Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 Vísnaþáttur______________ ísleifur Gíslason ísleifur Gíslason fæddist í þenn- an heim 20.júní 1873. Foreldrar hans bjuggu þá í Ráöageröi í Leiru, þau hjónakornin Gísli Halldórsson og Elsa Dóróthea Jónsdóttir. ísleif- ur var elstur af tíu bömum þeirra Ráðagerðishjóna en fimm þeirra komust ekki til ára. ísleifur braut- skráðist sem gagnfræðingur úr Flensborgarskóla í lok marsmán- aðar 1896 með góðum vitnisburði. Eftir það kenndi hann í barnaskóla í Leiru og reri austanlands á sumr- in þar til hann fluttist til Stöðvar- ijarðar. Bjó ísleifur þar á ámnum 1898-1903, fyrst í Kirkjubólsseli en eftir 1901 á Einarsstöðum. Haíði ísleifur þar með höndum einka- kennslu barna hjá ýmnsum hús- bændum í Stöðvarsókn að vetrar- lagi. ísleifur settist að á Sauðár- króki 1903 og sótti um verslunar- leyfi og var veitt það 27. maí 1904. ísleifur gegndi ýmsum opinberum störfum á Sauöárkróki. Var hann kjörinn í hreppsnefnd 1907 og var varaoddviti og sat þar til 1913. ísleifur kvaddi þennan heim 29. júlí 1960, þá á 88. aldursári. Einverju sinni lenti ísleifur í orðaskaki við manngarm nokkum. Er deilan harðnaöi færði maðurinn sig fast upp að ísleifl sem kvað þá til hans þessa vísu: Viðtals eigi virði/ég þig, vesalmenni og dóna. En áður en ferðu ofan í mig af þér taktu skjna. Auglýsingar frá hendi ísleifs voru stundum í bundnu máli og einhverju sinni gaf að líta vísu þessa á auglýsingatöflu hreppsins og nafn ísleifs þar undir ritað: Þú sem hefur lent í ljótri klípu, lækna mætti þig; þú, sem týndir tóbakspípu, talaðu við mig. Ös var í verslun ísleifs næstu daga því margir söknuðu pípu sinnar. Lét ísleifur sérhvern lýsa pípu þeirri er glatast haíði og sagði síðan aö lýsingin kæmi hvergi nærri heim viö þá sem hann hafði fundið. En það fylgir sögunni að pípufundur Isleifs hafi verið tómur uppspuni frá rótum. ísleifur kveður um mann er tek- ist hafði að brugga brúklegan landa fyrr en öðrum þar um slóðir: Sykurgrautinn sýður hann, sigur hlaut í landi. Allar þrautir yfirvann Eiríkur brautryðjandi. Eitthvað fannst ísleifi bónda þetta ekki koma heim og saman sem hér fer á eftir: Ekki skil ég atburð þann, en undur má það kalla, hafi þeir lent í hár saman sem hafa báðir skalla. Næsta vísa er ort um gamlan mann á Sauðárkróki er vann lengi að svarðartekju fyrir bæjarbúa: Ellin vinnur mörgum mein, margir verða hnir, en það er ekki svo með Svein, hann serðir eins og hinir. Nú fara kosningar að nálgast og er hér ein vísa Isleifs sem hann kvað eftir bæjarstjórnarkosningar 1958. Komu foringjar flokkanna í útvarpið og ræddu niðurstöður kosninganna og kvað þá ísleifur vísu þessa: Af kosningunum kynnt oss var, að kempur margar hröpuðu. Allir sigra unnu þar, en einkum þeir sem töpuðu. Ekki hefur ísleifur bóndi aktað gagnrýnendur sem og rétt er og Vísnaþáttur Valdimar Tómasson maklegt. Hefur honum þótt sumir þeirra helst til stórlátir: Hrokinn sveltir sálina sumra og heltir vitið; eru að gelta og gagnrýna, en geta ei melt né skitið. ísleifi varð eitt sinn leit að hatti sínum á mannamóti og tautaði hann þá fyrir munni sér: Einhvers staðar átti ég hatt, ef að vel er