Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Qupperneq 30
38
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
Sviðsljós
Katy Kass gerir það gott sem tískuhönnuður. Katy fjögurra ára í faðmi móður sinnar, Joan Collins.
Dóttir Joan Collins:
Ölst upp í fata-
skáp móðurinnar
„Eg ólst upp í fataskápnum hennar
mömmu. Ég eyddi miklum tíma þar
því ég hafði ákaflega gaman af því
að prófa fotin hennar og háhæluðu
skóna. Fataskápurinn hennar var
fullur af fallegum fötum úr silki, sat-
íni og öðrum glæsilegum efnum. í
skápnum var líka alls kyns skraut.
Líklega vaknaði áhugi minn á tísku-
hönnun þegar ég var barn.“ Þetta
segir Katy Kass, 22 ára dóttir kvik-
myndastjörnunnar frægu, Joan Coll-
ins, og Rons Kass.
Skömmu fyrir jól var fatnaöur
hannaður af Katy á sýningu í Lon-
don. Þar sáust frægar manneskjur
eins og Shirley Bassey, Anneka Rice,
Joanna Lumley og svo auðvitað Joan
Collins.
Þegar Katy var átta ára varð hún
fyrir bíl og meiddist alvarlega á
höfði. Hún var meðvitundarlaus í 38
daga. Katy segir aö hún muni eigin-
lega ekkert frá tímanum fyrir slysið.
Fyrir íjórum árum flutti hún frá Los
Angeles til Evrópu og kveðst ánægð
með þá ákvörðun. Hún segir Holly-
wood ákaflega flatneskjulega.
Síðustu flmm árin hefur Katy verið
með Jeff Stewart sem er 35 ára og
þar með tveimur árum eldri en nýj-
asti kærasti móður hennar, lista-
verkasalinn Robin Hurlstone.
Katy starfar nú með Maryam Owji,
hönnuði sem hefur unnið fyrir Joan
Collins og fleiri aðrar þekktar stjörn-
ur. Þær sjá sjálfar um alla vinnuna.
Að sögn Katy hafði móðir hennar
áhyggjur af því hvað það tók dóttur-
ina langan tíma að finna út hvað hún
vildi leggja fyrir sig. „En sem betur
fer er ég komin á rétta hillu og ég
er viss um að mamma samgleðst
mér.“
Brad Pitt:
Skapaður fyrir
kvikmyndir
Það hefur verið sagt um Brad Pitt,
sem leikur á móti Tom Cruise í Við-
tali við vampíru, að hann hafi svo
mikla útgeislun að hann sé beinlínis
skapaður fyrir kvikmyndir. Sjálfur
segir hann aö kvikmyndir séu flókn-
ar og að fólk geti ekki ímyndað sér
hvað þurfi til að gera góða kvik-
mynd. Það sé miklu erfiðara en menn
haldi að láta hlutina lita eðlilega út.
Brad kveðst jafnframt feginn þegar
tökum er lokið svo að hann geti orð-
ið hann sjálfur aftur.
Á yngri árum nam Brad, sem nú
Brad með tékkneskri vinkonu sinni.
er 31 árs, fjölmiðlafræði með áherslu
á auglýsingar. Hann komst hins veg-
ar að því að þetta vildi hann ekki
sýsla með í framtíðinni og hélt til Los
Angeles. Hann segir þó háskólaárin
hafa veriö góðan tíma og að hann
hafi í raun lært meira af því að
standa á eigin fótum heldur en af
bókunum.
í Los Angeles fékkst hann viö ýmis
störf áður en hann fékk hlutverk í
sjónvarpsmynd sem Juliette Lewis
lék einnig í. Hún var þá sextán ára.
Þau fóru að búa saman en skildu
eftir þrjú ár. „Ég elska enn þessa
konu,“ sagði Brad nýlega í viötali í
tímariti. „Hún er snillingur og við
áttum góðar stundir saman. Þetta
var eitt besta samband sem ég hef
verið í. En ástin sigrar ekki alit, eins
og manni var kennt í gamla daga.“
Núverandi kærasta Brads Pitts er
tékknesk og heitir Jitka Pohlodek.
Hún er dökkhærð og fíngerð og þyk-
ir ákaflega falleg. Þeir sem sáu þau
við frumsýningu myndarinnar Leg-
ends of the fall, þar sem Brad leikur
aðalhlutverkið, sögðu þau hafa ljóm-
aö af ást.
í næstu mynd sinni leikur Brad
lögreglumann sem eltist vdð íjölda-
morðingja og bíða margir spenntir
eftir að sjá hann í allt öðruvísi hlut-
verki en venjulega.
Brad Pitt er ein skærasta Hollywoodstjarnan í dag.
Ólyginn
sagði...
að kvikmyndaleikkonan
Glenn Close hefði lýst því yfir
að hnifurinn sem hún réðst með
á Michael Dougias í kvikmynd-
inni Fatal Attraction héngi á eld-
húsveggnum heima hjá sér.
„Það minnir fólk á hver býr
hér,“ á Glenn að hafa sagt.
... að Michael Keaton væri nið-
urbrotinn eftir að kærastan hans,
Courteney Cox, hefði ttutt frá
honum. Hann hefði reynt að fá
hana til að kvænast sér og stotna
fjölskyldu en á þvi hefðl hún ekki
áhuga.
... að Tom Cruise, sem nú er í
sviðsljósinu vegna leiks sins i
kvikmyndinni Viðtal við vampíru,
hefði veríð viiltur á yngri árum.
Hann á meðal annars að hata
stolið bil og verið elskhugi Cher
sem er sögð 16 árum eldri en
hann. Núna ku Tom tifa dyggð-
ugu lífi en hafa áhyggjur af heils-
unni. Hann fer til læknis á hálfs
mánaðar fresti.
... að Farraw Fawcett og Ryan
O'Neal væru skilin eftir 12 ára
sambúð. Farrah, sem er 47 ára,
er búin að finna nýjan, leikarann
Sean Orr frá Kanada, sem er
næstum tutfugu árum yngri en
hún. Þegar Farrah hitti Sean
varð henni Ijóst að hjónabandið
með Ryan væri búið að vera.
... að Kevin Bacon, sem leikur
í River Wild með Meryl Streep,
væri orðinn hundleiður á brönd-
urum um egg og beikon en hann
fékk að heyra marga þess háttar
meðan á tökum fyrmefndrar
myndar stóð.