Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1994, Síða 28
40
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994
KE N IWOOD kraftur, gϚi, ending
C3!-—/ Ármúla 17. Ravkiavík. sími 688840
GMÞ bílaverkstæðið hf.
Fosshálsi 27, sími 672270
Eftir verðkönnun helstu dagblaða landsins á
sóluðum dekkjum, neglingu, umfelgun og
jafnvægisstillingu kom í ljós að lægsta verðið
var hjá GMÞ bílaverkstæðinu, Fosshálsi 27.
General Motors þjónustan er í sama húsi og
F&A og Opal.
Verið velkomin
General Motors þjónustan
Fosshálsi 27
sími 672270
BB dekk BB dekk
dekkin sem duga dekkin sem duga
TÆKNI
fÆÆÆÆÆÆÆJÆÆÆÆÆÆÆÆÆSÆÆÆÆÆÆÆÆIfM
AUKABLAÐ UM
TÆKNI
Miðvikudaginn 9. nóvember mun aukablað um tækni
fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en
í því verður fjallað um fjölmargt sem viðkemur tækni
til nota á heimilum og víðar.
I blaðinu verður fjallað um sjónvörp, myndbands-
tæki, myndavélar, síma- og faxtæki, vakt- og þjófa-
varnakerfi fyrir heimili, auk ýmissar hagnýtrar tækni
sem nýst getur á heimili og vinnustað.
Þeir sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í
blaðið er bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar
DV, Hauks Lárusar Haukssonar, fyrir 1. nóv.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við Fríðu
Lúðvíksdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta,
í síma 63 27 21.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur augiýs-
inga er fimmtudagurinn 3. nóvember.
Ath.i Bréfasími okkar er 63 27 27.
Fréttir
Geðveill maður réðst á foreldra sína og barði þá:
Umsátur
víkinga-
sveitar
Umsátursástand skapaðist fyrir
utan hús í Vogahverfi á laugardags-
kvöld þegar víkingasveit lögreglunn-
ar með alvæpni var kölluö út eftir
að tilkynning harst um vopnaðan
mann inni í húsinu.
I húsinu var tæplega fimmtugur
maður sem á við geðræn vandmál
að stríða. Hann hafði fyrr um kvöld-
ið ráðist á aldraða foreldra sína í
húsi í Laugarneshverfi með þeim af-
leiðingum að móðir hans hlaut
áverka á andliti og faðir hans rif-
beinshrotnaði. Eftir það hélt hann
heim til sín þar sem 19 ára sonur
hans er skráður til heimilis með hon-
um. Hann mun áður hafa haft í hót-
unum um að fremja voðaverk og
þótti því vissara að kalla til víkinga-
sveit lögreglunnar.
Hún kom á vettvang um klukkan
21 og laust eftir miðnætti gaf maður-
inn sig fram eftir að náðst hafði sam-
band við hann í síma. Þegar mest var
sátu um 25 lögreglumenn um húsið.
Við leit í húsinu fundust engin skot-
vopn.
Málið var sent Rannsóknarlög-
reglu rikisins og var maðurinn yfir-
heyrður þar í gærkvöld. Eins og fyrr
sagði hefur hann átt við geðræn
vandamál að stríða en hann mun
hafa veriö undir áhrifum lyfja og
áfengis þegar atvikið átti sér stað.
Að kröfu lækna var hann sendur á
sjúkrastofnun eftir yfirheyrslur.
Kveikt
í kamri
Eldur kom upp í útisalerni sem stóð á plani við Tryggvagötu síðdegis í
gær. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu leikur grunur á að kveikt hafi verið
í salerninu þar sem ijóst er að engin sú athöfn, sem að öllu jöfnu fer þar
fram, hefur í för með sér eldhættu. Mikill reykur gaus upp og bráðnaði
salernið niður á örskammri stundu. DV-mynd Sigursteinn
Eyðibýli sprengt
- tengsl við sprengiefnaþjófiiað nýlega ekki útilokuð
Eyðibýli, sem stóð skammt frá
bænum Höfða við Langavatn, fyrir
ofan Reykjavík, hefur verið sprengt
í loft upp. Eigandi býlisins hafði sam-
hand við lögreglu og tilkynnti um
atvikið. Lögreglumenn í Reykjavík
og tæknimaður frá RLR fóru á vett-
vang á laugardag og rannsökuðu
rústimar.
Eftir þá rannsókn er talið víst að
dínamít hafi verið notað í sprengjuna
en óvíst er hvenær verkið var unnið.
Margt bendir þo til að það hafi verið
í septembermánuði.
