Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 Skák______________________________________________________________________dv Norðurlanda- og svæðamótið á Hótel Loftleiðum: Agdestein tapar tvisvar - Margeir í hópi efstu manna Islendingar hafa orð á sér fyrir að standa frábærlega vel að skipulagn- ingu skákmóta og erlendir meistarar ljúka jafnan upp einum rómi um það að hvergi séu aðstæður til skákiðk- unar betri en hér á landi. Því skýtur nokkuð skökku við að koma á Norð- urlanda- og svæöamótið í kjallaran- um á Hótel Loftleiðum, þar sem margir fremstu skákmenn Norður- landa hírast yfir töflum í þröngu loft- lausu herbergi. Slíkar aðstæður sæma auðvitað ekki móti sem á sér svo langa og merka sögu og er þar að auki fyrsta skrefið í heimsmeistarakeppninni. Frændur vorir á Norðurlöndum eru hins vegar engu góðu vanir í þessum efnum - trúlega eru aðstæður fyrir keppendur á Hótel Loftleiðum um- talsvert betri en tíðkast hefur á Norð- urlandamótum síðustu ára. Áhorfendur á íslandi eru aftur á móti betra vanir. Þeir hafa a.m.k. fram að þessu fengið skákum kepp- enda á slíkum stórmótum varpað á sýningartöfl. Nú er aðeins helmingur skákanna sýndur og engin leið fyrir áhorfandann að átta sig á taflstöðum á hinuni svo ekki sé minnst á hom- borðið sem ekkert sést á. Á opnu Reykjavíkurskákmótun- um, sem fram fóru á Hótel Loftleið- um, urðu þeir sem fæsta höfðu vinn- ingana að gera sér að góðu að tefla niðri í kjallara og var þá gjaman tal- að um „hið neðra“ eða að „tefla í gúanóinu“. Þegar mótin vom sem fjölmennust var gúanóbræðrum gjarnan skipt á herbergin í kjallaran- um því að engum kom til hugar að láta þá sitja svona þröngt. Áhorfend- ur á fimmtudag fylltu auða bletti í salnum og komust færri í sæti en vildu. Þessi húsnæðisekla skákmeistar- anna kemur ekki til af góðu. Ekki reyndist unnt að hnika til umfangs- mikilli starfsemi Reykjavíkurborgar í skákheimilinu í Faxafeni og hefð- bundnir skáksahr á Hótel Loftleiðum (sem nú hafa raunar fengið andlits- lyftingu) vom bókaðir. Vonir standa þó til þess að skákmeistaramir fái flutt sig um set upp á efri hæðina. Lokaumferðimar þrjár verða í það minnsta ekki leiknar bak við tjöldin. Skákunnendur skulu þó ekki láta hugfallast við þessa lýsingu heldur gæta þess að missa ekki af merkum skákviðburði. Taflmennskan á mót- inu er býsna hressileg og á eftir að magnast enn þegar fram í sækir og baráttan um Norðurlandameistara- titilinn og tvö sæti á milhsvæðamót fer að harðna. Eftir þrjár umferðir vom fimm skákmenn efstir og höfðu misst hálf- an vinning: Margeir Pétursson, sænska drottningin Pia Cramhng og Danimir Erling Mortensen og Curt og Sune Berg Hansen. Svunn Jonny Hector var einn með 2 vinninga og síðan kom hópur meistara með hálfan annan vinning: Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Lars Bo Hansen (Danmörku), Jonathan Tisd- ah, Rune Djurhuus og Einar Gausel (allir Noregi) og Marko Manninen (Finnlandi). Norska knattspymuhetjan og tvö- faldur Norðurlandameistari, Simen Agdestein, hafði aðeins hlotið einn vinning og Svíinn Thomas Emst sömuleiðis. Þröstur Þórhallsson og Svíarnir Lars Degerman og Ralf Akesson höfðu hálfan vinning og Finninn Tapani Sammalvuo hafði tapað öllum skákum sínum. Töp Agdesteins gegn Piu Cramhng og Jonny Hector í síðustu umferðum Skák Jón L. Árnason hafa komið verulega á óvart en Norð- maöurinn er raunar þekktur fyrir aö fara seint í gang en taka sprettinn þeim mun meiri er á hður. Réttast er því að afskrifa hann ekki alveg strax. Margeir er í hópi efstu manna en hinir íslensku keppendurnir hafa all- ir gert sig seka um skelfilegar yfir- sjónir. Helgi og Hannes fóru illa að ráði sínu gegn Sune Berg Hansen - Helgi varð að gefast upp eftir aðeins tuttugu leiki - og Lars Bo Hansen fékk ódýran vinning gegn Jóhanni, sem festi drottninguna í óvinaneti. Þröstur tapaöi iha fyrir Helga: Við trúum því þó að íslendingarnir eigi eftir að berjast um sigurlaunin. Skoðum skák Margeirs við Einar Gausel, sem tefld var í þriðju um- ferð. Norðmaðurinn gætti sín ekki sem skyldi í byrjun taflsins og eftir Töp Agdesteins gegn Piu Cramling og Jonny Hector i síðustu umferðum hafa komið verulega á óvart en Norðmaðurinn er raunar þekktur fyrir að fara seint í gang. misheppnaða peðsfórn gat hann lítið aðhafst meðan Margeir jók þrýsting- inn. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Einar Gausel Enskur leikur. 1. c4 e5 2. Rc3 d6 3. g3 Rc6 4. Bg2 g6 5. e3 Bg7 6. Rge2 h5 7. d4 h4 8. d5 h3 Þótt freistandi sé að reka guðs- manninn heim á leið er trúlega betra að halda spennunni með 8. - Rb8 9. e4 Bg4 o.s.frv. en þannig hafa all- nokkrar skákir teflst. 9. Bfl Rce7 10. e4 f5 11. Rgl! Riddarinn snýr einnig heim til foð- urhúsa! í þessu undantekningartil- felh getur hvítur leyft sér að brjóta meginreglur í byrjunartaflmennsku, því að vegna hótunarinnar á h3 er svartur knúinn til að taka af skarið á miðborðinu. 11. - f4? Betra er 11. - fxe4 12. Rxe4 RfB 13. Bd3 c6 og reyna að grafa undan e4- reitnum. Svartur fær engar bætur fyrir peðið. 12. gxf4 exf4 13. Bxf4 Rffi 14. Dd2 Hh5 15. 0-0-0 Með peði meira, sterka miðborðs- stöðu og veikleika svarts á g6 og h3 má hvítur vera bjartsýnn. 15. - Kf7 16. Rf3 Bg4 17. Rg5+ Hxg5 18. Bxg5 Bxdl 19. Dxdl Dd7 20. Hgl Hh8 21. Df3 Hh5 22. Kc2 Leikið gegn hótuninni 22 - Hxg5 23 Hxg5 Bh6. 22. - Rg8 23. Bd3 Kf8 111« Á k A &.E A il W Á AA^ & & u ABCDEFGH 26. Re4 Svartur losnar aldrei úr klemm- unni. Úrshtin eru ráðin. 26. - Da4+ 27. Kbl Ke7 28. Df5 Hh6 29. De6+ - Svartur gaf. Eftir 29. - Kd8 er 30. Dxg8+ góð byrjun. Afl fjöldans undir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.