Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1994, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Heilbrigðisráðherra um sjúkraliðadeilima:
Mat ríkisins að til-
ef ni sé til kjarabóta
Þjófaríóðagoti
gleymdu bílnum
Lögreglan í Reykjavik gómaöi
tvo innbrotsþjófa aðfaranótt
sunnudags sem höfðu brotist inn
í bílskúr viö Kaplaskjólsveg.
Þegar lögreglan kom á vettvang
hlupu þjófarnir í burtu en
gleymdu bílnum sínum í óðagot-
inu. Eftir skamma stund kom
annar þjófurinn til baka og gaf
sig fram við lögregluna. Félaginn
náðist skömmu síðar.
Viö eftirgrennslan í bílnum
kom margvíslegur varningur í
ljós sem þeir höfðu tekið úr bíl-
skúmum og víðar. Máhð var sent
til rannsóknar RLR en ekki er
um góðkunningja lögreglunnar
að ræða.
Falsaðurseðill
Ungur drengur kom inn í versl-
un í Rimahverfi í Reykjavík um
miðjan dag á laugardag og reyndi
að versla með þúsund króna
seðli. Verslunareigandinn sá
strax að hér var um falsaðan seð-
il að ræða og kallaði til lögreglu.
Drengurinn gaf þær skýringar að
hann hefði fundið seðilinn.
Að sögn lögreglu þótti seðilhnn
nokkuð vel gerður en þó var auð-
veldlega hægt að sjá að hann
væri falsaður.
Bflstolið
íHraunbæ
Bíl var stoUð frá Hraunbæ 6 í
Reykjavík milU klukkan sjö og
hálftóU' á laugardagskvöld. Um
er að ræða vínrauðan Daihatsu
Applause, árgerð 1988, með
skráningamúmerið JF-645. Þeir
sem telja sig vita eitthvað um
máUö em beðnir aö hafa sam-
band við lögregluna í Reykjavik.
Peningumstolið
úrstrætisvagni
Peningatunnu var stoUð úr
strætisvagni þar sem hann stóð
við Hlemm í Reykjavík síðdegis á
laugardag. Um var að ræða nokk-
ur þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu í gær hafði ekki tekist aö
hafa hendur í hári þjófsins eða
þjófanna.
„Eg hef þungar áhyggjur af verk-
faUi sjúkraliða og hef rætt við þá og
fengið að fylgjast með framgangi
verkfaUsins. Mér sýnist því miður
ekki-hUla undir það að samningar
séu að takast. Ég hef rætt við fjárr
málaráðherra og lýst áhyggjum mín-
um yfir þessu ástandi en forræðið
er náttúrlega í höndum samninga-
nefndar ríkisins og fjármálaráðu-
neytisins. Mér sýnist því miður að
lítiö þokist ef eitthvað er,“ segir Sig-
hvatur Björgvinsson heUbrigðisráð-
herra um verkfaU sjúkrahða.
„Samninganefnd ríkisins segist
hafa gert tilboð og bíði eftir gagntU-
boði. Sjúkraliðar segja að tílboðið
sem þeir hafa fengið sé svo langt frá
þeirra hugmyndum að þeir sjái ekki
ástæðu til annars en að ítreka sínar
kröfur. Ég trúi ekki öðru en aö þaö
gangi saman með þessum aðUum því
að báðir gera sér grein fyrir hve núk-
ið er í húfi. Það er mat samninga-
nefndar ríkisins aö það sé tUefni til
kjarabóta fyrir þennan láglaunahóp
og þá er bara spurningin hvar menn
geta mæst,“ segir heilbrigðisráö-
herra.