leitað, en hvort það er lygi - ég segi það satt, svei mér ef ég veit það. í næstu vísu vísar ísleifur til Landnámu í Kráku-Hreiðar er braut skip sitt á Borgarsandi. Mað- ur sá er um ræðir í þessari vísu sigldi fyrir einstakan klaufaskap upp í brot á Borgarsandi. Hann bjargaðist með naumindum en afli hans og veiðarfæri sukku í sæ: Beitti skeiö á Borgarsand, beygður reiði Hrannar. Kastaði veiði, en komst á land, Kráku-Hreiðar II. Halldór Halldórsson, 1880-1955, skósmiður á Sauðárkróki, kallaður Dóri skóari eða Dóri htíi skóari eft- ir aðstæðum. Halldór þessi var dvergvaxinn og fann til vanmáttar síns. Hann var hamhleypa við iðn sína er hann sat að vinnu en lokaði verkstæöi sínu annað veifið og fór þá á túra. Um hann kvað ísleifur svo: Fær sér bjór og faðmar víf, frægðasljór, en spakur. Nú er þjór og nautnalíf. Nú er Dóri rakur. Nauðungarsala á hrossum Eftir kröfu Sölusamtaka ísl. hrossabænda, Véla og þjónustu og Sigurðar F. Guðnasonar fer fram nauðungarsala á 6 hrossum laugardaginn 1. apríl 1995 kl. 12.00 í húsi nr. 8 í Félagshesthúsum Fáks við Bústaðaveg (Neðri-Fák), Reykjavík. Lýsing, aldur og ætt hrossanna er eftirfarandi samkv. upplýsingum uppboðs- þola. Nr. 1. Þjónn, brúnskjóttur graðhestur frá Brekkum, faðir Gáski 920, Hofs- stöðum, móðir Nótt frá Höskuldsstöðum. Nr. 2. Brúnn, 9 vetra, Kolkuóshestur. Nr. 3. Mökkur, grár. Nr. 4. Geisli, 10 vetra, Náttfarasonur. Nr. 5. Rauðstjörnóttur, 9 vetra. Nr. 6. Taktur, 5 vetra, faðir Sindri og móðir Flökkubrún. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMADURINN í REYKJAVÍK Matgæðingur vikuimar Gráðostafylltar grísalundir - með gratineruðum kartöflum Halldór Jónsson, útgerðarstjóri og bæjarfulltrúi á ísaflrði, býður upp á gráðostafylltar svínalundir með gratineruðum kartöflum. Hann segir réttinn tiltölu- lega einfaldan í matreiðslu en reyndar ekki vera neitt megrunarfæði. „Eg á mjög erfitt með að halda mig við mál og vog, sem sést á vaxtarlaginu, og því verður að hafa það í huga þegar uppskriftin er lesin,“ tekur Halldór fram. Hann kveðst vera einn af þeim heimihsfeðrum sem seint verða taldir nægilega atkvæðamiklir í hinum daglegu heimihsstörfum en þegar samviskubitið sé farið að naga hann þyki honum gott að taka örlítið th hendinni í eldhúsinu. ) Gráðostafylltar grísalundir 2 svínalundir 75 g gráðostur svartur pipar, nýmalaður salt, nýmalað olía Sósa 1/2 lítri svínakjötssoð 1/4 1 rjómi 50 g gráðostur Besta leiðin th þess að fylla lundirnar er að stinga sleifarskafti inn í lundirnar endilangar. Ostinum er síðan þrýst inn í lundimar með sleifmni. Lundirnar eru steiktar í ohu á vel heitri pönnu ahan hringinn. Piprað og saltað um leið. Þegar lundirnar em orðnar þokkalega brúnar eru þær settar í 175 stiga heitan ofn í um það bil tíu mínútur. Á meðan lundirnar steikjast í ofninum er sósan lög- uð. Svínakjötssoðinu er hellt á pönnuna og látið sjóða um stund. Passið að skánin eftir steikinguna leysist upp. Gráðostinum er síðan bætt út í og því næst ijóma og látið sjóða uns æskhegri þykkt er náð. Gratineraóar kartöflur 6 th 8 kartöflur Halldór Jónsson. DV-mynd Gisli Hjartarson 1 dl sýrður rjómi 1 dl mjólk 1/2 tsk. season all 1 stilkur