Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL 6-8 LAUGAftDAGS-OG MANUDAGSMORGNA
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1995.
Lausn grálúðudeilunnar: '
Mikilvæg nið*
urstaða
w— - segir Þorsteinn Pálsson
„Ég tel að þetta sé mjög mikilvæg
niðurstaða fyrir allar fiskveiðiþjóðir.
Mikilvægast er aö sátt skuli verða
um að það þurfi að stjórna veiðum
úr stofnum sem ganga inn og út úr
lögsögu og að Evrópusambandið
skuli failast á virkt eftirlit með veið-
unum,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra um samkomulag
það sem náðist um páskahelgina
milli Kanada og Evrópusambandsins
í grálúðudeilunni.
„Við höfum alltaf verið fylgjandi
því að komið væri á stjórnun og haft
yrði virkt eftirlit með henni. Sjálfir
eigum við eftir að semja um mikil-
væga hagsmuni sem eru okkur hér
nær. Þá veltur á miklu að það verði
viðurkennt virkt eftirlit með þeim
veiðum." - sjá bls. 8
Jeppi valt
IVíðidal
Bílvelta varð í Víðidal skammt frá
Blönduósi á fimmtudagsmorgun þeg-
ar jeppi lenti í krapa á veginum og
' ökumaðurinn missti stjórn á honum.
Ökumaðurinn, sem var fullorðinn
maður, var fluttur á Landspítalann.
Hann reyndist ekki mikið slasaður.
Þrír farþegar voru í bílnum og slös-
uðust þeir lítið.
-GHS
Jón Baldvin Hannibalsson kemur á fund Halldórs Ásgrímssonar i Alþingishúsinu seint í gærkvöld. Jón Baldvin, Ólafur Ragnar Grímsson og Kristín
Ástgeirsdóttir óskuðu eftir fundinum eftir að tíðindin um væntanlega stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks spurðust út. Fundurinn var haldinn í
þingflokksherbergi framsóknarmanna klukkan tíu í gærkvöld. Af hálfu Framsóknarflokksins mun hafa verið litið á fundinn sem tækifæri til að „hreinsa
andrúmsloftið" milli flokkanna. Eftir fundinn sagði Ólafur Ragnar við DV að Halldór hefði sagt sig skuldbundinn Sjálfstæðisflokknum og væri ekki lengur
tilbúinn í myndun vinstri stjórnar. DV-mynd JAK
Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks fallin:
Hálendið:
Þyrlanfann
jeppamanninn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Hjálprsveitlr á Akureyri hófu á
sunnudagskvöld leit að manni sem
farið haíði einn á jeppa sínum upp á
hálendið sl. föstudagsmorgun. Mað-
urinn var án allra fjarskiptatækja
og ekkert haföi frést afhonum þegar
leit hófst.
Þó var ljóst að maðurinn hafði
komið í skála við Laugafell og að
þaðan hafði hann ætlað í Nýjadal.
Þangað skilaði maðurinn sér ekki og
leit 'var því hafin.
Björgunarsveitarmenn frá Akur-
eyri fóru beggja vegna Skjálfanda-
fljóts og í gærmorgun fór þyrlan til
leitar. Tæpum tveimur tímum eftir
að þyrlan lagði af stað fannst maður-
inn skammt frá Hofsjökli og hafði
hann fest bíhnn þar. Ekkert amaði
að manninum sem var fluttur til
Reykjavíkur en það bíöur betri tíma
að sækja bíl hans.
Davíð hitftir Vigdísi í
dag og biðst lausnar
- ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks líklega mynduð seinna í vikunni
Davíð Oddsson forsætisráðherra
mun biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks á
fundi með forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur, í dag. Sjálfstæðis-
flokkur sleit viðræðum við Alþýðu-
flokk í gærmorgun en þær höfðu
staðið yfir frá kosningum. Fuhvíst
er talið að Davíð fái fyrstur umboð
til myndunar nýrrar ríkisstjórnar og
muni kalla Framsóknarflokk til við-
ræðna. Reiknað er með að þær við-
ræður beri fljótlega ávöxt og Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarflokk-
ur myndi næstu ríkisstjórn. Ekki er
talið ósennilegt að stjórnin verði til-
búin síðar í vikunni.
Fulltrúar stjórnarflokkanna hitt-
ust á fundi á laugardagskvöld og í
gærmorgun óskaði Jón Baldvin
Hannibalsson eftir fundi meö Davíð
Oddssyni þegar hann fregnaði að
Davíð og Halldór hefðu hist að kvöldi
páskadags. Á fundinum í gærmorg-
un tilkynnti Davíð Jóni að Sjálfstæð-
isflokkur hefði ákveðið að slíta við-
ræðum við Alþýðuflokk og að hann
myndi biðjast lausnar fyrir ríkis-
stjórnina í dag. Þingflokkum stjórn-
arflokkanna var síðan tilkynnt þessi
ákvörðun í gær.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, staðfesti í
samtali viö DV að hann heföi rætt
viö Davíð um mögulega stjórnar-
myndun. Þannig var meirihluta
þingflokks Framsóknarflokks hóað
saman á fund í gær þar sem Halldór
tilkynnti honum tíðindin og fékk
samþykki hans um viðræður við
Sjálfstæðisflokkinn.
Davíð Oddsson vildi ekkert ræða
við fjölmiðla í gær, ekki fyrr en eftir
fund með forseta íslands í dag.
Gangi viðræðurnar eftir milli
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks verður ríkisstjórnin með 40
þingmanna meirihluta, þann mesta
sem tveggja flokka stjórn býöur upp
á eftir kosningarnar 8. apríl sl. Sjálf-
stæðisflokkur fékk þá 37,1% atkvæða
og 25 þingmenn kjörna og Framsókn-
arflokkur 23,3% og 15 þingmenn.
Þessir flokkar mynduðu síöast ríkis-
stjórn 1983-1987 og þar áður 1974-
1978. '
- sjá nánar á bls. 2
LOKI
Var það ekki þetta
sem kjósendur vildu?
Veðrið á morgun:
Víðast
frost
Nokkuð hefur kólnað síðustu
daga og á hádegi á morgun er gert
ráð fyrir að hitinn veröi víðast hvar
undir frostmarki. Á öllu landinu
verður norðan- og norðaustan-
kaldi, víða éljagangur, en léttskýj-
að verður á Suður- og Vesturlandi.
Heitast verður á suðvesturhorn-
inu, um frostmark, en á Vestfjörð-
um og'á Norðurlandi verður 6 til 7
stiga frost.
Veðrið í dag er á bls. 36.
PT-7000
Merkivél
m/íslensku letri
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443
K I N G
Ltm
alltaf á
Miövikudögum