Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995
Dagur í lífi Helga Elíasar Helgasonar, varafréttastjóra Sjónvarpsins:
Helgi Elias Helgason, varafréttastjóri Sjónvarpsins, undirbýr nú kosningasjónvarp af miklum móð. DV-mynd GVA
Ég heyri í gegnum svefninn að veð-
urspáin hefur gengið eftir. Það er
loksins byijað að rigna, en það hefur
fleira breyst en veðrið. Ég er þegj-
andi hás enda hef ég verið með iðnað-
armenn í vinnu við að gera upp bað-
herbergið og rykið í íbúðinni hefur
verið yfirþyrmandi.
Ég hlusta á fréttimar í útvarpinu
klukkan átta. Þær snúast um vatns-
veður og hættu á fleiri snjóflóöum
fyrir vestan. Eins og venjulega er
konan mín, Ásdís Asmundsdóttir,
komin upp á undan mér og búin að
lesa blöðin þegar ég loks rumska. Það
hefur alltaf verið minn Akkílesar-
hæll að geta ekki vaknaö fyrr en á
síöustu stundu.
En mér er ekki til setunnar boðið.
Ég þarf að vara mættur í vinnuna
klukkan níu. Bárður Ingi, 10 ára son-
ur minn, fær að sofa lengur enda
enginn skóli vegna kennaraverk-
fallsins.
Ásdís keyrir mig í vinnuna en þar
bíða ýmis verkefni. Fyrir hádegi eig-
um við Þuríður Magnúsdóttir og
Helgi Már Arthursson tveggja og
hálfs tíma fund með Guðna Ingólfs-
syni og Daða Jónssyni hjá Verk- og
kerfisfræðistofunni um grafíska út-
færslu á talnaupplýsingum á kosn-
inganótt. Þeir Daði og Guðni sjá um
tölvuvinnsluna eins og fyrir sveitar-
stjómarkosningamar sl. vor. Undir-
búningur þeirra er langt á veg kom-
inn, en þótt byggt sé í gmndvallarat-
riðum á sama kerfi og fyrir kosning-
amar fyrir fjórum árum, þarf að
mörgu að hyggja. Hér skipta nefni-
lega smáatriðin máli. Við komum
okkur saman um ýmsar breytingar
á þeim myndrænu upplýsingum, sem
hægt verður að kalla fram á skjáinn
á kosninganótt.
Langur undirbúningur
Það var rétt fyrir jólin, þegar ég
kom aftur í vinnu eftir rúmlega fjög-
urra mánaða orlof í útlöndum, að
Bogi Ágústsson fréttastjóri baö mig
að verða „kosningageneráll" Sjón-
varþsins eins og við þrennar síðustu
kosningar. Starfið er fólgið í því að
skipuleggja og halda utan um sér-
staka umfjöllun Sjónvarpsins um
þingkosningarnar 8. aprÖ, í sam-
vinnu viö Þuríði Magnúsdóttur dag-
skrárgerðarmann.
Kosningabarátta flokkanna fer
orðið að verulegu leyti fram í fjöl-
miðlum, ekki síst sjónvarpi. Hlut-
verk Ríkisútvarpsins - hljóðvarps og
sjónvarps - er þýðingarmeira nú en
oftast áður vegna þess að kosið er í
byijun apríl og kosningabaráttan fer
fram þegar allra veðra er von og
snjóalög gera mönnum erfitt um vik
að ferðast um kjördæmin og halda
hefðbundna kosningafundi. Kosn-
ingabaráttan í Sjónvarpinu hófst 10.
mars meö umræðuþætti leiðtoga
flokkanna. Það er lagt upp með mjög
metnaðarfulla kosningadagskrá.
Þegar allt er tahð verða þættir Sjón-
varpsins um stjómmál fram að kjör-
degi 26 talsins. Við þetta bætist svo
kosningavaka með kosningafréttum,
umræðum og fjölbreyttum skemmti-
atriðum að kvöldi kosningadags, sem
líklegt er að teygist fram eftir nóttu
og jafnvel fram undir morgun. Fyrsti
undirbúningurinn að kosningadag-
skrá Sjónvarpsins hófst strax í jan-
úar og undir lok mánaðarins fór ég
út af fréttavöktum til að sinna þessu
starfi eingöngu.
