Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1995, Side 36
44
LAUGARDAGUR 25. MARS 1995
Sviðsljós
Isabella Rossellini:
Heimtaði að Oldman
færi í afvötnun
í fyrra lýsti Isabella Rossellini því
yfir að hún hefði gefist upp á því að
leita að draumaprinsinum. Núna er
hún með vangaveltur um að giftast
í þriðja sinn. Isabella er sem sé ást-
fangin á ný og sá sem nýtur hylli
hennar er breski leikarinn Gary Old-
man. Þau ætluðu reyndar að ganga
í það heilaga um jólin en Isabella
frestaði brúðkaupinu því hún vildi
að Gary færi í afvötnun, sem hann
og gerði.
Það var við tökur á kvikmyndinni
Immortal Beloved sem þau hittust. í
myndinni leikur Gary Beethoven og
Isabella ungverska ástkonu hans,
greifynjuna Önnu Marie Erdody.
Gary, sem er 36 ára, og Isabella, sem
er 42 ára, urðu ástfangin og fóru svo
leynt með það að samstarfsfólkið
kom af ijöllum þegar þau loks
greindu frá því.
Isabella sætti sig hins vegar ekki
við drykkjuvandamál Garys og sagði
við hann að þau gætu ekki búiö sam-
an nema hann hætti að drekka. Hon-
um fannst rómantískt að drekka vín-
glas með Isabellu og saknar þess að
geta það ekki. Hún kveðst skilja það
því þó hún drekki ekki mikið þá finn-
ist henni gott að fá sér vínglas með
mat.
Isabella er ekki vön að gefast upp
fvrir erfiðleikum. Þegar Lancome
snyrtivörufyrirtækiö sagði upp
samningnum við hana, þar sem hún
þótti orðin of gömul, fór hún á fund
keppinautarins, Lancaster, með hug-
myndir sínar. Hún hefur nú starfað
hjá Lancaster í um þaö bil tvo mán-
uði.
Að því er Isabella greinir frá liggur
henni ekkert á í hjónaband. Hún á
tvö misheppnuð hjónabönd að baki,
með kvikmyndaleikstjóranum Mart-
Isabella Rossellini og Gary Oldman í hlutverkum sínum í kvikmyndinni
Immortal Beloved.
in Scorsese og Jonathan Wiedemann
sem er fyrirsæta. Hún var einnig í
löngu sambandi með kvikmynda-
leikstjóranum David Lynch.
Isabella er tveggja barna móðir.
Hún eignaðist dótturina Elettru, sem
er 11 ára, með Wiedemann og nýlega
ættleiddi hún dreng, Roberto, sem
er á fyrsta ári. Gary var kvæntur
leikkonunum Lesley Manville og
Umu Thurman en er barnlaus.
Þegar snyrtivörufyrirtækið Lancome
sagði upp samningnum við Isabellu
Rossellini fór hún til keppinautarins,
þýska fyrirtækisins Lancaster.
Linda Evans og gríski tónlistar-
maðurinn Christoph Yanni.
Linda Evans:
Forsetafrú í
Grikklandi?
Linda Evans, sem er oröin 51
árs, er enn yfir sig ástfangin af
gríska tónlistarmanninum Chri-
stoph Yanni. Þegar Yanni, sem
er 11 árum yngri en Linda, hélt
tónleika í Aþenu á dögunum var
hann hylltur eins og guð. Orð-
rómurinn segir aö eftir þessar
frábæru viötökur hafi Yanni far-
ið aö velta því fyrir sér hvort
hann ætti að bjóða sig fram sem
forsetaefni.
Linda hefur lýst því yfir að þau
hafi þekkst í þúsundir ára, þau
hafi verið konungshjón til foma.
Andlegur ráðgjafi Lindu, Ramt-
ha, hefur sagt að sá möguleiki sé
fyrir hendi að hún eigi eftir að
verða forsetafrú í Grikklandi.
Ivana Trump æf
út í kærastann
Ivana Trump er sögð svo æf yfir
því að ítalskur kærasti hennar skuli
hafa leyst niður um sig fyrir framan
hertogaynjuna af Jórvík að hún er
jafnvel að hugsa um að segja honum
upp.
Atburðurinn átti sér stað á góð-
gerðarsamkomu í London. Sjálf stóð
Sara Ferguson í þeirri trú að haldið
yrði sakleysislegt bingó. Hún trúði
ekki sínum eigin augum þegar
veislustjórinn bað nokkra karlkyns
gesti að sýna á sér leggina.
Ivana var í Bandaríkjunum að aug-
lýsa bók eftir sig og gat því ekki ver-
ið á samkomunni þar sem hún átti
að sitja við hliðina á Söru. Hún hafði
ekki hugmynd um aö unnustinn, Ric-
ardo Mazzuc’chelli, hefði farið í henn-
ar stað.
Að sögn vina Ivönu rifnaði þakið á
húsi hennar næstum af þegar hún
sá úrklippur úr bresku blöðunum
þar sem greint var frá leggjasýning-
únni.
Leggjasýningin sem olli uppnáminu.
Ivana og kærastinn Ricardo.
Ólyginn
Stallone hefði
flutt frá Los Angeles og væri
búlnn að kaupa sér glæsivillu i
Miami. Sylvester borgaði 8 millj-
ónir dollara fyrir herlegheitin.
Jarðskjálftinn i Los Angeles og
ástarvandamál urðu tii þess að
flýta fyrir flutningnum.
... að kvikmyndaleikkonan Sally
Fields hefði átt við matarvanda-
mál að stríða í mörg ár. Sally
féll nýlega í yfirlið við kvik-
myndatökur og var gefið í skyn
að hún væri með flensu. Þeir
sem til þekkja þykjast vita betur.
... að Clint Eastwood hefði
i faðmlögum við unga sjónvarps-
fréttaþuiu í heímabæ sfnum,
Carmel í Kaliforntu. Á meðan var
Frances Fisher, móðir átján
mánaða gamallar dóttur Clints,
fjarri góðu gamni.
jarlsins af Mountbatten og guð-
dóttir Karls Bretaprins, tæki upp
hanskann fyrir prinsinn. Hún
segir ekki hægt að hugsa sér
betri guðföður. India, sem er fyr-
irsæta hjá Elite í New York, seg-
ir Karl meira að segja fylgjast
með frama hennar á síðum
glanstimaritanna.
... að Tommy Lee gæti varla
beðið eftir því að eignast barn
með nýrri eiginkonu sinni, Pa-
melu Anderson. Núna er rúmur
mánuður síðan þau komu ölium
á óvart með þvi að ganga i
hjónaband i Cancun í Mexikó.