Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Blaðsíða 6
Útlönd Tyrkir í vondum málum vegna árása á Kúrda 1 Norður-írak: Sprengjum rignir á saklausa borgara - ríkjum sem fordæma innrásina flölgar Kúrdar í Noröur-írak segja aö tyr- neskar herflugvélar hafi látiö sprengjum rigna á saklaust fólk í flallaþorpum þar sem enga herskáa aðskilnaðarsinna úr röðum Verka- mannaflokks Kúrda sé aö finna. Margir hafa flúiö heimili sín síöustu daga. Ríki á Vesturlöndum hafa miklar áhyggjur af því aö saklaust fólk þjáist í aðgerðum Tyrkja og efa- semdir um réttmæti aðgerðanna aukast stöðugt. Tyrkir réðust í byijun vikunnar inn í héruð Kúrda á vemduðu svæði í Norður-írak við landamæri Tyrk- lands til að lama samtök hryðju- verkamanna sem taldir eru hafa staðið fyrir alvarlegum hryðjuverk- um í Tyrklandi að undanfórnu. Verkamannaflokkur Kúrda berst fyrir aö fá landsvæði fyrir Kúrda í Tyrklandi. Innrás tyrknesku stjórn- arinnar átti upphaflega að taka nokkra daga og vera takmörkuð við tiltölulega fámennan hóp herskárra skilnaðarsinna. Svo virðist sem „sökudólgarnir" hafi hins vegar margir vitað af fyrirhugaðri innrás í tíma og verið komnir í felur. Það þykir mjög mikilvægt fyrir Tyrki að átök dragist ekki á langinn því vaxandi efasemdir eru uppi á Vesturlöndum og mörg lönd hafa for- dæmt innrásina og sagt hana ólög- lega. Ekki síst hjá bandamönnum Tyrkja í NATO og stuðningur fer minnkandi með hverjum deginum. Tyrkir eiga á hættu að einangrast á alþjóðavettvangi. Vegna legu lands- ins þykir afskaplega skynsamlegt fyrir þá að halda góðum tengslum við Evrópu og Vesturiönd. Tyrkir segja hins vegar að þeir hafi aðeins varpað sprengjum að völdum skotmörkum þar sem skæruliðar aðskilnaðarsinna hafi haldið sig. Þær skýringar þykja hins vegarekkimjögtrúverðugar. Reuter Stuttar fféttir írakar seljí tnetra Bretar og Bandaríkjamenn undirbúa aö fá Öryggisráð SÞ til að samþykkja að Irakar fái aö selja ögn meira af olíu en veriö hefur siðustu árin. Fimmsærðust Leynlskyttur særðu fimm manns í Sarajevo í gær. Ekkerteftirlit Breski herinn hafði ekki neitt eftirlit í Belfast í gær í fyrsta sinn í 25 ár. Þaö var gert til að auð- velda samnínga viö Sinn Fein. Minni ifltur á kosningum Minnkandi líkur eru á því að kosiö verði á Ítalíuíjúníeins og Dini forsæt- isráðherra hafði stefnt að. Fjölmiölakóng- urinn Berlus- coni þrýstir mjög stíft á um kosn- ingar. Bnokunrofin Svíar slökuðu á 100 ára gamalli rikiseinokun á áfenginnflutningi í gær. Einkafyrirtæki fá að flytja inn áfengi nú. Tysonlaus Boxarinn Mike Tyson losnaöi úr fangelsi í dag. Þaö fyrsta sem hann ætlaði að gera var að biðj- ast fyrir meö Muhammed Ali. Reuter Hlutabréf í Tokyo: Lægstaverð ítæp3ár Nikkei hlutabréfavísitalan í kaup- hölhnni í Tokyo hefur ekki verið lægri síðan í ágústmánuði 1992. Á fimmtudag fór talan niður í um 15.800 stig og í gær fór hún i 15.750 stig. Hlutabréf hafa verið á niðurleið alla síðustu viku. Ástæðan er rakin til mikillar lækkunar á gengi dollars gagnvart japanska jeninu sem ekki hefur verið lægra í hálfa öld. Dow Jones hlutabréfavísitalan hef- ur hins vegar aldrei verið hærri og lífleg viðskipti átt sér staö í Wall Street. Þar búast flárfestar við vaxta- hækkunum á næstunni. Eftir nokkum stöðugleika síðustu mánuði er bensín- og hráolíuverð á merkjanlegri uppleiö erlendis. -Reuter/Fin. Times Diana prinsessa af Wales er i skíðafríi i Lech í Austurríki í sérlega góðu veöri þessa dagana með sonum sínum Vilhjálmi og Harry og nokkrum vinum. Á meðan er Elísabet drottning í Suður-Afriku og það rignir hvert sem hún fer. Þar er hún kölluð regndrottningin. Simamynd Reuter Díana í átökum við Ijósmyndara Díana prinsessa og Harry