Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 R.E.M. frestai tónleikum Öllu tónlelkahaldi hljómsveit- arinnar R.E.M. næstu mánuðina hefur verið frestað vegna veik- inda trommuleikarans Bill Berry. Vonir voru bundnar við að hann myndi ná sér af blæðing- um við heila, sem hann fékk skyndiiega á tónleikum í Sviss á dögunum, en nú þykir ljóst að hann verður mun lengur að ná sér. Læknar í Sviss segja að hann muni ná sér að fúllu. Popparar standa í strönígu Nokkrir liðsmenn hljómsveit- anna Menswear og Pulp, ásamt annarri söngkonunni úr hljóm- sveitinni Shampoo, lentu í hörku- slagsmálum á bar í London á dög- unum eftir tónleika. Þetta ágæta fólk slóst þó ekki innbyrðis held- ur sneri bökum saman eftir að einhver leiðindagaur hafði heils- að söngvara Menswear að sjó- mannasið. Eftir mikil slagsmál með tilheyrandi brauki og bramli tókst dyravörðum að stilla til frið- ar og var ölium ólátabelgjunum fleygt á dyr. Sem betur fer slas- aðist enginn alvarlega í átökun- um en vitni telja að söngvari Menswear muni ekki syngja mik- ið á næstunni. Batnandi mönnum... Sú var tíðin að popparar tóku ekki í mál að koma fram á tón- leikum öðruvísi en að búnings- herbergi þeirra væru sneisafúil af bjór og brennivíni og öðrum óþverra. Sumir gengu jafiivel svo langt að heimta að léttkiæddar stúlkur yrðu til taks ef á þyrfti að halda. En nú er öldin önnur að sögn popptímarita. Heilsubylgj- an hefur náð inn í raðir poppar- anna sem sést best á eftirfarandi lista yfir óskir tiltekinna poppara um viðbit á tónleikum: Kylie Minogue vill bara vatn og það mikið af því. Liðmenn M People heimta kajnillute. Liðsmenn Smashing Pumpkins krefjast þess að fá Cheerios og liðsmenn Eternal eru svo ósvífnir að heimta að heitt kakó sé tO taks fyrir og eftir tónleika. Plötufréttir Thurston Moore, gítarleikari hljómsveitarinnar Sonic Youth, er með sólóplötu í smíðum, þá fyrstu á 15 ára ferli með hljóm- sveitinni.... Hin rómaða hljóm- sveit Boo Radleys eru að leggja síðustu hönd á aðra plötu sína og hefur útgáfudagurinn verið ákveðinn 27. mars, á mánudag- inn kemur. . . . Og fregnir hafa borist af því að gamli „Jam“ar- inn Paul Weller sé kominn í hljóð- ver en síðasta plata hans fékk mjög góða dóma... BsL (I I * I í-11 1;\l f ‘ví Ai í BODI Qggjfáfefg Á ItYMi.H AM i DAG KL. 16.00 Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaöa skoðanakönnunar sem er framkvæmdaf markaðsdeild DVi hverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi í DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er afRadio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrifá Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard. B70%E Quireboys einu sinni enn Hljómsveitin Quireboys, sem tróð upp í Reiðhöllinni hér um árið sællar minningar, hefur ákveðið að sameinast á ný fyrir eina tónleika. Hljómsveitin hætti fyrir nokkru og liðsmennirnir fóru i sína áttina hver. Tilefni þess að hljómsveitin tekur sam- an á ný er ósk söngvarans Spike en faðir hans lést á dögunum og vill Spike heiðra minningu hans með því að halda tónleika á af- mælisdaginn hans. Skýrt hefur verið tekið fram að Quireboys muni aðeins koma saman í þetta eina sinn enn. Aukatónleik- ar Stones Vegna óhemju eftirspumar eft- ir miðum á tónleika The Rolling Stones á Wembley í sumar hefur verið ákveðið að bæta við tónleik- um þann 16. júlí. Miðaverð er ca 3000 krónur fýrir miða í númeruð sæti en ca 2500 krónur annars. -SþS- Á toppnum Strákamir í írsku hljómsveit- inni U2 verma enn toppsæti ís- lenska listans. Bono og félagar hafa nú setið sem fastast í þessu sæti í einar sex vikur og er greini- legt að þeir drengir kunna vel við sig á toppnum. Lagið er annars eftir hana Patti Smith en hún samdi og gaf það út fyrir hálfúm öðrum áratug. Varla þarf lengur að taka það fram að topplagið heitir Dancing Barefoot en við gerum það nú samt. Því má svo bæta við að það má heyra í kvik- myndinni Threesome. Nýtt Söngkonan Sigríður Beinteins- dóttir á hæsta nýja lagið í þess- ari viku. Lagið hennar heitir Þakklæti en Sigga stekkur með það beint í 19. sæti á íslenska list- anum og verður athyglisvert að fylgjast með framhaldinu en þess- ar vikumar fer ekki mikið fyrir íslenskum flytjendum. Hæsta nýja lagið í síðustu viku átti Cranberries með I’Cant Be with You sem þessa vikuna gerir al- varlega atiögu að toppsætinu en vantar þó herslumuninn. Kannski verður það komið á toppinn eftir viku, hver veit? Hástökkið Yaki-Da er hástökkvari ís- lenska listans þessa vikuna með lagið I Saw You Dancing sem nú er komið í 15. sætið. Morrisey, há- stökkvari síðustu viku, heldur áfram að klifra upp listann en nú aðeins um tvö sæti í það ellefta. Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhíldur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og (var Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Heðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.