Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Side 4
4
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995
Fréttir
Nýjar rannsóknaraðferðir þar sem fylgst er með fuglum í gegnum gervihnött:
- dýrara að fylgjast með fuglunum en að fljúga með Saga class, segir fuglafræðingur
Rannsóknir Ólafs Einarssonar fugla-
fræðings hafa leitt í ljós aö álftir geta
veriö frá þijátíu og niður í tíu
klukkustundir að fljúga til og frá ís-
landi yfir Atlantshafið, allt eftir
veöri. Niðurstöðurnar eru byggöar á
sendingum frá nemum, sem festir
eru við fuglana, til gervihnattar í
tölvukerfi í Frakklandi sem vísinda-
menn kaupa aðgang að. Hæðarmæl-
ar á fuglunum hafa einnig gefið þær
óvæntu upplýsingar að álftir fljúga
nánast yfir öldutoppunum alla leið
yfir hafið. Fuglarnir hvíla sig gjarn-
an á sjónum ef um mikinn mótvind
er að ræða.
Rannsóknir Ólafs eru í samvinnu
við breska fuglasérfræðinga. Krist-
inn Skarphéðinsson fuglafræðingur
sagði í samtali við DV aö 15 þúsund
álftir flygju þessa leið tvisvar á ári
hveiju. Nýjasta rannsóknin, sem er
frá 17. mars, leiddi í ljós aö álftir
voru um 30 klukkustundir að fljúga
frá Caelaverlock á Vestur-Skotlandi
til íslands. Álftirnar hrepptu mjög
slæmt veður á leiðinni, mjög hvassa
norðanátt.
Komin til landsins
„Álftaparið fór af stað í hópi frá
Vestur-Skotlandi en djúpt suður af
íslandi fengu álftimar slæmt veður
og settust í nokkra klukkutíma. Þeg-
ar þær voru staddar um 150 kíló-
metra suður af Vestmannaeyjum
ruku þær áfram og flugu nær landi
þrátt fyrir norðanátt. Þær komust
síðan heilu og höldnu til landsins,"
sagði Kristinn.
Þær upplýsingar bárust síðan í gær
frá Hávarði Ólafssyni, bónda á
Fljótakróki í Meðallandi, að álftin
sem var með senditækið hefði þá
sést á næsta bæ sem er Efri-Steins-
mýri.
Ónnur rannsókn í október leiddi í
ljós að álftapar, sem flaug upphaflega
frá Skagafirði, var einungis um tíu
klukkustundir að komast yfir hafið
frá suöurströndinni til Vestur-Skot-
lands í miklum meövindi á um 100
kílómetra hraða á klukkustund.
Meðalflughraði álfta er hins vegar
40-50 km á klukkustund. Parið fór
nánast beint frá Skagafiröi, yfir land-
ið og tii Skotlands. Annað par sem
flaug af staö á svipuðum tíma hafði
viðkomu á 3-4 stöðum á landinu, við
Hofsjökul, Veiðivötn, Skaftá og
Kirkjubæjarklaustur, og tók sér 2-3
daga að fljúga aö suðurströndinni
áður en flogið var vfir hafiö. Það par
fékk einnig meðvind.
Rétt yfir öldutoppunum
Kristinn sagði að fuglafræðingar
hefðu getið sér þess til að álftir flygju
Flug álfta milli islands
og Skotlands
Kirkjubæjark!austur%)
y
.. Skagafjorður fl
s- ÍV'ív'rt j 'V
W/: , _ > . é
■ - •
- Hofsjökull
. •
* V ■'r
*
Velölvótn Q
1 i í'Mí
r. .. .,-•■•
Senditækjunum er
komiö fyrir
undir stélfjöörum
fuglanna.
Flugið tekur frá 30 niöur í
10 klst. allt eftir veöri.
í meðvindi geta álftirnar
náö 100 km hraöa á klst.
ÍSLANP
Kirkiubæjarklaustur
í 5-10 kílómetra hæð á milli landa
en nú Uggi nýjar upplýsingar fyrir -
a.m.k. fuglamir í rannsókninni hafi
nánast flogið yfir öldutoppunum á
leiðinni. Fuglarnir eru um tíu kíló
að þyngd og því lítur út fyrir að þeir
vilji spara sér klifrið í þessa miklu
hæð og eyði orkunni fremur í að
fljúga beina leið vdð yfirborðið.
Umrædd senditæki voru fest á
„þekktar" álftir sem auðvelt þótti að
nálgast í ágúst þegar þær skiptu um
flugfjaðrir og voru ófleygar. Þegar
talið var að álftimar færu af stað
fengu menn að „logga“ sig inn í
franskt upplýsingakerfi um viðkom-
andi gervihnött. Kristinn sagði að
hér væri um dýrt verkefni að ræða:
„Þaö kostar hundmð þúsunda aö
fylgjast með fuglunum og er í raun
dýrara en að fljúga með Saga class.
Með þessu er hins vegar hægt að spá
í flug, hvemig fuglarnir fljúga,
hvernig þeir finna rétta leiö og
hvernig þeir undirbúa sig orkulega.
Þetta sýnir hka fram á að þeir geta
farið beint en hvíla sig á sjónum ef
svo ber undir. Þetta segir okkur einn-
ig að álftirnar taka ákvörðun um
hvernig best sé að fljúga yfir hafið
og þær vdlja eyða lítilli orku í að kom-
ast í háloftin eins og flugvélar - klifr-
ið gæti verið of kostnaðarsamt,"
sagðiKristinn. -Ótt
Verkf allslok með ólíkum hætti
- eftir því hvort um er að ræða innanhússtillögu eða miðlunartillögu
Margir bíða í ofvæni eftir að
kennsla hefjist á ný í skólum lands-
ins. Spumingar hafa vaknað um
hvemig verkfallslok kennaradeil-
unnar gætu orðið.
