Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Side 10
I 10 LAUGARDAGUR 25. MARS 1995 - segir Rósa Guðný Þórsdóttir, leikari hjá Leikfélagi Akureyrar Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri: Rósa Guðný Þórsdóttir réðst til Leikfélags Akureyrar sem fastráðinn leikari síðla sumars árið 1993 og hef- ur tekið þátt í nær öilum uppfærslum félagsins síðan og hlotið lof fyrir frammistöðu sína. í gærkvöldi frum- sýndi Leikfélag Akureyrar Djöflaeyj- una eftir Einar Kárason í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og þar er Rósa Guðný í eldlínunni. Hún leikur þar hlutverk Þórgunnar sem er barnmörg ekkja en Rósa Guðný bregður sér einnig í önnur smærri hlutverk í sýningunni. Flestir þekkja andht leikkonunnar án efa af sjónvarpsskjánum en hún var ein af þulum Ríkissjónvarpsins í nokkur ár. Rósu Guðnýju er greini- lega lítið um það gefið að ræða þular- störf sín, enda tilheyra þau fortíð- inni, svo að við snerum okkur strax að leiklistinni. Tíu ár í leiklistinni „Ég útskrifaðist frá Leiklistarskóla ríkisins árið 1985 og fram að þeim tíma að ég fór norður vann ég ýmis störf við leikhús í lausamennsku, meðal annars með Leikfélagi Reykja- víkur, Alþýðuleikhúsinu og Þíbilju. Síðasta hlutverkið mitt áður en ég fór til Akureyrar var hlutverk Nóru í Brúðuheimili íbsens sem Þíbilja sýndi og svo vildi til að fyrsta hlut- verk mitt hjá Leikfélagi Akureyrar var einnig í verki eftir íbsen en það var hlutverk Regínu í Aftur- göngum." Rósa Guðný segir að það sé senni- lega óskastaðan að vera leikari í lausamennsku og hafa nóg að starfa. Hins vegar hafi sú staða komið upp þegar Leikfélag Akureyrar auglýsti eftir leikurum til fastráðningar fyrir tveimur árum að Viðar Eggertsson hafi verið að taka við sem leikhús- stjóri og henni hafi litist vel á að fara norður. „Ég ákvað því að sækja um, það má eiginlega segja að öryggis- leysið í lausamennskunni hafi verið orðið þreytandi og þularstarflö í Sjónvarpinu hafi á þessum tíma ver- ið það launaankeri sem ég hafði.“ Hér er ágætt að vera Rósa Guðný gerði samning við LA til eins árs í einu og framlengist hann sjálfkrafa segi hvorugur aðilinn hon- um upp. En þekkti hún eitthvað til leikhúsmálanna á Akureyri þegar hún flutti sig norður? „Nei, ég hafði að vísu séð sýningar hjá Leikfélagi Akureyrar en þekkti ekkert til hér að öðru leyti. En hér eru margir spennandi leikarar og ágætt að vera. Það skiptir reyndar ekki miklu máli hvar maður starfar ef spennandi verkefni eru í boði og gott samstarfsfólk. Spennandi og krefjandi Hvað um Djöflaeyjuna sem verið var að frumsýna í gærkvöldi, er þetta áhugaverð sýning? „Þetta er mjög spennandi og kre- fjandi verkefni að fást við. Það fjallar um lífið í braggahverfi í Reykjavík eins og það var eftir stríðsárin og þá fátækt sem fólkið bjó við. Ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en að lýsing Einars Kárasonar á lífi þessa fólks sé nokkuð raunsönn því að margar persónur í verkinu eiga sér fyrir- myndir í raunveruleikanum." Rósa Guðný er sem fyrr sagði í hlutverki Þórgunnar sem er fyrrver- andi dægurlagasöngkona. „Hún er drykkfelld ekkja með íjögur börn sem á enga að nema nágranna sína og ræður ekki við örbirgðina og berst í bökkum. Verkið i heild er að mínu mati mjög líflegt og það höfðar áreið- anlega til breiðs hóps fólks og þá ekki síst til ungs fólks.“ . Saknar sinna nánustu Um það hvort Rósa Guðný hyggist starfa áfram hjá Leikfélagi Akur- eyrar segir hún: „Það er allt óákveð- ið ennþá en getur vel komið til greina hafi báðir aðilar áhuga á því. Ég kann ágætlega við mig hérna á Akureyri, hér er fallegt, en veturinn hefur aö vísu verið ansi snjóþungur. Vissu- lega sakna ég oft minna nánustu fyr- ir sunnan og vissulega er meiri ein- angrun hér en í höfuðborginni og minna í boði. Ég hef að vísu unnið með Leikfélagi Menntaskólans, bæði í fyrra og aftur núna, og við erum að fara að frumsýna Silfurtunglið eftir Laxnes innan skamms. Það er mjög skemmtilegt að starfa með þessu unga fólki." Við sleppum ekki leikkonunni án ( þess að minnast aðeins á þularstarf- ið; telur hún að það hái henni eitt- hvað að hafa verið orðin „þekkt and- | lit“ á sjónvarpsskjánum? „Ég er oft spurð þessarar spurning- ar. Þaö getur vissulega verið að það j fari í taugarnar á einhverjum leik- stjórum að ég hafi verið í þessu starfi. Ég hef aðeins einu sinni heyrt að áhorfanda hafi þótt þetta óþægilegt en sá sagði reyndar síðar að þau áhrif hafi runnið af honum. Hvað mig sjálfa varðar flækist það ekkert fyrir mér að hafa verið þula Sjón- varpsins í nokkur ár, það var bara eins og hvert annað starf.“ Rósa Guðný í hlutverki Þórgunnar i Djöflaeyjunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.