Landspítalinn:
Áhrifa fer að
gætaílok
vikunnar
-ágöngudeild
„Áhrifa verkfallsins er í raun
og veru ekki farið að gæta svo
mikið vegna þess að allar inn-
lagnir nema bráðaimUagnir voru
stoppaöar og sjúkUngar útskrif-
aðir aðeins fyrr en ella. Það eru
helst þeir sem bíða eftir innköll-
un sem finna fyrir verkfalhnu til
lengri tíma litið en sú pressa er
ekki komin strax. Þörfin er lengi
að myndast. Við finnum ekki fyr-
ir áhrifum verkfaUsins fyrr en í
lok þessarar viku,“ segir Guörún
Karlsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri á öldrunarlækn-
ingadeildum Landspítalans, um
áhrif verkfaíls sjúkraUða á starf-
semi spítalans.
„Bráðavaktin hefur verið mjög
róleg þannig að starfsemin geng-
ur ótrúlega vel. Fólk er ekki farið
að finna fyrir verkfallinu að
neinu ráði því að við höfum bara
dregið innlagnir og fólk er vant
að þurfa að bíða. Fyrir verkfaUiö
útskrifuðum við tiu sjúkUnga og
tæmdum þannig hálfa deUd með
því að taka ekki inn nýtt fólk.
Sama gerðist á lyflæknis- og
handlækningadeildum. Mesta
álagið er á hjúkrunarfræðingana
og auðvitað kemur að því að þeir
ráða ekki lengur við ástandið,"
segir hún.
Vonasteftir
dimi í dag
Gert er ráð fyrir að dómur verði
kveðinn upp í Félagsdómi í dag
eða á morgun í máU Landakots-
spítala og Sjúkraliðafélags ís-
lands vegna ágreinings um neyð-
arUsta. Lögmaður Sjúkraliöafé-
lagsins leggur fram greinargerð í
máU Hrafnistu i Hafnarfirði í dag
og fær að öllum líkindum frest tU
að vinna greinargerð vegna neyö-
arlista á Sunnuhlíð í Kópavogi.
Ágreiningur er um hvort gerðir
hafi veriö neyðarUstar sem leggja
ætti til grundvallar í þessum
málum.
Kristin Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags ísiands, hitti Sighvat Björgvinsson heilbrigðisráðherra fyrir
helgi og skýrði honum frá helstu kröfum sjúkraliða. Engin skýr niðurstaða fékkst á fundinum en heilbrigðisráð-
herra hefur rætt málið viö fjármálaráðherra og telur aö tilboð samninganefndar ríkisins upp á þriggja prósenta
launahækkun sýni aö ríkið telji ástæðu til kjarabóta fyrir sjúkraliða. DV-mynd ÞÖK
í dag mælir Dagfari
Guðmundur góði
Það fór svo sem þjóðin vUdi. Guð-
mundur er hættur. Tók hnakk sinn
og hest og kvaddi kóng og prest.
Nú hefur verið hamast í því í
marga mánuði að Guðmundur
Árni segði af sér. Þar hefur maður
gengið undir manns hönd. Sam-
starfsmenn hans í Alþýðuflokkn-
um hafa lagt að honum, á Alþingi
hefur verið þrýst á hann og siða-
postular þjóðarinnar hafa ekki
unnt sér hvíldar við að bola Guð-
mundi Áma úr embætti.
Guömundi Áma er boriö á brýn
aö hann hafi verið siðlaus í emb-
ættisfærslum sínum. Hann var
hjálpsamur við frænkur sínar sem
er auðvitað hið alvarlegasta mál.
Guðmundur Árai borgaði mönn-
um laun sem vitaskuld var höfuö-
synd. Ráðherrann leyföi aðstoöar-
manni sínum að sitja í nefndum
sem vom þar að auki launaðar. Það
hefur aldrei gerst áður að því er
skiija má af umræðunni.
Alvarlegasti glæpur Guðmundar
Árna er þó sá að hafa staöið fyrir
hstahátíð í Hafnarfirði sem ekki
bar sig fjárhagslega. Það er ægileg-
ur verknaður og hefur verið til
umíjöllunar í bæjarstjórn Hafna-
fjarðar og í fjölmiðlum nær látlaust
undanfama daga. Guðmundur sat
ekki í stjórn þessarar listahátíðar
og var ekki framkvæmdastjóri
hennar og hann kom heldur ekki
fram á listahátíðinni, nema sem
hver annar gestur.