„Ef fram kemur innanhússtillaga
og samninganefnd kennarafélag-
anna myndi samþykkja hana með
venjulegum fyrirvara um samþykki
félagsmanna yrði verkfallinu aö öll-
um líkindum aflýst strax,“ segir
Gunnlaugur Ástgeirsson, formaður
formanni verkfallsnefndar kennara.
„Þannig hefur það verið í HÍK-verk-
fóhunum að um leið og samninga-
nefndin var búin að skrifa undir með
fyrirvara um samþykki félaganna
var verkfallinu aflýst. Ég tel vdst að
þannig verði það líka nú,“ sagði
Gunnlaugur.
Hann sagði að ef fram kæmi form-
leg miðlunartillaga frá ríkissátta-
semjara, sem skylt væri að bera und-
ir atkvæði í kennarafélögunum, væri
annað uppi á teningnum.
„Slík miðlunartillaga felur ekki í
sér frestun á verkfalh. Lögin um
vdnnudeilur opinberra starfsmanna
eru afskaplega óskýr hvað þetta
varðar og ekkert í þeim um verkfaUs-
lok undir kringumstæðum eins og
þessum. Ég hygg að ef samninga-
nefndunum litist vel á miðlunartil-
lögu og mæltu með því að hún yrði
samþykkt gætu stjómir félaganna
frestað verkfalli. Ef aftur á móti
samninganefndir kennara legðust
gegn tillögunni yrði verkfalli ekki
frestað," sagði Gunnlaugur.
Hann var þá spurður hvaö gerðist
ef sú staöa kæmi upp aö samninga-
nefnd kennarafélaganna klofnaði
þannig að fuUtrúar annars félagsins
segðu já en hinir nei?
„Það veit ég svo sannarlega ekki. í
þvd samkomulagi sem gert var milU
félaganna um samflot í þessum
kjarasamningum var ekki gert ráð
fyrir þessum möguleika: Það var
bara gert ráð fyrir því að félögin
gengu samstiga í gegnum súrt og
sætt í kjarasamningunum. Við verð-
um að athuga það að vdð höfum eng-
ar reglur og ekkert fordæmi fyrir því
hvað beri að gera ef svona fer. Ég tel
aö sá ágreiningur yröi að vera afar
djúpstæður mUU félaganna til þess
að svona færi,“ sagði Gunnlaugur
Ástgeirsson.
Kveðjuleikur Páls Ólafssonar,
hins Utríka handboltamanns,
verður leikinn í dag, laugardag.
Hann verður í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði klukkan
15, og verður kveðjuleikur Péturs
og Páls því Pétur Vilberg Guðna-
son, fyrirUði Hauka, hyggsteinn-
ig leggja skóna á hUluna. Haukar
mæta FH í umræddum leik, að-
gangur er ókeypis og á eftir verða
veitingar á boöstólum og hægt aö
horfa á leik KA og Vals á stórum
skjá i íþróttahúsinu.
Úrslitaleikir
í íshokkíinu
Skautafélag Akureyrar og
Björninn leika um helgina tU úr-
sUta á íslandsmótinu í íshokkí en
leikjunum hefur þurft að fresta
hvað eftir annað vegna veðurs og
vallarskilyrða. Leikirnir fara
fram á skautasvelUnu á Akureyri
klukkan 14 í dag og á morgun.
Það Uð sem vinnur tvo leiki verð-
ur meistari en vinni þau sinn
leikinn hvort mætast þau í hrein-
um úrslitaleUí í Reykjavík.
leikbanná
sunnudag
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals,
var í gær dæmdur í eins leiks
bann af aganefhd HSÍ fyrir um-
mæli í garð dómara í fjölmiðlum
eftir leik Vais gegn KA að Hlíðar-
enda á fimmtudag.
Bannið tekur gildi á hádegi á
sunnudag þannig að Þorbjöm
getur stjórnað sínum mönnum
gegn KA í fjórða úrslitaleik Uð-
anna sem fram fer á Akureyri í
dag en takist KA-mönnum að
sigra og knýja fram hreinan úr-
slitaleik tekur Þorbjöm út banniö
á þriðjudaginn.
Leikinn á Akureyri í dag dæma
Rögnvald ErUngsson og Stefán
Amaldsson, fremsta dómarapar
landsins, og er það að ósk félag-
anna aö þeir dæmi leikinn.
Komi tU hreins úrslitaleikshafa
Valsmenn ákveðið að leikurinn
fari fram í Laugardalshöll en ekki
á HUðarenda.
Spákonan Gríma. DV-mynd ÞÖK
Kvennalistaspákona:
Þrjárkonurí
ráðuneytum
„Ég sé mikla gleði, orku og at-
hafnir og Uka dálítið af slagorö-
um. ÚrsUt kosninganna verða
mjög jákvæð fyrir þjóöina. Ég sé
margar konur með mikla orku
og þrjár þeirra verða í forsæti
ráöuneyta. Ég held að það verði
kona í félagsmálaráöuneyti og
heUbrigöisráðuneyti enégsé ekki
alveg hvar þriðja konan verður,“
segir Gríma, spákona á vegum
Kvennalistans, sem verður í
Kolaportinu eftir klukkan 13 í dag
til að spá í spU og kúlu fyrir fólk
og stjómmálaflokka.
/