Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1995, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 1995 23 Smáauglýsingar Jfli Kerrur Kerruöxlar á mjög hagstæöu veröi, með eða án hemla, í miklu úrvali fyrir flestar geróir af kerrum. Fjallabílar/Stál og stansar hf., Vagnhöfóa 7, Rvk, sími 91-671412. JB Bílartilsölu Til sölu Ford Escort RS turbo ‘88. Einnig Toyota Corolla twin cam ‘84. Upplýsingar í síma 565 2544 eða 565 3711 eftir kl. 13. Jeppar MMC L-200 turbo dísil ‘93, ekinn 30 þús., upph., 35” dekk, lækkuð drif o.fl. Grá- grænn, gullfallegur bfll. Bílasala Bryn- leifs, Keflavík, sími 92-14888. Sendibílar M. Benz 309, árg. ‘84, til sölu, 5 cyl., ek. 252.000 km, 5 gíra, vökvastýri. Klædd- ar hliðar. Upplýsingar gefur Höróur eóa Jóhann í síma 91-603400. IÝmislegt Félagsfundur veröur i Jeppaklúbbi Reykjavíkur, Bíldshöfða 14, þriðjudag- inn 7. mars kl. 20.30. Fundarefni: Vetr- aræfing. Einnig verður skráð I vetrar- æfingu í s£mi 91-674811 og á staðnum þriðjudaginn 7. mars. Allir jeppar velkomnir. OPIÐ: Virka daga kl. 9-22 Laugardaga kl. 9-14 Sunnudaga kl. 16-22 Athugið! Smáauglýsingar í helgarblað DV verða að berast fyrir kl. 17 á föstudögum. AUGLÝSINGAR Þverholti 11 -105 Reykjavík - Sími 563 2700 Bréfasími 563 2727 - Grani síminn: 99-6272 (fyrir landsbyggðina) DV Meiming Alníhnút Leikfélag Kópavogs hefur bætt aðstöðuna í Hjáleigunni til muna svo að nú er þetta orðið þokkalegasta leikhús. Starfsemin hefur verið kraftmikil undanfarin ár og mikið er lagt í nýj- asta viðfangsefnið, sem er um leið vígsluverk- efni á nýja sviðinu, en það er breskur farsi, Á gægjum eftir Joe Orton. Það verður að segjast strax að ekki sá ég nú neitt ýkja merkilegt við verkið sjálft sem skrifað er á sjöunda áratugnum. Það er eiginlega mjög skiljanlegt eftir að hafa séð sýninguna að leikrit- ið hefur aldrei fyrr ratað á svið hér á lándi. Dellan er í hefðbundnum farsastíl, eilíf hlaup og misskilningur á misskilning ofan. Kryddið er fólgið í því að alla langar óskaplega til að sofa hjá en oftar en ekki verða þetta tilburðim- ir einir. Menn em auk þess í vondum málum og löggan komin í spilið af því að ung stúlka, tilvonandi einkaritari, er horfin, eins og jörðin hafi gleypt hana. Til að bjarga málum fyrir horn þykjast flestir vera eitthvað annað en þeir em og ekki greiðir það fyrir að atburðirnir eiga sér stað á geð- veikrahæli. Höfundur puðrar föstum og lausum Leiklist Auður Eydal skotum á geðlæknana enda em þeir vitlausastir allra. Þetta hefur kannski þótt djörf sýning í Bret- landi fyrir þremur áratugum, með hæfilegu striph og rífandi háði um hálfheilaga lækna- stétt, en sennilega hefði enginn kippt sér upp við hana hér á landi, ekki einu sinni þá. Eins og sýningin er sett upp er varla hægt að ætlast til að áhugaleikarar ráði við leikmátann. Hraðinn er mikill, leikbrögðin yfirkeyrð og til- burðir alhr rosalega ýktir þannig að rúm fyrir fínlegra skop gefst ekki. Textinn sjálfur týnist meira og minna í látunum og að mínu mati hefur leikstjórinn, Kári Halldór, þama ofætlað leikurunum. Kannski væri ráð að reyna að draga aðeins úr keyrslunni, leggja meiri áherslu á skopádeiluna og freista þess að draga úr inn- antómum ýkjunum. Heldur hóflegri útfærsla myndi án efa skila betri sýningu því að margir leikendanna sýndu og hafa í fyrri verkefnum sýnt góða takta miðað við það að hér er um áhugafólk að ræða. Jó- hanna Pálsdóttir er sviðsvön og ömgg, Hörður Sigurðarson fer létt með orðskrúð geðlæknisins og Inga Björg Stefánsdóttir var lunkin í hlut- verki einkaritarans, svo að einhverjir séu nefnd- ir. Leikmynd og leikmunir eru í anda farsans og annar ytri umbúnaður sýningarinnar ágætur enda aðstaðan orðin öll önnur en áður var og engin tormerki á því að setja þarna upp hinar fjölbreytilegustu sýningar. Leikfélag Kópavogs sýnir i Hjáleigunni: Á gægjum Höfundur Joe Orton Leikstjóri: Kári Halldór Þýöing: Bjarni Guömarsson og Hörður Sigurðarson Leikmynd: Þorleifur Eggertsson Lýsing: Alexander Ólafsson Tónlist og áhrifshljóö: Jósep Gíslason Búningar: Hópurinn Danskur látbragðsleikur Það er margt að gerast í leikhúsunum þessa dagana og nær ómögulegt að komast yfir að sjá allt, stórt og smátt, sem þar er á ferð. Á Sólstafahátíð hefur meöal annars verið lagst eftir að gera vel viö yngstu kynslóðina. Að minnsta kosti fjórar gestaleiksýningar fyrir börn hafa verið í boði og ég náði því að sjá eina þeirra, látbragðsleik frá Danmörku, á laugar- daginn. Ekki veit ég