Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 Óhugnanlegt að horfa ; upp á svona atburði - segir Júlíus Gestsson, yfirlæknir á Akureyri, sem var við friðargæslustörf í Bosníu í hálft ár Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þótt viö sem þarna störfuðum höfum ekki haft sjálf stríðsátökin beint fyrir augunum geri ég mér óneitanlega betur grein fyrir því en áður sem þarna fer fram og ekki síð- ur fyrir afleiðingum stríðsins. Þetta er raunveruleikinn en fyrir þessu fólki er stríð ekki eins fráleitt og það er fyrir okkur. Sú mikla grimmd sem striðinu fylgir er síðan hluti þess að veikja mótstöðu andstæðingsins. Það er vissuiega óhugnanlegt að horfa upp á að svona atburðir eigi sér stað en þeir eru staðreynd." Þetta segir Júlíus Gestsson, yfir- læknir bæklunar- og slysadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, en Júlíus var einn þriggja íslendinga sem dvöldu á stríðssvæðinu í Bosníu í fyrrum Júgóslavíu í 6 mánuði á síð- asta ári. íslendingarnir voru þar sem hluti norska hersins í friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna. Þeir voru ráðnir af utanríkisráðuneyti íslands og komu fram undir íslenskum fána þótt þeir heyrðu undir Norðmenn og báru íslenskan fána á herbúningum sínum. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem ísland tekur þátt í friðargæslu á ófriðarsvæði með slíkum hætti. Áhugi á hjálparstarfi „Það voru margir þættir sem ollu því að ég ákvað að taka þátt í þessu verkefni og erfitt að segja til um hver þeirra vó þar þyngst. Ég var búinn að ákveða að taka mér leyfi frá störf- um á árinu sem nú er nýbyrjað, bæði til að skipta um umhverfi eftir 12 ára starf á Fjórðungssjúkrahúsinu og eins til að kynnast öðrum hliðum á mínu starfi," segir Júlíus um til- drög þess að hann réðst í þetta verk- efni. Júlíus segist alltaf hafa haft áhuga á að vinna við hjálparstarf af ein- hveiju tagi. „Ég sá síðan í janúar á síðastá ári auglýsingu í blöðum og tveimur mánuðum síðar var ég far- inn til Noregs til undirbúnings fyrir ferðina til Bosníu. Auk mín fóru læknir og hjúkrunarfræðingur frá íslandi og fór okkar var tillegg ís- lands til friðargæslu Sameinuðu þjóðanna." Námskeið hjá hernum íslendingarnir fóru beint á undir- búningsnámskeið hjá norska hem- um fyrir heilbrigöisstarfsfólk sem ekki hafði gegnt herþjónustu og komu þar fram sem foringjar. Þeir kynntu sér starfsemi hersins og þátt- töku hans í friðargæslustörfum, bráðahjálp við stríðsaðstæður og vopnaburð svo eitthvað sé nefnt. Síð- an tók við annað námskeið fólks sem fara átti til starfa á herspítalanum skammt utan borgarinnsr Tusla og námskeið fyrir þá sem gegndu for- ingjastöðum. Sem dæmi um umfang herspítala norska hersins skammt frá Tusla sem Júlíus og hinir íslend- ingamir störfuðu á má nefna að þar starfa um 240 manns og þar er einn- ig staðsett þyrlusveit. „Ég vissi ekki við hverju átti að búast þegar við hófum ferðina til Bosníu 2. maí. Við héldum til borgar- innar Spht og daginn eftir að þangað var komið var haldið af stað í her- flutningabílum og ekið í 9 klukku- tíma í ryki og hita og síðan í kulda er á ferðina leið. Á leiðinni fóm að koma í ljós ýmis ummerki stríðsins eins og sundurskotin og yfirgefin hús. Það vakti hins vegar undmn mína að sjá fólk á ferli meðfram veg- hvað ég væri búinn að koma mér út í og vissi ekki hvað beið mín þótt ég hefði séð myndir frá átakasvæðun- um og vissi um átökin," segir Júlíus. Hann segir að eftir tveggja daga og 17 klukkustunda ferðalag hafi verið komið á áfangastað, á herspítala norska hersins skammt utan borgar- innar Tusla. Starfsfólk herspítalans þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að vera til taks fyrir friðargæsluliðanna ef þeir slasist en 1 borginni sjálfri er stórt sjúkrahús sem tekur á móti slösuð- um borgumm og hermönnum frá . stríðasvæðunum. „Það hafa verið um 25 km til átaka- svæðanna í hvora átt. Við heyrðum af og til sprengjugný og fyrir kom að skotið var á borgina. En sjálf stríðsátökin voru ekki í námunda við okkur þótt stutt væii í afleiðingarn- ar.“ Júlíus fór nokkrum sinnum í „heimsóknir" eins og hann kaUar það, á sjúkrahúsið í Tusla og aðstoð- aði þar á bæklunardeild. „Þessi spít- ah fékk til meðferðar þá einstaklinga sem voru verst útleiknir og á bækl- unardeildina komu aðahega sjúkl- ingar sem voru með hryggjaráverka . og áverka á úthmum. Á einum sólar- hring komu t.d. á bæklunardeildina 27 shk tilfelli og allar deildir sjúkra- hússins voru yfirfullar. Sjúkrahúsið var í sæmilegum húsakynnum en . stríðsástandið hafði hins vegar sett merki sín á hlutina. Sjúkrahúsið hafði ekki verið málað í þau tvö ár sem stríðið hafð staðið yfir, sprengj- ur höfðu fallið við húsið og það vant- aði gler í suma gluggana, fhsar voru farnar að losna af gólfum og fyrir kom að rafmagn og vatn var ekki til staðar." Július Gestsson i sumarbúningi friðargæsluliða norska hersins, með is- lenska fánann á erminni. unum en fólkið virkaði rólegt að sjá og ágætlega tilhaft. Við sátum hins vegar á flutningabílunum í skotheld- um vestum og með hjálma en urðum sem betur fer ekki vör við nein átök. Hins vegar ókum við fram hjá bíl- flökum utan vegar og mættum lest- um bifreiða sem fluttu hjálpargögn." í sprengjugný „Ég hugsaði að sjálfsögöu til þess GEISLADISKAR FRÁ KR. 490.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.