og Vil- hjálmur synir hennar skíðuðu allan daginn í gær í brekkunun í Lech í Austurríki og reyndu að hafa gaman af, þrátt fyrir að ágengir flölmiðla- menn fylgdu þeim hvert sem þau fóru Ágangur flölmiðlamannanna var slíkur að Díönu ofbauð, þótt hún sé nú ýmsu vön. Upp úr sauð þegar ljós- myndari einn myndaði hana án af- láts þegar hún og synir hennar sátu að snæðingi. Var hann nánast kom- inn upp á matarborð konungsfólks- ins, svo ágengur var hann. Díana rak dónann umsvifalaust á brott og baö síðar flölmiðlafólkiö vinsamlegast um að veita sér og sonunum smá tíma til aö vera í einrúmi, þó ekki væri nema part úr degi. Um fimmtán ljósmyndarar fylgdu þeim í gær. Díana sagðist sjálf vera vön því að hafa slíka hersveit á eftir sér en bað ljósmyndarana að taka tillit til drengjanna. Þeim liði ekki vel í öllum þessum látum. Díana þyk- ir vernda drengina sérstaklega mikið og vill ekki að þeir séu sífellt í kast- ljósi flölmiðlanna. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis TffiTTfflfW 9000 Hang Senfi 8000jk 7500 \J| JjV 8467,67 D J F M jjilffffl'EIBl 18 17.5 17 16.5 $/ tunna 17,65 D J F M LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 Bretadrottning eróveðurskráka Elísabet Bretadrottning er á ferð um Suður-Afríku þessa dagana og hefur henni yfirleitt verið vel tekið. Það eru hins vegar ekki allir jafn ánægðir með að fá hana í heimsókn. Hún er nefni- lega óveðurskráka hin versta og gengur stundum undir nafninu regndrottningin. Engu máli virð- ist skipta hvar í heiminum hún er, alls staðar rignir. Það klikkaði heldur ekki að um leiö og hún kom á sólarströndina í Durban í gær, en þar er yfírleitt alltaf sól- skin, skall á þetta hka óveðrið. Það rigndi svo mikið að Beta gat ekki einu sinni gengið á rauða dreglinum sem venjulega er dreg- inn út fyrir hana. Óttast var að drottningin gæti hrasað á hálu teppinu. Sjötug norn fær sexmánaða dómfyriraðéta sjöbömsín Sjötug kona frá Sambíu, sem segist vera galdranorn, hefur við- urkennt að hafa drepið sjö börn sín með aðstoö djöfuls og lagt þau sér til munns viö einhvers konar svartagaldursathöfn. Konan var í gær dæmd í sex mánaða fang- elsi. Hún var j raun ekki dæmd fyrir moröin sjálf heldur fyrir að stunda galdra. Berjastmeð vinnulöggjöfinni við ísbirnina Gisli Kristjánsson, DV, Ósló: „Jú, víst er þetta spuming um öryggi á vinnustað," segir Kjetill Munkvoll hjá vinnueftirlitinu í Tromso um hættuna sem stafar af ágengni ísbjarna við námu- menn á Svalbarða. Síðustu daga hafa ísbirnirnir gert sig heimakomna í námubæj- unum og barið á veggi, glugga og dyr. Fólk fer ekki lengur óvopnað úr húsi og námumenn kreflast meira öryggis á vinnustöðum sín- um, Mörgum þykir þó sem vinnu- löggjöfxn dugi skammt á bimina þvi þeir eru ekki kunnir fyrir lög- hlýöni. Bimir em friðaðir á Sval- barða og refsivert aö skjóta þá. Skilningurís- lendingaekki Gisli Kristjánssan, DV, Ósló: „Það var ekki nóg aö njóta bara skilnings á íslandi. Nær allar þjóðir heims voru á móti hval- veiðum og þvi var enginn annar kostur í stöðunni en að hætta,“ sagöi Bjarne Mork Eiden, fyrrum sjávarútvegsráðherra Noregs, í yfirheyrslum fyrir rétti í Ósló í fyrradag. Hrefhuveiðimenn hafa sótt rík- iö til saka fýrir aö hafa bannað veíðar á hrefnu sumarið 1986. Kreflast þeir 650 miiljóna ís- lenskra króna í skaðabætur. Krafan er byggð á því að veiði- bannið hafi verið ólöglegt þar sem það var sett með einhliöa ákvörðun ríkisstjómarinnar og aldrei verið borið undir þingið. Sjávarútvegsráðherrann fyrr- verandi iýsti ábyrgð sinni á veiði- banninu en sagði að það heföi verið fullkomlega löglegt og ríkið þviekkibótaskylt. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.