Nokkrir þjófnaðir á sprengiefni eru
óupplýstir en nýlega var að minnsta
kosti 60 kílóum af sprengiefni,
nokkru af hvellhettum, sprengivír
og sprengihnalli stolið úr sprengig-
ámi við Korpúlfsstaði. Einungis lítill
hluti þess sprengiefnis er kominn í
leitimar. Fyrir stuttu var pipuhlið
fyrir utan Reykjavik sprengt í loft
upp með dínamíti og er ekki hægt
að útiloka að þar hafi sömu menn
verið á ferð.
Fulltrúi Vinnueftirhts ríkisins
sagði í viðtali við DV sem tekið var
í kjölfar þjófnaðarins á dínamítinu
við Korpúlfsstaði að þjófamir sem
stálu sprengiefninu gætu hæglega
komið af staö „þrasusprengingu".
Nú virðist ekki útilokað að orð hans
hafi orðið að veruleika og þjófamir
eigi efni í fleiri sprengingar.
AriEdwald:
unda himni
„Ég er ekki í sjöunda himni. En
þó ljóst sé að ég hafi ekki náð því
marki sem ég stefndi að, sjöunda
sætinu, segja reyndir menn að ég
geti vel við unað. Þaö gætír
ákveðinnar íhaidssemi í niður-
stöðmini þar sem þingmenn,
fyrram borgarfullti-úar og þekkt-
ur einstakhngur raða sér í tíu
efstu sætin. Kosningabaráttan
hefur greinilega litlu breytt um
niðurstöðuna,“ sagði Arí Edwald
víð DV en hann lenti í 11. sæti
prófkjörsins.
„Ég kom inn nýr og hafði alít
að vinna. Ég tel mig eiga framtíð-
ina fyrir mér en ég hef aldrei
notið jafn mikils stuðnings og nú.
Til að ná ehefta sæti þurfti ég
nokkur þúsund atkvæði og það
er ágætisbyríun fyrir mig.“
„Ég ht á þetta sem baráttusætið
og ég hef reynslu af þvi að skipa
slík sæti. Ég sat í 11. sætinu við
borgarstjórnarstjómarkosning-
amar 1982. Það var þá baráttu-
sætið og við náðum 12 borgarfull-
trúum. Nú er ekkert annað fram
undan en að leggja til atlögu við
þetta verkefni," segir Katrín
Fjeldsted, sem lenti í 9. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins.
Guðmundur Hallvarðsson:
Getvelviðunað
„Sjöunda sætið er vonandi ekki
baráttusæti í komandi alþingis-
kosningum. Ég vona að brautar-
gengi sjálfstæðismanna veröi
betra en svo. Því er ekki að neita
að ég sóttist eftir fimmta sæti.
Mér þótti sýnt að ég yrði í einu
af þremur sætunum þar á eftir.
Ég get vel við unað og þakka þann
stuöning sem mér var veittur,"
sagði Guðmundur Hahvarðsson
sem varð i sjöunda sæti próf-
kjörsins.
Guðmundur K. Oddsson:
Ósátturviðút-
komu unga
fólksins
„Ég er ágætlega sáttur viö minn
hlut enda ekki kostað neinu til.
En ég er þó ekki sáttur við hve
lélega útkomu ungir frambjóð-
endur fengu þar sem enginn
þeirra varð meðal tíu efstu. Það
skilar sér betur í vor ef ungir
frambjóðendur eru í einu af þess-
um sætum,“ sgði Guðmundur K.
Oddsson, yngsti frambjóðandmn,
sem lentí í 14. og neðsta sæti.
Isólfur náði
Guðni Ágústsson alþingismað-
ur mun skipa efsta sætí Fram-
sóknarflokksms á Suðurlandi í
komandi alþingiskosningum. Það
varð niöurstaða kjördæmisþings
Framsóknarflokksins á Suður-
landi sem fram fór á laugardag.
í skoðanakönnun fékk Guðni
yfirgnæfandi kosningu í fyrsta
sæti eða 140 atkvæði. Isolfur Gylfi
Pálmason, sveitarsijóri á Hvols-
velh, varð í öðru.sæti með 150 at-
kvæði. í þriðja sæti varð Ólafía
Ingólfedóttir i Vorsabæ, EUn Ein-
arsdóttir í Sólheimahjálegu varð
i fjórða, Ágúst Sigurðsson í Birt-
ingaholti fimmta og Skæringur
Georgsson í Vestmannaeyjum í
sjötta sæti. Einhugur var um að
raða á listann í samræmi við niö-
urstöður skoðanakötmunarinnar.