Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
37
Elísabet Davíðsdóttir, Fordstúlkan 1994:
; Ætlar að starfa
í Þýskalandi
„Mig langar helst til aö starfa í
Þýskalandi og býst við aö ég fari
þangað fljótlega," segir Elísabet Dav-
íösdóttir, Fordstúlkan 1994, í samtali
við DV. Elísabet hefur veriö á samn-
ingi hjá Ford Models í París en um-
boðsskrifstofan vildi aö hún færi til
Mílanó til starfa. „Ég held aö Mílanó
henti mér ekki strax, aö minnsta
kosti vil ég fyrst fara til Þýska-
á lands,“ sagði Elísabet.
" Hún hefur stundaö nám í mennta-
skólanum við Hamrahlíð í haust og
á byrjaöi námið eftir áramótin líka
* meðan hún er aö ákveöa sig með
áframhaldið. Elísabet hefur hug á að
a starfa við fyrirsætustörf enda hefur
y hún náð að komast á samning sem
flestar ungar stúlkur dreymir um.
Elísabet fór sl. sumar til Hawaii þar
sem hún tók þátt í keppninni Super-
model of the World. Stúlkur frá 33
löndum tóku þátt í keppninni sem
fram fór á glæsieyjunni Maui og þær
gistu á lúxushótelinu Grand Wailea.
„Þaö var æðislegt ævintýri að fá að
vera þarna,“ segir Elísabet sem á
góðar minningar frá þessari
skemmtilegu ferð.
Danska tímaritið Alt for damerne
sendi blaðamann og ljósmyndara
með danska keppandanum, Evu
Moos. Eva og Elísabet voru saman í
herbergi sem var heppilegt fyrir okk-
Iar stúlku því hún talar dönsku eins
og innfædd eftir að hafa búið þar um
margra ára skeið. Alt for damerne
Ihefur birt frá þessari ferð í tveimur
tölublöðum og bæði gert keppninni
og hótelinu, sem fékk heila grein um
Isig, skil.
Sagt er að kvikmyndastjörnurnar
Sharon Stone og Geena Davis séu
meðal þeirra Hollywood-stjarna sem
hafa dvalið á eyjunni Maui. Á hótel-
inu The Grand Wailea geta gestir
upplifað allan þann lúxus sem til er.
Á hótehnu er hægt að fara í alls kyns
nudd og böð og starfsfólkið stjanar
við gestina. Til dæmis er hægt að
velja um að fara í fimm jurtaböð sem
þykja mikil heilsubót fyrir líkamann.
Elísabet prófaði að sjálfsögðu slík
heilsuböð. Alt for damerne gerir hót-
ehnu mjög góð skil og blaðamaður
þess prófaði allan þann lúxus sem í
boði var.
Hótelið er klætt marmara og mál-
■ verk, sem skreyta salina, eru eftir
listamenn eins og Botero, Leger og
Picasso. Garðurinn umhverfis hótel-
ið er ævintýri líkast með gosbrunn-
um, blómagörðum, sundlaugum,
fiskitjörnum, brúökaupskapehu og
lyktandi trjágróðri.
800 herbergi eru á Grand Wailea,
þar af 53 svítur, og verðið fyrir nótt-
ina er allt frá 20.000 krónum fyrir
tveggja manna herbergi upp í 120
þúsund krónur fyrir tveggja her-
bergja svítu. Fyrir þá sem vilja vera
á ströndinni er margt í boöi, þar eru
vatnsrússíbanar, tennis, seglbretti,
golf, vatnaeróbikk og dýfingar, svo
að eitthvað sé nefnt. Annað slagið
koma þjónar og sprauta köldu vatni
yfir strandgesti til að kæla þá örlítið
í hitanum.
Ekki hefur verið ákveðið hvar Su-
permodelkeppnin verður á þessu ári.
Elísabet og danska stúlkan Eva Moos sýna létta kjóla
á tiskusýningu fyrir utan lúxushótelið Grand Wailea á
Hawaii þar sem rika og fræga fólkið kemur og dvelur
i frium sínum.
Hægt er að velja um fimm heilsuböð á Grand Wailea
hótelinu á eynni Maui auk margs konar annarrar lúxus-
þjónustu.
McDonald's leikurinn er skemmtilegur leikur þar sem
þátttakendur eiga þess kost að vinna stjörnumáltíð fyrir
tvo á McDonald's. Það eina sem þú þarft að gera er að
hringja í síma 99-1750 og svara fimm laufléttum
spurningum um veitingahús, skemmtistaði og viðburði
helgarinnar. Svörin við spurningunum ;er að finna í
blaðaukanum
DV-helgin sem fylgir DV á föstudögum.
DREGIÐ DAGLEGA ÚR POTTINUM!
Daglega fró föstudegi til fimmtudags verða fimm heppnir
þátttakendur dregnir úr pottinum og hreppa þeir hinir
sömu stjömumáltíð fyrir tvo á McDonald's. Allir sem
svara öllum fimm spurningunum rétt komast í pottinn.
Munið að svörin við spurningunum er að finna í
blaðaukanum DV-helgin. Nöfn vinningshafa
verða birt í DV-helgin í vikunni á eftir.
Suöurlandsbraut 56. Sími 581-1414
Opið daglega frá 10-23.00
<J>
CT)
OO
co
CL)
xO
<C
MYNDBANDAGETRAUN
BONUSVIDEO
9 9*17*50
Myndbandagetraun Bónusvídeós er
skemmtilegur leikur þar sem þátttakendur eiga
þess kost aö vinna gjafakort meö úttekt á þrem
myndbandsspólum frá nýrri og stórglæsilegri
myndbandaleigu Bónusvídeós aö Nýbýlavegi
16. Það eina sem þarf aö gera er að hringja í
síma 99-1750 og svara fimm laufléttum
spurningum um myndbönd. Svörin viö
spurningunum er aö finna í blaðauka DV um
dagskrá, myndbönd og kvikmyndir sem fylgir DV
á fimmtudögum.
Dregið daglega úr pottinum!
Daglega frá fimmtudegi til miövikudags verða
nöfn þriggja heppinna þátttakenda dregin úr
pottinum og hreppa þeir hinir sömu gjafakort
frá Bónusvídeói. Allir sem svara öllum fimm
spurningunum rétt komast í pottinn. Muniö aö
svörin við spurningunum er aö finna í
myndbandaumfjöllun DV á fimmtudögum.
Nöfn vinningshafa verða birt í blaöauka DV um dagskrá,
myndbönd og kvikmyndir f vikunni á eftir.
BONUSVIDEO
Nýbýlavegi 16. Sími 564-4733
Opiö vlrka daga frá 10 - 23.30.
Laugard. og sunnud. frá 12 - 23.30
%