Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1994, Síða 36
F R É T 1 • r A S K O T 1 Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur.
Ritstjórn » Auglýsl 1111 • - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 1994.
Jóhannes í Bónusi:
Ætla að f lytja
inn kjúklinga
„Þaö er alveg hrikalegt að búa við
'petta. Það hefur verið skortur á
kjúklingum í allt sumar og verðlagið
er uppi í skýjunum. Við erum að
skoöa í kringum okkur. Ætlunin er
að flytja inn soðna kjúklinga. Það er
ekkert sem hindrar innflutning
nema þessi pólitík," segir Jóhannes
Jónsson, framkvæmdastjóri Bónus.
Skortur hefur verið á kjúkhngum
í verslunum síðan í sumar og er búist
við að svo verði áfram næstu mánuð-
ina. Vegna þessa hefur Bónus ákveð-
ið að hefja innflutning á soðnum
kjúklingum sem yrðu mun ódýrari
en þeir íslensku.
Að sögn Jóhannesar er von til þess
að fyrsta sendingin komi til landsins
þegar á fimmtudaginn. Þá komi í ljós
""'hvort verðjöfnunargjaldið taki mið
af flutningskostnaðinum. Aðspurður
kveðst Jóhannes alit eins eiga von á
því að yfirvöld reyni að stöðva inn-
flutninginn meö einhverjum hætti 0
þrátt fyrir kjúklingaskort í landinu
og aö að lög heimili innflutning.
Táragas á
mann með hníf
Lögregla þurfti að beita táragasi
þegar maður brá fyrir sig hnífi á
heimili sínu í miðbænum í gærdag.
Maðurinn, sem á við geðræn
vandamál að stríða, greip til hnífs í
gær þegar ná þurfti honum af heirp-
ili sínu í gær. Hann mun ekki hafa
beint hnífnum að neinum ákveðnum
en þó var hætta talin stafa af honum.
Ættingjar mannsins óskuðu aðstoð-
ar lögreglu og var gripið til þess ráðs
að nota táragas til að afvopna hann.
Engin meiðsl urðu á fólki þegar
hann var afvopnaður og var hann
fluttur í sjúkrahús að aðgerðum
loknum.
Umferðarteppa:
Seint saltað
Fá umferðaróhöpp vegna hálku
voru tilkynnt til lögreglu í morgun.
Hins vegar myndaðist umferðar-
teppa til og frá Grafarvogi þar sem
mikil hálka hafði myndast vegna
snjókomunnar í nótt. Auk þess voru
umferðarljós óvirk á Höfðabakka.
Guðbjartur Sigfússon, yfirverk-
fræðingur hjá Gatnamálastjóra,
sagði í samtali við DV að ekki væri
búið að setja á saltvaktir hjá þeim
enn þá og því hefðu menn farið
seinna af stað en ella. Hins vegar
hefði verið búið að salta aðalleiðir
um klukkan 8 í morgun og frá og
með næstu helgi yrði komið á vökt-
LOKI
Þessi brottrekstur virðist nú vera
dulítið skrítin slysavörn!
Sátu hálfan sólarhring í bíl sem var fastur í krapastíflu á hálendinu:
Vistin var
heldur nöpur
- segir ökumaðurinn - jökulkalt vatnið náði upp á sætisbríkur
„Það myndaðist krapastífla við
bílinn og vatnsborðið hækkaði í
kring og hka inni í bílnum þannig
að vistin var svona heldur nöpur,
sérstaklega síðustu þrjá timana.
Maður óttaðist helst að blotna en
vissi þó að landið í kring myndi
taka við nógu af vatni þannig að
það hækkaði mjög hægt vatnsborð-
ið í bílnum síðustu tímana. Ég sat
þó orðið á geymsluhólfi milli fram-
sætanna síðustu tímana og félagar
mínir sátu á aftursætinu saman-
brotnu til að blotna ekki,“ segir
Jóhann Ögmundsson, einn þriggja
manna í jeppa sem festist í krapa-
stíflu í læk skammt frá Hellisá við
Lakagíga á laugardag.
Jóhann og félagar hans festu bíl-
inn í læknum skömmu fyrir hádegi
og það var svo ekki fyrr en skömmu
eftir miðnætti sem björgunarsveit-
armenn frá Kirkjubæjarklaustri og
Vík komust á vettvang. Þeir höfðu
farið frá skála í Hrossatungum
snemma á laugardagsmorgun eftir
að hafa verið þar frá því deginum
áður vegna veðurs. Veðurspá hafi
verið ágæt og því þeir því ákveðið
að láta slag standa og komast til
byggða.
Jóhann segir að bíllinn hafi fest
illa í krapasvelg og tvö hjólanna
undir bílnum hafi ekki náð festu.
