Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Page 2
2
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995
Fréttir
Starfsmaði^r Búnaðarbankans sem hagnaðist um tugi milljóna 1 gjaldeyrisviðskiptum:
Bankastjórarnir gáf u
honum helmings afslátt
- gerðu samning og höfðu fulla vitneskju um ásetning starfsmannsins um viðskiptin
Starfsmaðurinn sagði við réttarhaldið i gær að hann hefði ávallt stillt sér í biðröð eins og hver annar viðskiptavin-
ur eftir að hafa kynnt sér nýjustu gengisskráningarnar frá Reuter. Síðan hefði hann óskað eftir millifærslum á
gjaldeyrisreikningum sínum hjá gjaldkera.
I réttarhöldum í gær yfir fyrrum
yfirmanni hagdeildar Búnaðarbank-
ans - sem hefur verið ákærður fyrir
að hafa misnotað aðstöðu sína og
hagnast um 20-25 milljónir króna
með því að hafa millifæft gjaldeyri á
eigin reikningum samkvæmt upplýs-
ingum sem hann komst yíir í bank-
anum um skráð gengi - kom fram
að tveir af bankastjórum Búnaðar-
bankans gerðu samning viö hann um
afslátt á kjörum vegna færslnanna.
Gjaldeyrismillifærslur mannsins
voru samkvæmt þessu gerðar með
fullu leyfi og vitund bankastjórnar
en hún greip ekki inn í fyrr en menn
urðu þess „skyndilega" áskynja,
nokkrum misserum eftir samning-
inn, að umsvif hans voru oröin miklu
meiri en menn gerðu ráð fyrir í upp-
hafi - þau voru þá orðin um 40 millj-
ónir króna.
Maðurinn hagnaðist með því að
fylgjast grannt með gengi ákveðinna
erlendra gjaldmiðla sem hann keypti
og seldi í bankanum og millifærði á
eigin reikningum í samræmi við
hvað hann taldi hagstæðast hveiju
sinni.
Sólon Sigurðsson bankastjóri sagði
við dómsyfirheyrslu í gær að ljóst
væri að .starfsmaðurinn fyrrver-
anndi hefði hagnast nyög á gengis-
breytingum sem urðu þegar Persa-
flóastríðið stóð yfir en kvaðst jafn-
framt hafa haft fulla vitneskju um
það við upphaf viðskipta starfs-
mannsins að hann hefði „verið með
andvirði einbýlishúss“ í viöskiptun-
um.
Gerir þú þetta ennþá?
„Aö sjálfsögðu“
Aðspurður sagði ákærði blaða-
manni DV við réttarhöldin í gær að
„að sjálfsögðu" stundi hann þessi
viðskipti enn þá. Fram kom í máli
hans og annarra bankastarfsmanna
Búnaöarbankans að viðskipti sem
þessi, svokölluð spákaupmennska,
séu bæði stunduð hér heima og er-
lendis og séu lögleg.
Maðurinn hætti störfum við bank-
ann eftir að bankastjórnin hafði
fengið endurskoðanda haustið 1991
til að kanna „hin óvæntu“ umsvif
hans með gjaldeyrisreikninga innan
bankans. Spurningar dómaranna
þriggja í fjölskipuðum dómi bentu
eindregið til að málið snúist um
hvort manninum hafi verið heimilt
í dómsalnum
Óttar Sveinsson
sem starfsmanni að notfæra sér upp-
lýsingar um gjaldeyrisviðskipti og
hagnast - á peningum sem annars
hefðu væntanlega orðiö gengishagn-
aður bankans.
Bað Sólon um afslátt og fékk
„Um miðjan september (1989) talaði
ég við Sólon (Sigurðsson banka-
stjóra) og óskaði eftir að fá afslátt á
kjörum vegna millifærslnanna. Sól-
on taldi sig ekki einfæran um slíka
ákvörðun en síðan hitti ég bæði hann
og Stefán heitinn Hilmarsson. Ég
bryddaði upp á því að ég hefði svo
mikinn kostnað af millifærslunum
og óskaði eftir niðurfærslu á milli-
gengi“ ... „endirinn varð sá að ég
skyldi fá þetta fram,“ sagði maðurinn
í dómsalnum í gær.
Sólon Sigurðsson bankastjóri
mætti sem vitni fyrir dóminn og
sagði að samningur hefði verið gerð-
ur við manninn um að hann fengi
að millifæra á kaupgengi í staö svo-
kallaðs milligengis sem væri kostn-
aðarminna fyrir reikningseigand-
ann. Með þessu hagnaðist maðurinn
mun meira en ella. Sólon sagði að
það væri ljóst að ef viðskipti ákærða
hefðu ekki átt sér stað hefði gengis-
hagnaður bankans orðið meiri, en
minni hjá Seðlabankanum.
Fór í biðröð hjá gjaldkera
Maðurinn kvaðst iðulega hafa stfilt
sér upp í biðröð hjá gjaldkera laust
fyrir klukkan ijögur, eins og hver
annar viðskiptavinur, og þannig
fengið óskum sínum framgengt um
millifærslurnar. Áöur haföi hann
fylgst með upplýsingaskjá frá Reuter
í bankanum sem gaf til kynna skrán-
ingu erlendra gjaldmiðla. Hann
kvaðst síðan hafa gefið sér ákveðnar
forsendur og vinnureglur um hvern-
ig hann hagaði kaupum og sölu á
innstæðum gjaldeyrisreikninga
sinna í bankanum.
