Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 5 I | < I SÖNN VELFERÐ byggist á þ ví að fólk hafi atvinnu og viðunandi afkomu. Til aldamóta þarf að skapa 12.000 ný störf svo atvinnuleysinu verði útrýmt. Þau verða ekki til nema ríkisvaldið stuðli að myndun þeirra og hjálpi til við að leita nýrra leiða. VlÐ LEGGJUM MEÐAL ANNARS ÁHERSLU Á ÞETTA • Ríkissjóður verji einum MILLJARÐI KRÓNA TIL NÝSKÖPUNAR atvinnulífinu. • Leitað verði samkomulags við lífeyrissjóði um ÁHÆTTUFÉ TIL NÝSKÖPUNAR og Iðnþróunarsjóði verð breytt í áhættufjármagnssjóð til að auðvelda stofnun nýrra fyrirtækja. I • Þeir sem vilja hefja sjálfstæðan atvinnurekstur hafi AÐGANG AÐ RÁÐGJÖF og leiðbeiningum. • MARKAÐSSTARFSEMI OKKAR ERLENDIS verði efld með því að styrkja starfsemi Utflutningsráðs, Ferðamálaráðs og Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar. Einnig verði utanríkisþjónustan endurskipulögð og aukin verði kynning á möguleikum erlendra fjárfesta hérlendis. • íslendingar verði í enn ríkara mæli VIRKIR ÞÁTTTAKENDUR í þeirri miklu byltingu sem nú gengur yfir á sviði fjarskipta og rafeindatækni. • Að nýjum fýrirtækjuin verði gefinn kostur á SERSTÖKUM AFSLÆTTI AF ORKUVERÐI fyrstu starfsárin. Á sama hátt verði starfandi fyrirtækjum veittur afsláttur vegna aukinnar orkunotkunar. VlÐ VILJUM HEFJA MARKVISSA SÓKN til að efla atvinnulífið og skapa ný störf. Þú getur treyst því að við munum taka til hendinni. TlL ÞESS ÞURFUM VIÐ STUÐNING ÞINN. Halldór Ásgrímsson FRAMSOKNARFLOKKURINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.