Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 43 Enginn breytir sjálfum sér / svo að heitið geti Einu sinni endur fyrir löngu voru froskur og sporödreki staddir viö straumþunga á. Sporðdrekann langaöi yfir en sá ekki hvernig þaö ætti aö takast. Eftir nokkra um- hugsun sagöi hann loks. „Getur þú ekki synt með mig yfir ána á bak- inu, froskur minn góöur?“ Froskn- um leist ekki of vel á þessa áætlun. „Ég þori ekki að eiga neitt saman viö þig að sælda, sporðdreki," sagöi hann. „Þú gætir tekið upp á því að bíta mig úti í miðri á!“ En sporð- drekinn sagði það af og frá. „Ef ég bít þig úti í ánni sökkvum við báð- ir,“ sagði hann, „og ég drukkna." Froskurinn féllst á þetta og saman lögðu þeir af stað. Úti í miðri ánni stakk sporðdrekinn froskinn. Deyj- andi og drukknandi leit hann á sporðdrekann og sagði furðu lost- inn: „Af hverju?" En sporðdrekinn gat engu svarað og sagði: „Af því að ég er sporðdreki. Persónuleika- einkennum mínum verður aldrei breytt." Að þeim orðum sögðum sukku þeir báðir í öldumar og dóu. Allarbreytingar eru erfiðar Mér dettur þessi saga oft í hug. Margir eru þeir sem halda að per- sónuleika og atferli fólks sé hægt að breyta með einföldum aðferð- um. Það sé í raun ekkert mál að hætta að reykja, hætta að drekka, megra sig, fara út að hlaupa og gjörbreyta um lífsstíl. En svo er alls ekki. Flesta skortir úthald til að fylgja áformum sínum eftir og breyta lífsstíl sínum til langframa. Loforð áramóta eru fokin íjandans til um miðjan janúar. Mikill fjöldi loddara og spákaupmanna selur alls kyns töfraráð eins og plástra, dáleiðslu, nálarstungur, íhugun, nudd, og megrunarduft til að hætta að reykja eða megra sig en lang Á lasknavaktLniú tímaárangurinn er oft næsta lítill. Örvinglan fólks gagnvart viðjum vanans lýsir sér best í öllu því fé sem rennur til að kaupa þessar gagnshtlu töfralausnir dým verði. Rannsókn á hjartasjúklingum Nýlega birtist rannsókn í Lækna- blaöinu sem gerð hefur veriö á af- drifum íslendinga undir fertugu sem fengu hjartadrep eða krans- æðastíflu á árunum 1980-1984. í langflestum þessara tilvika mátti. rekja sjúkdóminn til óhollra lifnað- arhátta, reykinga, hreyfingarleys- is, offitu, hækkaðrar blóðfitu og hás blóðþrýstings. Um var að ræða 38 karlmenn og hefur 22 þeirra ver- ið fylgt eftir í 10 ár. Líkamlegt ástand þessara manna er ærið mis- munandi en hjartaáfaUið leiddi til lifsháttabreytinga einungis hjá Utl- um hluta hópsins. Fáir breyttu mataræði eða tóku upp reglulega líkamsrækt. Þó hætti tæplega helmingur að reykja og flestir þeirra sem áttu við áfengisvanda að stríða hættu að drekka. Helm- ingur hópsins finnur enn fyrir ein- kennum sjúkdómsins en hefur þrátt fyrir það ekki breytt fyrri lífs- háttum. Margir reykja enn þrátt - fyrir augljósa skaðsemi þess. Jafn- vel þótt heilsan sé í húfi veitist mönnum erfitt að gera breytingar til langframa á Ufnaðarháttum sín- um. Sagt er að helsti gróðavegur allra líkamsræktarstöðva sé að selja fólki þriggja mánaða að- göngukort sem einungis eru notuð í örfá skipti áður en gefist er upp. Enginn breytir Þetta er þó alls ekki vonlaust en enginn skyldi gera Utið úr þeim erfiðleikum sem fylgja því að gera einhverjar breytingar. Engar skyndilausnir eru til heldur verður einstakUngurinn sjálfur að vilja breyta Ufi sínu og takast á við öU þau óþægindi sem því eru samfara. Þaö er hörkupuö að hætta að reykja, megra sig, hætta að drekka, fara út að hlaupa og bylta gömlu lífsmynstri. En árangurinn er stór- fenglegur þegar vel tekst til og fólk bæði lengir líf sitt og eykur lífs- nautn og velUðan. Þetta minnir mig oftar en ekki á gamla vísu sem ég lærði einusinni: Alltaf veitast mj ög að mér mæða, þreytaogleti. Enginn breytir sjálfum sér svoaðheitiðgeti. S. Styrkir til náms á Ítalíu og í Finnlandi námsárið 1995-96. ítölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingum til náms á Ítalíu. Styrkurinn er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla. Styrkfjár- hæðin nemur 1.000.000 lírum á mánuði. Frestur til að skila inn umsóknum er hér með framlengdur til 31. mars nk. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islending- um til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Finnlandi. Styrkurinn er veittur til níu mánaða dvalar og styrk- fjárhæðin er 4.000 finnsk mörk á mánuði. Umsóknar- frestur er til 25. apríl nk. Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið, 24. mars 1995. SOLU ««« Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn 28. mars 1995 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7 og víðar. 1 stk. Ford Explorer 4x4 1991 1 stk. Subaru Legacy GLstation 4x4 1990 4 stk. Subaru 1800 station 4x4 1988-91 1 stk. Toyota Corolla station 4x4 1990 1 stk. Toyota Tercel station 4x4 1988 1 stk. Mazda 323 station 4x4 (skemmdureftir umfóh.) 1993 1 stk.Toyota HiLuxdoublecab 4x4 1990 2stk. Toyota HiLux 4x4 1985-87 1 stk. Saab900fólksbtfreið 1988 1 stk. Voivo240fólksbifreið 1989 1 stk. Volvo440 1989 1 stk. Toyota Corolla 1988 1 stk. Chevrolet Monza 1988 1 stk. Mercedes Benz 1719 vörubifreið m/krana 1978 • Til sýnis í birgðastöð Vegagerðarinnar í Grafarvogi, Rvik: 1 stk. rafstöð, Dawson-K, 30 kW, ískúrá hjólum 1973 Til sýnis hjá Vegagerðinni I Vík í Mýrdal: 1 stk. vatnstankur, 10.0001, með 3" ' dælu 1980 Til sýnis hjá Vegagerðinni á Sauðárkróki: 1 stk. dráttarvél, Massey Ferguson 699 4x4 1984 með ámoksturstækjum Til sýnis hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, steypudeild - Keldna- holti: 1 stk. hita/rakaskápur, blikkklæddur, einangraður með steinull. Innanmál 3,5 m með opnun 0,8x3,0 m. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðun- andi. BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 9I-2Ó8A4 BRÉFASÍMI 91-626739
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.