ná-
grönnum okkar á Bretlandseyjum
en í samanburði við það sem
frændur okkar á Norðurlöndum
gera þá stenst hún fyllilega saman-
burð og næst þykir mér Sigla him-
infley standa þeim dönsku sjón-
varpsseríum sem sýndar hafa ver-
iö, þar sem allt gerist oftar en ekki
í einhverjum smákima þar sem all-
ir þekkja alla.
Það var mikil skynsemi hjá Þráni
Bertelssyni að velja Vestmannaeyj-
ar sem sögusvið. Náttúrufegurðin
er mikil og einstök og lyftir því oft
glæsileg kvikmyndataka upp frek-
ar daufum atriðum. Sagan um
Malín, sem kemur útgerðarmann-
inum Sigurjóni, afa sínum, til
hjálpar í þrengingum hans, er ekki
ýkja merkileg en hún er mannleg
og eðlileg. Það eru ekki margar
persónur sem skipta einhverju
máh fyrir atburðarásina, Malín er
nýútskrifaður viðskiptafræðingur
og milli þess sem hún reynir að fá
botn í skúffurekstur afa síns bítast
tveir um ástir hennar, annar er
alinn upp á möhnni og hefur gengi
menntaveginn, hinn er sjómaður
og óvirkur alkóhóhsti. Ýmsar hlið-
arpersónur koma mismikið við
sögu en flestar tengjast á einhvem
hátt Sigurjóni gamla. Vondar per-
sónur eru ekki til í sögunni og eini
„glæpamaðurinn" stal til þess eins
að geta gefið peningana til kirkju-
byggingar.
Löng sjónvarpsmynd, sem skipt
er í fjóra hluta, er ekki sama og
kvikmynd í bíói og ef Sigla himin-
fley er tekin í einu lagi þá er það
KvTkmyndir
Hilmar Karlsson
fyrsta sem manni dettur í hug að
hægt hefði verið að stytta myndina
mikið án þess að nokkur skaði yrði
af. Samræður eru yfirleitt of langar
og spennan í lágmarki. Það kann-
ast allir við að í framhaldsmyndum
á borð við Sigla himinfley er passað
upp á að enda hvem þátt þannig
að áhorfandinn hafi eitthvað til að
hugsa um og hlakka til fram að
næsta þætti. Því miður gefur sagan
í Sigla himinfley lítll tækifæri til
shkra skiptinga enda er það
kannski helsti gallinn að stígand-
inn í sögunni er of hægur.
Á móti kemur að einstaka per-
sónur verða mjög Ufandi, sérstak-
lega nær GísU HaUdórsson að gera
Sigurjón eftirminnilegan. Hann er
sannur fulltrúi gömlu útgerðar-
mannanna sem lifðu lífinu meira
meðal starfsmanna sinna en á
skrifstofunni. Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Ingvar Sigurðsson
eiga einnig ágæta spretti., en verða
stundum vandræðaleg. 011 tækni-
vinna er til fyrirmyndar og tónUst
Oddgeirs Kristjánsson og Asa í Bæ
hefur sjaldan eða aldrei notiö sín
betur.
Sigla himinfley.
Leikstjóri og handritshöfundur: Þráinn
Bertelsson.
Kvikmyndun: Jón Karl Helgason.
Klipping: Júlíus Kemp.
Tónlist: Siguróur Rúnar Jónsson.
Aóalhlutverk: Gísli Halldórsson, Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir, Ingvar E. Sig-
urðsson, Kristbjörg Kjeld, Rúrik Har-
aldsson og Valdimar Flygenring.
VIRKA
Tískufataefni - Bútasaumsefni
Nýkomið: taft, velúr, fínplíseraður velúr, þykkt
teygjanlegt prjónasilki, Lover Knot-bókin, dúkku-
gleraugu, Burdasnið, kwik sew-snið o.fl. o.fl.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-18, á laugardögum frá
1. sept. til 1. júní kl. 10-14.
9
VIRKA
Mörkinni 3, simi 687477
(við Suðurlandsbraut)
í miklu úrvali
Perur, Ijós, lampar, heimilistæki,
dyrasímar og loftnet
iIL Raflagnaverslunin
llA RAFSÓL
Löggiltur rafverktaki
Skipholti 33, sími 35600
T'WWW1WnVWW W T WWWWWWWW
SPARIÐ ALLT AÐ 50% OG
SETJIÐ SAMAN SJÁLF
fi^jöminn býður upp á gott og
fjölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar sníða efnið eftir
þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Gerðu verðsamanburð.
— Það borgar sig.
Eldhúsinnréttingar.
Fataskápar
u u
BJORNIN
B0RGARTÚNI28 S. 6215 66
'