Mikil fundahöld
Og tíminn flýgur áfram og fáir dag-
ar til kosninga. Eftir að hafa tekið
hálfa klukkustund í matarhlé tók við
annar fundur og nú með Ólafi Sig-
urðssyni og Árna Snævarr um skipu-
lag þáttarins „ísland og umheimur-
inn“, sem er einn af fjórum þáttum
um sérstaka málaflokka á vegum
fréttastofunnar, nú fyrir kosning-
arnar. Við veltum fyrir okkur á
hvaða efnisþætti eigi að leggja
áherslu og ræðum um hugsanlega
gesti í sjónvarpssal.
En jörðin heldur áfram að snúast
meðan setið er á fundum. Hrúga af
minnismiðum um að hringja út og
suður hefur safnast upp á skrifborð-
inu. Dagskrárritstjóri þarf að fá upp-
lýsingar fyrir blöðin. Frambjóðendur
vilja vita hvenær þeir eigi nákvæm-
lega að mæta í þennan þáttinn eða
hinn.
Framkvæmdastjórar flokka spyija
hvort kynningarmyndimar þeirra
hafi ekki skilað sér. Svona gengur
þetta.
Flokkakynningar
Fyrstu tvær flokkakynningarnar,
sem flokkamir sjá algerlega sjálfir
um að gera voru á dagskrá þessa
viku. Við Þuríður höfum skoðað
þættina og allir reynast þeir í
stakasta lagi. Við lendum ekki í sömu
vandræðum og danska sjónvarpið
fyrir þingkosningamar í fyrrahaust
en það sá sig knúið til að tilkynna
einum stjórnarandstöðuflokkanna
að kynningarþáttur flokksins yrði
ekki sýndur í sjónvarpinu vegna þess
að í honum vom notaðar myndir af
póhtískum andstæðingum án leyfis
og þeim lögð orð í munn, sem ekki
áttu við rök að styðjast. Myndin var
þó sýnd að lokum eftir að viðkom-
andi póhtíkusar samþykktu fyrir sitt
leyti að þátturinn yrði sýndur.
Deginum var ekki lokið en klukkan
þó langt gengin í sex. Ég var orðinn
kaffiþurfi. Maður hafði gleymt því
að eitthvað væri til sem kallast kaffi-
tími. Með hálfa jólakökusneið á diski
og kaffifant sest ég við tölvuna í
klukkutíma og held áfram þar sem
frá var horfið við að semja kosninga-
handbók. Síðan festi ég á blað ýmis
minnisatriði langt aftur í tímann fyr-
ir fréttamenn sem verða í eldlínunni
á kosninganótt. Slekk á tölvunrti rétt
fyrir klukkan sjö. Hæsin hefur
versnað en það þýðir lítið að fást um
það.
Um sjöleytið var ég kominn heim,
iðnaðarmennimir voru famir, en ég
fékk mjög góðan fiskrétt. Starfsdeg-
inum var ekki alveg lokið því maður
fylgist með öllum fréttatímum. Síðan
reyndi ég að slappa af og kíkti svolít-
ið á ættfræði sem ég hef mjög gaman
af. Ég fór að sofa um tólfleytið en
þessi dagur hafði verið hinn ágæt-
asti.
Finnur þú fimm breytingar? 302
Myndlraar tvær viröast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er aö gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fmim atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikmn
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími að verðmæti kr.
4.950 frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Örvalsbækur. Bækumar. sem eru í verð-
laun, heita: Líki ofaukiö og Bláhjálmur
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö yerð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar em gefnar út
af Frjálsri fjölmiölun.
Vínningamir verða sendir heim.
Merkið umslagiö með lausninni:
Finnur þú firom breytingar? 302
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
esró
Hefurðu þrengt innkeyrsluna í bilskúrinn, Gunnsi?
Nafn:.........................................................
Vinningshafar fyrir þrjú hundmðustu getraun
reyndust vera:
1. Elísa Guðrún Elisdóttir, 2. Bryndís Kristjánsdóttir,
Jörundarholti 25, Mimkaþverárstræti 14,
300 Akranes. 600 Akureyri