mikið um starfsemi Bátteater en sýning þess á Karlinum í tunnunni bendir til þess að þama séu sleipir atvinnumenn á ferð. Látbragðsleikur hefur af einhverjum ástæðum ekki náð fótfestu hér á landi sem sjálfstæð hst- grein og þess vegna gefst alltof sjaldan færi á að sjá sýningar af þessu tagi. Það væri upplagt fyrir unga leikara sem gjarna fitja upp á nýmælum aö kynna sér og ná tökum á þessari rótgrónu hefð en til þess þarf auövitað bæði ögun og mikla vinnu. Látbragðshstin ætti að vera hluti af leikhúsuppeldi bama, rétt eins og brúðuleikhúsið, sem hefur á síðustu tveimur áratugum unnið sér fastan sess-hér á landi. Það kom líka í ljós á sýningu Bátaleikhússins danska að krakkarnir eru fljótir að átta sig á gangi mála. Götusópari er að þrífa upp rusl og Leiklist Auður Eydal honum dauðleiðist. Til að krydda tilveruna reynir hann aö gera starfið lfflegra með ahs kyns uppátækjum. Hann notar meðal annars draslið, sem fyrir honum verður á götunni til þess að fara í þykjustuleik við sjálfan sig en jafnvel það verður leiðigjamt. Skyndilega birtir til því að upp úr ruslatunn- unni sprettur lifandi trúður og færist nú fjör í leikinn. Þeir félagar eiga saman góða stund þó að gesturinn sé kannski bara ímyndun götusóp- arans. Umbúnaður sýningarinnar er einfaldur og leikaranir tveir höfðu tæknina vel á valdi sínu. Sá yngri, sem lék trúöinn, var léttur og fljúg- andi hpur með skemmtilega málað trúðafés. Sá, sem lék götusóparann, byggði eðhlega meira á svipbrigðum og látbragði og sýndi oft góð tilþrif þó að krökkunum þætti eðhlega meira til trúðs- ins koma. Eins og fyrr var vikið að leiddi þessi gestasýn- ing hugann að því hvað það er í rauninni skrít- ið, hversu htið hefur verið um látbragðsleik í öhum þeim lfflegu leikhópum, sem sprottið hafa -upp á síðustu árum. Væri ekki kjörið að huga nú að þessu? Gestaieikur á Sólstafahátíð: Bátteatret sýnir i Möguleikhúsinu Karlinn i tunnunni Kastar guð teningum? - Þórdís Rögnvaldsdóttir 1 Galleríi Greip Thvistarvandi mannsins er áleitið viðfangs- efni í hstum. Innan myndlistarinnar hafa vanga- veltur um tilvistina og margræðni mannlegrar tilveru verið fyrirferðarmiklar í hérlendri myndhst síðasthöinn aldarfjórðung eða svo. Frá og með hugmyndalistinni sem var kynnt hér til sögu á sjöunda áratugnum hafa heimspekin og eðlisfræðin verið sem uppsprettur fyrir form- ræna tilburði hstamanna th að finna hina hárf- ínu hnu sem hggur á mihi hins andlega og hins efnislega, hins guðlega og hins vísindalega. Þór- dís Rögnvaldsdóttir, sem nú sýnir í Galleríi Greip á homi Vitastígs og Hverfisgötu, leitar í verkum sínum þessarar hnu sem vegur salt á mörkum tveggja vídda. Þórdís vitnar í Albert Einstein og spyr hvort guö kasti teningum. Um leið gefur hún formræna yfirlýsingu sem lýtur Myndlist Ólafur J. Engilbertsson Frá sýningu Þórdísar í Galleríi Greip. að því að grunnformið femingur kunni að vera aðskotahlutur í sköpunarverkinu. Einfaldleiki ræður ríkjum Á sýningu Þórdísar era 16 vatnshtamyndir sem flestar hverjar búa yfir dýpt og kyrrð. Litir em dempaðir en þó ekki þannig að andstæður nái ekki að skapast. Einfaldleiki ræöur ríkjum í þeim myndanna sem helst vöktu athygli undir- ritaðs. Fyrsta myndin, Vá ánamaðksins, er ein þeirra. Þar er ánamaðkurinn lifandi lína sem leitar úr efnisheiminum upp f óvissuheim and- ans. Attunda myndin, Hann kastar ekki tening- um, vakti enn fremiu- athygli mína fyrir hug- vitssamlegt samspil fmmforma sem nálgast skreytihst en virkar þó einföld og tær sem heild. EUefta myndin, Fjahkona gætir sólarinnar, er sérstaklega eftirminmleg persónuleg túlkun á náttúravætti eða þeirri persónugerðu orku sem jörðin býr yfir. Kyrrlát og heildstæð Vatnshturinn virðist henta Þórdísi mun betur en ohuhturinn. í olíuverkunum á fyrri sýning- um hefur henni hætt til að yfirkeyra myndflöt- inn með punktapensUbeitingu í anda impres- sjónistanna. Slík vinnubrögð útheimta afar ríka htatilfmningu og þjálfun í uppbyggingu myndfl- atarins. Það er eins og hér nái Þórdís betur utan um hugmyndir sínar en í hinum stærri ohu- verkum þar sem tæknin virðist jafnframt hafa hindrað eðhlega framrás hugmýndanna. Enn sem komið er hættir Þórdísi til að segja of margt í einu en í heUdina tekið er sýning hennar í GaUeríi Greip kyrrlát og heUdstæð og í verkun- um nær listakonan að miðla yfirgripsmiklum hugmyndum á einfaldan hátt. Sýning Þórdísar í Galleríi Greip stendur til 19. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.