sellerí 100 g rifinn ostur Kartöflumar eru afhýddar og sneiddar niður. Sneið- unum síðan raðað í vel smurt eldfast mót. Sýrða ijóm- anum, mjólkinni, kryddinu, sneiddu selleríinu og helmingnum af ostinum er blandað saman og hellt yflr kartöflurnar. Afganginum af ostinum er svo stráö yfir allt saman og kartöflunum stungið inn í 175 stiga heitan ofninn í þrjátíu mínútur. Halldór segir gott að hafa með þessu frísklegt hrásalat. Hann skorar á Ingu Hönnu Dagbjartsdóttur í Reykja- vík að vera næsti matgæðingur. „Hún er ein af mynd- arlegustu húsmæðrum þessa lands.“ Hinhlidin Ætla að verða söngvari - segir Garðar Thór Cortes nemandi Garðar Thór Cortes, nemandi í Söngskólanum í Reykjavík, hefur fengið góða dóma fyrir hlutverk sitt sem Tony í söngleiknum West Side Story. Garöar leikur þar með Valgerði Guðnadóttur sem fer með hlutverk Maríu en þau skiptast á við Felix Bergsson og Mörtu Hall- dórsdóttur. Garðar Thór er líkleg- ast þekktastur fyrir leik sinn í framhaldsmyndaflokknum um Nonna og Manna en einnig hefur hann komið fram í mörgum verk- um íslensku óperunnar. Það er hinn ungi söngvari sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Garðar Thór Cortes. Fæðingardagur og ár: 2. maí 1974. Kærasta: Julia Gold. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Nemandi í Söngskólanum. Laun: Þau eru ekki mikil. Áhugamál: Hestamennska, söngur, útivist, t.d. fjallaferöir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei, aldrei. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Það tengist áhugamálunum en auk þess finnst mér gott að vera heima með fjölskyldunni. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér finnst leiðinlegast aö gera ekki neitt. Uppáhaldsmatur: Lambahryggur. Uppáhaldsdrykkur: íslenskt vatn. Garðar Thór Cortes er nemandi í Söngskólanum í Reykjavík. DV-mynd Brynjar Gauti Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur i dag? Breski spretthlauparinn Linford Christie. Uppáhaldstimarit: Ég les tímarit htið og á því ekkert sérstakt uppá- haldsblað. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan kærustuna? Ég held ég verði að segja mamma. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Því vil ég ekki svara. Hvað persónu langar þig mest að hitta? Domingo. Uppáhaldsleikari: Gunnar Eyjólfs- son. Uppáhaldsleikkona: Valgerður Guðnadóttir. Uppáhaldssöngvari: Æth það sé ekki pabbi, Garðar Cortes. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Það er alla vega ekki Simpson. Æth það sé ekki strákurinn í Jimgle Book, Mogh. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir. Uppáhaldsmatsölustaður: Bæjar- ins bestu. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Enga sérstaka. Hver útvarpsrásanna finnst þér mest? Ég hlusta mest á rás tvö. Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer lítið á skemmtistaði. Uppáhaldsfélag í iþróttum: Fram. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Ég stefni á að vera söngvari. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég ætla aö vinna tíl að safna peningum, feröast innanlands og heimsækja ömmu mína til Eng- lands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.