Mál þetta upphófst í kjölfar blaða-
skrifa í Morgunblaðinu og DV. Eftir
þau sendi bankaeftirlit greinargerð
og var máliö sent lögregluyfirvöld-
um. Að rannsókn lokinni var gefin
út ákæra. Það var ekki fyrr en á
seinni stigum málsins að umræddur
samningur og vitneskja bankastjór-
anna um viðskipti mannsins komu
fram. Engin bótakrafa er lögð fram
af hálfu Búnaðarbankans í málinu á
hendur ákærða.
Blendnar tilflnningar hjá Júlíusi Valssyni í gær:
Fékk uppsögnina
og nýjan son
sama daginn
- „eignaðistnýjanskattborgara“enkannarmálarekstur
Stuttar fréttir
Bætt þjónusta
Fjármálaráðherra hefur gert
samning við Visa ísland - Greiðsl-
umiðlun hf. um rafræn greiðslu-
kortaviðskipti. Markmiðlð er aö
gefa ríkisstofnunum aukna
möguleika á að bæta þjónustu
sína og auka fjölbreytni við mót-
töku greiöslna.
Met útflutningsvika var hjá
Eimskip í síöustu viku. Samtals
voru flutt út liölega 10.450 tonn
meö fjórum áætlunarskipum til
17 hafha í Evrópu og Norður-
Ameríku.
Löglegir kaf bátar
Matsölustaðurinn Subway á ís-
landi er heimilt að kalla langlok-
ur sínar „kafbáta'1. Dómur þessa
efnis féll í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Tilefni málsins var
kæra frá Hlöllabátum.
Endurskoduðspá
Endurskoðuö þjóöhagsspá
Þjóöhagsstofhunar gerir ráð fyrir
3% hagvexti í ár. Gert er ráð fyr-
ir 2,5% veröbólgu, 4,3 prósent at-
vinnuleysi og að þjóðarútgjöldin
aukist um 3,6% miöað við 1994.
-kaa
„Uppsögnin er bara vonbrigði.
Hún kom mér hins vegar ekki á óvart
eftir það sem mér og ráðherra fór á
milli á miðvikudaginn. Hann lýsti því
þá yfir að honum fyndist álit ríkislög-
manns afgerandi. Það sem ég mun
gera núna er að leita mér að vinnu,"
sagði Júlíus Valsson tryggingayfir-
læknir sem sagt var upp starfi sínu
í gær í kjölfar nýlegs dóms Héraðs-
dóms Reykjavíkur þar sem Júlíus
var fundinn sekur um skattsvik.
Þrátt fyrir döpur tíðindi.sló Júlíus
á létta strengi enda var hann staddur
á Fæðingardeiid Landspítalans þar
sem kona hans hafði fætt dreng fyrir
stundu. „Þetta er nýr skattborgari,"
sagði Júlíus.
Aðspurður um viðbrögð við upp-
sögninni sagði Júlíus sjálfsagt að
kanna málarekstur þar sem ríkinu
yrði hugsanlega stefnt fyrir ólög-
mæta uppsögn.
„Það er skylda mín, ekki aðeins
gagnvart sjálfum mér heldur líka
gagnvart öðrum sem hafa lent í
þessu. Ég get hins vegar ekki metið
framvinduna sjálfur eins og stendur.
Það er greinilegt að reynda lögmenn
greinir á í þessu máli. Ríkislögmaöur
hýtur að hafa eitthvað til síns máls
og minn lögmaður hlýtur að hafa það
líka,“ sagði Júlíus.
Uppsögn heilbrigðisráðherra helg-
aðist af áiiti ríkislögmanns sem
komst að þeirri niðurstöðu að Júlíus
hefði sýnt af sér athæfi sem „telst
óhæfilegt, ósæmilegt og ósamrýman-
legt stöðu hans“. Með sektargerð
Héraðsdóms Reykjavíkur þann 27.
febrúar heföi því verið slegið föstu
fyrir dómi að hann heföi gerst sekur
um þann refsiverða verknað sem að
mati ráðuneytisins gerði hann óverð-
ugan að gegna stöðu tryggingayfir-
læknis.
í bréfi ríkislögmanns til ráöherra
er ítrekuö sú skoðun að um heföi
verið að ræða ásetningsverk hjá Júl-
íusi hvað varðar skattalagabrot hans
á 17 mánaða tímabili á árunum 1990-
1991. -Ótt
Tveir í gæslu-
varðhald
Tveir menn hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald að kröfu
Rannsóknarlögreglu ríkisins eft-
ir innbrot i kvikmyndafyrirtæki
fyrr i vikunni. í innbrotinu var
stolið tækjum aö verðmæti 4
milljónir.
Annar mannanna var úrskurð-
aður í gaesluvarðhald fram að
mánaöamótum vegna rannsókn-
arhagsmuna en hinn bæði vegna
rannsóknarhagsmuna og í sí-
brotagæslu fram í maí. Fyrri úr-
skurðurinn var kæröur til
Hæstaréttar af hálfu RLR en hinn
af manninum sjálfum. -pp
Flugfreyjudeilan:
Nýtttilboð
Flugleiðir gerðu flugfreyjum
nýtt tilboö í gær. Flugfreyjur hafa
ekki enn svarað því.
Mörg þúsund manns eiga hókaö
far með Flugleiöum dagana 28. til
30. mars næstkomandi en þá hafa
flugfreyjur boðaö verkfall. Yfir-
menn Flugleiða hafa lýst því yfir
að þeir hyggist gæta öryggismála
um borð i ílugvélum félagsins í
stað flugfreyja. Þær telja hins
vegar aðeins fjóra af yfirmönnum
félagsins geta gert þetta og líta á
alltannaðsemverkfallsbrot -pp