Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Síða 52
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN;
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL 6-SLAUGAROAGS- OG MÁNUOAGSMOFIGNA
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995.
Siglufj arðarmálið:
Yfirlögreglu-
þjónn krefst á
annan tug
milljóna
„Viö erum í sambandi við ríkislög-
mann og menn eru reiðubúnir að
ræða þessi mál. Það verður tekið upp
í næstu viku. Ég mun láta reikna
nákvæmlega út hvert tjónið kunni
að vera miðaö við að Gunnar hefði
gegnt yfirlögregluþjónsstarfmu
áfram við eðlilegar aðstæður. Það
leikur enginn vafi á að ef ekki næst
viðunandi samkomulag um bótarétt
verður að leita til dómstóla. Ég geri
mér góðar vonir um að ráðuneytið
taki vel í að leysa þessa hluti,“ sagði
' Jónatan Sveinsson, lögmaður Gunn-
ars Guðmundssonar, fyrrverandi yf-
irlögregluþjóns á Siglufirði, við DV.
Hæstiréttur sýknaði Gunnar af
ákæru ríkissaksóknara um aðild að
svokölluðu hestakerrumáli.
Jónatan mun fyrir hönd skjólstæð-
ings síns krefjast hárra bóta vegna
röskunar á högum og miska Gunnars
vegna sakamálsins. Miðað við að
Gunnar stóð á fimmtugu þegar hon-
um var vikið úr starfi og reiknað er
með að hann hefði gegnt starfi sínu
-sem yfirlögregluþjónn til 67 ára ald-
urs má búast við að kröfurnar verði
á annan tug milljóna króna. Gunnari
var vikið úr starfi í október 1993 en
rannsókn hófst í maí sama ár.
„Það eykur á hans hremmingar að
honum var vikið frá starfi til fulln-
ustu undir rannsókn og áður en
ákæra var gefin út,“ sagði Jónatan.
Auk krafna vegna skertra launa
sagði Jónatan að allt málið heföi
mjög raskað stöðu Gunnars og
mannorði. Vegna þess yrði miska-
bóta einnig krafist. Jónatan sagði ef
menn muni ganga til samkomulags
við ríkið um bætur sé vel hægt að
hugsasérmillilendingu. -Ótt
1 CE2I33ÍII I -Broqk ■
(rompton
RAFMÓTORAR
Vóulsen
SuAuriandsbraut 10. S. 686489.
LOKI
Þetta hafa þá verið sterahundar!
Sonur fékk foreldra sína til að flytja rriikið af sterum til landsins:
27 þúsund steratöflur
faldar í leikföngum
- ijórða stóra steramálið - enn hefur ekki verið dæmt í neinu þeirra
Fíkniefnadeild Tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli lagði hald á 27
þúsund steratöflur og um 70 amp-
úlur með sterum í í fyrradag. Ster-
arnir fundust í farangri rétt rúm-
lega fimmtugra hjóna og tæplega
sextugrar vinkonu þeirra en þau
voru að koma frá Bangkok gegnum
Kaupmannahöfn.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
steins Haraldssonar, tollfulltrúa
fíkniefnadeildar Tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli, voru efnin
mjög vel falin.
„Hvert og eitt þeirra var með í
farangri sínum leikfang sem er eins
konar loðinn tuskuhundur og
krakkar nota til að hrjúfra sig upp
að. Að öllu jöfnu eru þeir fylltir
með bómull en í stað hennar voru
hundarnir fylltir með steratöfl-
um,“ segir Þorsteinn. Þá var amp-
úlunum haganlega komið fyrir í
kassa sem í voru barnafot.
Máhð var sent fíkniefnadeild lög-
reglunnar til rannsóknar og hand-
tók hún son hjónanna. Hann er á
þrítugsaldri og viöurkenndi viö yf-
irheyrslur að hafa fjármagnað inn-
kaupin og fengið foreldra sína og
vinkonu þeirra til að flytja sterana
til landsins. Allt fólkið hefur verið
yfirheyrt og því sleppt.
Rannsóknarlögregla ríkisins á að
fara með rannsókn steramála sem
upp koma hér á landi. Að sögn
Kristjáns Inga Kristjánssonar, lög-
reglufulltrúa í flkniefnadeild, er
það umhugsunarefni hvort ekki sé
ástæða til að færa mál af þessu tagi
undir fíkniefnadeild lögreglu og
taka steramál sömu tökum og
Ómar Smári Ármannsson, yfirmaður forvarnadeildar lögreglunnar, við sterana sem hald var lagt á. Þeim var
haganlega komið fyrir inni í barnaleikföngum þannig að erfitt var aö finna þá. Hér er um að ræða næststærsta
steramál sem upp hefur komið hér á landi. DV-mynd Brynjar Gauti
fíkniefnamál. Segir hann jafnframt
að farið sé að bera á því að sterar
flnnist við húsleitir fíkniefnadeild-
ar í borginni.
Samtals komu þrjú steramál upp
á Keflavíkurflugvelli á seinasta ári
og var eitt þeirra stærra en þaö
mál sem hér er fjallað um. Samtals
var lagt hald á rúmlega 44 þúsund
steratöflur í þeim málum og rúm-
lega 8 þúsund ampúlur. Ákæra
hefur verið gefin út í einu málanna
en ekki hefur tekist að birta við-
komandi hana þar sem hann er
staddur í Taílandi. Hinum málun-
um tveimur var vísað aftur til RLR
frá saksóknara.
„Umfang þeirra mála sem upp
hafa komið á Keflavíkurflugvelli
benda til þess að þetta sé vandamál
og neysla á sterum hér á landi gríö-
arlega mikil. Það sem tekst að
leggja hald á er einungis hluti þess
sem flutt er inn og tölurnar gefa til
kynna að herða þarf mjög það eftir-
lit sem nú er til að stemma stigu
viö þessu. Dómskerfið og lögregla
þurfa jafnframt að auka skilvirkni
í þessum málum og það þarf að
gefa út refsirammann með dómi,
sem nauðsynlegt er fyrir okkur að
starfaeftir,“segirÞorsteinn. -pp
íslenski listinn í
laugardagsblaði
Þær breytingar verða nú að ís-
lenski listinn, þar sem kynnt eru 40
vinsælustu dægurlögin á landinu,
verður eftirleiðis birtur í DV á laug-
ardögum í stað fimmtudaga.
Fyrir utan listann verður tónlistar-
tengt efni á opnu, ýmsar stuttar frétt-
ir, tónlistargetraun, nafn vikunnar
og vinsælustu plötur á íslandi, Lon-
don og New York.
- sjá bls. 16-17
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Snjókoma og éljagangur
Á morgun verður austan- og norðaustanátt, él um landið norðanvert en úrkomulítið syðra. Frost 5-16 stig.
Á mánudaginn verður hvöss norðaustanátt. Snjókoma eða él austanlands, éljagangur norðanlands en að mestu þurrt suövestan til. Frost 1-10 stig.
Veðrið 1 dag er á bls. 53