Því hafi ekki verið um það að ræða
að losa hann. Þeir hafi mokað og
mokað en ekkert gengið. Tveir
mannanna í bfinum hafi fariö í um
klukkustundar göngu og ekki litist
á umhverfið né veðrið og því hald-
ið aftur að bílnum og ákveðið að
láta fyrirberast þar til hjálp bærist.
Töluverð snjókoma hafi verið og
því kolófært í næsta nágrenni.
„Við bjuggumst alltaf við hjálp.
Ég hafði haft samband við kunn-
ingja minn á Klaustri áður en við
fórum og það hafði orðið að ráði
að við myndum verða aftur í sam-
bandi seinna um daginn. Þegar
ekkert heyrðist til okkar las hann
þetta vel og vissi hvað hafði gerst.
Öll skilyrði til fjarskipta voru öm-
urleg og við náðum ekki einu sinni
útvarpssendingum. Hann lét því
björgunarsveitir vita,“ segir Jó-
hann.
Jóhann vill koma á framfæri
kæru þakklæti til björgunarsveit-
armannanna sem komu honum og
félögum hans til hjálpar. Segist
hann viss um að hann líti gíróseðla
og happdrættismiða björgunar-
sveitanna öðrum augum í framtíð-
inni en hingað til.
Það snjóaði af krafti þegar þessi mynd var tekin af jeppanum i krapastíflunni.
DV-mynd Grétar Einarsson
Veðrið á morgun:
Vægtfrostum
mestallt land
Á morgun verður norðan stinn-
ingskaldi norðvestan til á landinu
en annars breytileg eða norðlæg
átt, gola eða kaldi. Á Vestfjörðum
verður talsverður éljagangur en
dálítil snjó- eða slydduél á víð og
dreif í öðrum landshlutum. Búast
má við vægu frosti um mestallt
land.
Veðrið í dag er á bls. 44
Vinnslustöðin:
Erum allir að
leggja höf-
uðið að veði
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Poufeftfl
Suðuiiandsbraut 10. S. 686493.
Ltm
alltaf á
Miðvikudögum
- segir Sighvatur Bjamason
„Það fylgja þessum kaupum okkar
ekki aðrar hugmyndir en að Sighvat-
ur Bjarnason verði áfram fram-
kvæmdastjóri. Við veittum forstjóra
okkar fullt umboð til að ganga frá
samningi um kaup á 30 prósenta hlut
í Vinnslustööinni og þaö var gert í
gær,“ segir Hemann Hansson, stjórn-
arformaður íslenskra sjávarafurða,
um kaup félagsins á eignarhlut
Bjarna Sighvatssonar og fjölskyldu í
Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.
Hermann segir að kaupin á fyrirtæk-
inu skipti verulegu máli fyrir ís-
lenskar sjávarafurðir hf.
„Þaö er ekki auðvelt að nefna nein-
ar tölur um það hversu mikla hlut-
deild er um aö ræða. Vinnslustöðin
er fjórða stærsta sjávarútvegsfyrir-
tæki á landinu þannig að það hlýtur
að skipta miklu máli,“ segir Her-
mann.
Með þessari breytingu eru íslensk-
ar sjávarafurðir stærsti hluthafínn,
næst kemur Olíufélagið hf. með 17
prósent, þá kemur Haraldur Gísla-
son í Vestmannaeyjum með 15 pró-
sent og Sæhamar hf., hka í Eyjum,
meö um 10 prósenta hlut.
„Það eru einhverjir sem þykjast sjá
í þessu einhverja pólitík, það er mik-
ill misskilningur. Þetta eru bara við-
skiptasjónarmið og sú krafa hvílir á
okkur sem komum að þessu máh að
við skilum árangri. Við erum alhr
að leggja höfuöið að veði,“ segir Sig-
hvatur Bjarnason.
Makaskiptin:
Lausir endar
- hótelinu lokað á morgun
Að sögn Margeirs Daníelssonar,
framkvæmdastjóra Samvinnulífeyr-
issjóðsins, eru ennþá nokkrir lausir
endar í viöræðum um makaskipti
sjóðsins og íslandsbanka á Sam-
bandshúsinu við Kirkjusand og
Holiday Inn hótehnu og tveimur
hæðum í Húsi verslunarinnar. Til
stóð að ganga frá þessum samning-
um um helgina en það tókst ekki.
Margeir bjóst við að máhð leystist
fljótlega. Þróunarfélagið hefur verið
í viðræðum við væntanlega eigendur
hótelsins um kaup á því og rætt er
um að leigja það síðan Flugleiðum.
Wilhelm Wessman, hótelstjóri á
Holiday Inn, sagði við DV í morgun
að hótehnu yrði lokað á morgun eins
og til hefði staðið. Hann sagðist ekk-
ert hafa heyrt í Flugleiðamönnum
og taldi allt í lausu lofti um að hótel
yrði rekið í húsnæðinu.
4-