Það breytir hins vegar ekki því
að Guðmundur er talinn bera fuha
ábyrgð á þeirri fjármálaóreiðu,
sem hann kom hvergi nærri, og
þetta getur þjóöin ekki fyrirgefið
Guðmundi, frekar en önnur góð-
verk og óviljaverk sem hann hefur
drýgt.
Ríkisstjómin hefur algjörlega
verið lömuð vegna nærveru Guð-
mundar Árna og Alþýðuflokkur-
inn er að hrynja saman í ekki neitt.
Þessir menn eru hættir að geta
mætt á fundum þar sem Guðmund-
ur Ámi sést.
Það sem er þó sýnu verst er sam-
viska þjóðarinnar sem er að naga
hana í sundur. Þjóðin þolir ekki að
horfa upp á að Guðmundur Ámi
skuh hafa verið ráðherra með allar
þessar syndir á bakinu. Þjóðin er
góðu vön. Hún hefur haft heiðar-
lega, samviskusama og siðprúða
stjórnmálamenn um langan aldur
og veit ekki til þess að þeir hafi
nokkru sinni gerst brotlegir gagn-
vart almennu siðgæöi. Þjóðin vih
heilsteypta og grandvara ráðherra
sem aldrei gera neinum greiða og
aidrei koma nálægt fjármálaóreiðu
og því er það sem hin íslenska þjóö,
með dyggri hjálp fjölmiðla, hefur
látið reiði sína og hneykslan bitna
á Guðmundi Áma Stefánssyni.
Það er þessi þjóðarkrafa, þessi
þunga alda réttlætis og siðgæðis,
sem nú hefur knúið Guðmund
Árna til afsagnar.
Nú hlýtur Alþýðuflokkurinn að
ná sér á strik. Þegar varaformaður
flokksins er ekki lengur til trafaia
fyrir flokkinn og hefur dregið sig í
hlé frá pólitíkinni er von til þess
að kratar nái vopnum sínum. Vara-
formenn em ágætir ef þeir skipta
sér ekki af póhtík. Ef þeir sitja ekki
í ríkisstjóm. Ef þeir sneiða hjá því
að draga flokkinn sinn niður í svað-
ið. Þá eru þeir ágætir. Þetta hefur
Guðmundur Ami gert og nú má
telja öruggt að hann verði endur-
kjörinn varaformaöur á næsta
flokksþingi, vegna þess aö hann
hlýtur að afla sér mikilla vinsælda
meöal flokksmanna með því að
hætta að skipta sér af pólitík.
Ríkistjórnin hlýtur líka að ná sér
á strik eftir að hún losnaöi viö
skemmda ephð. Nú sitja siðprúðir
og silkihreinir ráöherrar eftir í rík-
isstjóm Davíös Oddssonar, ráð-
herrar, sem enginn blettur hefur
falhð á og geta þvegið hendur sínar
af syndum og afglöpum Gumúndar
Áma.
Svo ekki sé nú talaö um Guð-
mund Áma, sem hefur gert stjóm-
inni, flokknum og þjóðinni þann
greiða, að hætta sem ráðherra. Hér
eftir verður hann kallaður Guð-
mundur góði. Það er góður maður
sem tekur tilht til þjóðarinnar og
játar af iðrandi yfirbót. Sá maöur
hefur hreina samvisku enda hefur
Guðmundur alltaf haldið því fram
að hann hafi hreina samvisku.
Hann hefur ekkert gert af sér.
Hann er bara að gera það fyrir
flokkinn og þjóðina að segja af sér.
Höfðinglegra getur það ekki ver-
ið. En hvað gerir maður ekki fyrir
málstaðinn?
Dagfari