Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
5
Fréttir
Vilhjálmur Egilsson um nýstofnuö Evrópusamtök:
Davíð taldi heppi-
legra að ég gæf i
ekki kost á mér
„Davíð Oddsson kom að máli við
mig og sagði það sína skoðun að hann
teldi það heppilegra að ég gæfi ekki
kost á mér til starfa í þessum samtök-
um. Hann bað mig að hugsa málið.
Fyrst hann fór fram á þetta fannst
mér réttara að verða við þvi frekar
en að búa til eitthvert ergelsi fyrir
mig eða samtökin," sagði Vilhjálmur
Egilsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, við DV, en aðstandendur
nýstofnaðra Evrópusamtaka báðu
hann að sitja í fulltrúaráði samtak-
anna.
Ólafur Stephensen, formaður sam-
takanna, hélt því fram á stofnfundin-
um að forystumenn stjómmálaflokk-
anna hefðu meinað nokkmm þing-
mönnum sínum að taka þátt í starfi
samtakanna.
Vilhjálmur sagði að þessi ákvörðun
breytti engu um skoðanir sínar á
Evrópumálum, hann væri eftir sem
áður á því að íslendingar ættu að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu.
„Það er gott að þessi samtök eru
komin af stað. Ég get tekið þátt í
starfi þeirra þótt ég sitji ekki í full-
trúaráðinu. Auk þess hef ég næg til-
efni til að koma skoðunum mínum á
framfæri í Evrópumálum, hvort sem
er innan samtakanna eða utan
þeirra," sagði Vilhjálmur. -bjb
6 stunda verkfall
Bakarasveinar og viösemjendur nokkrum sérkröfum en launa-
þeirra náðu samkomulagi snemma hækkunin mun vera á nþtum
i gærmorgun. Þá halði verkfall ASÍ/VSÍ samningsins frá í vetur.
bakara staðið í 6 klukkustundir. Verkfalli bakarasveina er frestað
Bakarasveinar fóru fram á að þar tfl atkvæðagreiðsla hefúr farið
orlof þeirra lengdist um þrjá daga fram innan félagsins um þennan
en fengu einn. Þá náðu þeir fram nýja Kjarasamning.
Þessum bíl hefur verið ekið 105 þúsund km frá þvi hann var tekinn í notkun
til ferða milli Reykjavíkur og Hornafjarðar fyrir 10 mánuðum. DV-mynd Júlía
Landslagsmyndir á
vöruflutningabíl
Júlía Imsland, DV, Homafirði:
Einn af vöruflutningavögnum
Kaupfélags Austur-Skaftfellinga hef-
ur verið myndskreyttur á báðum
hliðum með myndum frá Hornafirði.
Þessa ágætu hugmynd fékk Bjöm
Jónsson hjá vöruafgreiðslu KASK og
fyrirtækið Pamfill í Reykjavík sá um
verkið. Myndimar tóku Ragnar Th.
og Siguijón Sigurðsson.
Mikil aukning hefur orðið á flutn-
ingiun með bílum milli Hornafjarðar
og Reykjavíkur og er KASK með tvo
flutningabíla á þessari leið.
Skrásetningargjald Háskóla íslands:
Nýir útreikningar
til umboðsmanns
„Við verðiun við tilmælum um-
boðsmanns Alþingis um að telja
fram kostnaðarliði, vissulega í víð-
ari skilningi orðsins, sem við telj-
um að megi fella undir kostnað sem
hlýst af skráðum nemanda í skól-
anum,“ segir Sveinbjöm Björnsson
háskólarektor.
Umboðsmaður Alþingis skilaði
nýlega áliti í tilefni kvörtunar nem-
anda Háskólans vegna skólagjalda.
Umboðsmaður telur að Háskólan-
um sé heimilt að innheimta skrá-
setningargjöld en í þeim megi ekki
felast skattlagning. Lítur umboðs-
maður svo á að skrásetningargjald-
iö hafi ekki mátt vera hærra en sem
nemui' kostnaði á þeirri þjónustu
sem veitt er. Hins vegar sé fjárhæð
gjaldsins byggð á sjónarmiðum um
öflun tekna til að standa undir al-
mennum kostnaði við yfirstjóm
skólans. Skrásetningargjaldið hafi
verið byggt á lögmætum sjónar-
miöum en óljóst sé hvort það hafi
veriö of hátt. Til að fá úr því skorið
beinir umboðsmaður þeim tilmæl-
um til Háskólans að reikna út íjár-
hæð skrásetningargjalds í sam-
ræmi við ofangreind sjónarmið.
„Umboðsmaður mun væntanlega
segja álit sitt á okkar útreikning-
um. Ef umboðsmaður tekur okkar
rök ekki gild munum við óska eftir
að annað hvort gerist - að Alþingi
veiti fé sem nemur þeim mun sem
er á heimild okkar til að innheimta
skrásetningargjöld og þess sem að
umboðsmaður teldi rétt að við
tækjum eða þá að Alþingi breytti
lögum um Háskóla íslands þannig
að hann fengi heimild til að inn-
heimta þessi skrásetningargjöld,"
segjrSveinbjöm. -pp
Skipalyftanleigð
Daníel Ólafeson, DV, Akranesi:
Verið er að ganga frá samningum
milli Hafnarsjóðs Akraness og Skipa-
smíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts hf.
um að stöðin taki á leigu skipalyft-
una sem hafnarsjóður eignaðist við
gjaldþrot Þorgeirs og Ellerts hf.
Virgin á kynningarverði.
Aðeins kr. 4.499,-
Kringlunni
Laugavegi 96
stórverslun
Laugavegi 26
FULL BÚO AF HJÓLUM
Á FRÁBÆRU VERÐI!
Um 200 mismunandi tegundir,
stærbir og litir af reiðhjólum.
Vönduð, traust hjól frá
viburkenndum framleibendum.
Hjólin eru afhent samsett og stillt
á fullkomnu reibhjólaverkstæbi.
Á okkar hjólum er árs ábyrgb og frí
upphersla eftir einn mánub.
BARNAHJOL
[iijii' r'riit'
> frá kr. 9.600JS
stgr. kr. 9.120.
Varahlutir og aukahlutir: Hjálmar,
barnastólar, bjöllur, brúsar, töskur,
dekk, slöngur, hrabamælar, Ijós og
flest annab, sem þig vantar á hjólib.
DÖMUHJOL
FJALI
IOL
Herra- og dömustell.
18 gíra, verb frá kr. 20.900, stgr. 19.855.
21 gíra, verb frá kr. 25.900, stgr. 24.605.
Topp merkin:
GIANT
SCOTT
BRONCO
SCHWINN
EUROSTAR
DIAMOND
ITALTRIKE
VIVI
/ /
ÞRIHJOL
\ r
Verb frá kr. 3.450.
t /
Sendum
3 gíra, verb frá kr. 23.900, stgr. 22.705.
18 gíra meb öllu, verb frá kr. 28.900, stgr. 27.455.
Kreditkort og greibslusamningar. Ármúia 40 - símar 35320 og 688860
í póstkröfu.
l/erslunin
AMRKID