Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
Stuttarfréttir
Áfratnósteininum
Yfirmaður auglýsingafyrirtæk-
is Silvios Berlusconis þurfti að
dúsa áfram í steininum vegna
rannsóknar á meintri ijármála-
spillingu.
Ofbeidi i Pakistan
Sex manns, þar af tvö böm,
týndu lífi í ofbeldisverkum í
Karachi í Pakistan þar sem 120
manns hafa veriö drepnir und-
anfarinn mánuð.
Juppéstyðuropinbera
Alain Juppé,
forsætisráð-
herra Frakk-
lands, undir-
strikaði í gær
stuðning sinn
við opinbera
geirann en
verkalýðsfélög
ætla að mótmæla í dag og á morg-
un áformum um að leysa upp ein-
okunarfyrirtæki ríkisins.
Skotíð í Egyptalandí
Byssumenn, sem grunur leikur
á að séu bókstafstrúarmenn,
skutu þijá óbreytta borgara í suð-
urhluta Egyptalands.
HótaóEátum
Nokkrir frambjóðendur, sem
ekki fa að taka þátt í kosningum
á Haítí í næsta mánuöi, hafa hót-
aö að spfila fyrir framkvæmd-
inni.
Juppéfæraðstoð
Alain Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, hefur fengið stuðn-
ing tvennra samtaka atvinnurek-
enda við að reyna að skapa eina
milljón nýrra starfa á þremur
árum.
Ofsnemmtaðröfla
Yitzhak Rab-
in, forsætisráö-
herra ísraels,
sagði aö of
snemmt væri
fyrir andstæð-
inga brott-
hvarfs frá Gol-
an-hæðum
að röfla þar sem skiiyröum fyrir
brottflutningnum hefði ekki ver-
ið fullnægt
ÓsiguríMexíkó
Upprennandi leiðtogi stjómar-
andstöðunnar í Mexikó vann
stórsigur á stjómarflokknum í
fylkiskosningum.
VerslunogvíðskipU
íranir og Króatar hafa gert
samning um sölu og kaup á olíu
og skipum.
Þjóðarsorgámorgun
Borís Jeltsín
Rússlandsfor-
seti hefur lýst
yfir þjóðarsorg
í landinu á
morgun vegna
fórnarlamba
jarðsHiálftans
mikla sem varö
á Shakalín-eyju um helgina.
Sterktheróín
Fjórir sænskir heróínsjúkling-
ar voru feerðir á sjúkrahús i Hels-
ingjaeyri í Danmörku eftir að
hafa fundist meðvitundarlausir á
almenningssalemi. Mjög sterku
heróíni, sem er í umferð, er um
að kenna en meðvitundarlausir
eiturlyfjaþrælar hafa verið dag-
iegir gestir sjúkrahúsanna í Hels-
ingjaeyri.
Pyria nauðteirti
Þyrla nauðlenti og valt á hliðlna
í snjóskafi í Thule á Grænlandi.
Engan um borö sakaði.
ClnaiaMAMM LJLAm i inaJil
r lugmenn íioiói verHTaiu
Flugmenn flugfélagsins SAS
hóta að fara í verkfail 14. júní og
stööva þannig allt Ðug féiagsms
vegna launadeilna.
Reuter, Kitzau
Utlönd
Skortur á krönum tefur börgunarstörf eftir jarðskjálftann á Shakalín-eyju:
T'alið að margir séu
enn á Ivf i í rústunum
Björgunarmenn í bænum Nefte-
gorsk á Shakalín-eyju, austur af
Rússlandi, eru sannfærðir um að
fjöldi manns sé enn á lífi í rústunum
eftir jarðskjálftann sem reið yfir eyj-
una á sunnudagsmorgun. í skjálftan-
um, sem mældist 7,5 stig á Richter-
kvarða, hrundu háhýsi eins og spila-
borgir og bærinn lagðist nánast í
rúst. Björgunarmenn hamast í kapp
við tímann við að finna fleiri á lífi
en talið er að um tvö þúsund manns
sé enn saknað. Snemma í morgun
sagði Tass-fréttastofan að 325 lík
hefðu fundist í rústunum en 353
hefðu fundist á lífi, margir ifla slas-
aðir.
Skortur á stórvirkum krönum tef-
ur björgunarstörf en flytja þarf
þungar steypublokkir til að komast
að fólki sem hugsanlega er á lífi. En
tíminn er naumur. Séu fleiri lifandi
eru þeir flestir slasaðir og ekki bætir
úr skák að hitinn fer niður fyrir
frostmark á nóttunni. Björgunar-
menn hættu allir vinnu í rústunum
á ákveðnum tímapunkti í gær og
hlustuðu eftir lífsmarki. Þá fundust
32 á lífi og var tmnið að björgun
þeirra.
Um 800 manns vinna við björgun-
arstörfm. Nokkrir þeirra sem bjarg-
að hefur verið úr rústunum hafa
kvartað yfir seinagangi við björgun-
arstörfin en engu að síður er mikill
þrýstingur af hálfu yfirvaida að unn-
ið sé eins hratt og mögulegt er að
björgun eftirlifenda.
Þrátt fyrir bjartsýni um að fleiri
finnist hfandi undir gríðarlegum
grjót- og málmhaugum setja líkin
dapran svip á Neftegorsk. Þau liggja
Hún var heppin þessi filippseyska húsmóðir sem hér er látin síga varlega niður úr íbúðinni sinni á tólftu hæö
fjölbýlishúss í Maniia á Filippseyjum þar sem eldur kom upp i gær. Litlu mátti muna að nokkrir Japanir og Tai-
vanbúar lokuðust inni í byggingunni af völdum eldsvoðans. símamynd Reuter
Norskir sjómenn 1 mótbyr í Dyflinm:
Fá ekki að f lytja kjötið út
Gíali Kristjánsaon, DV, Ósló:
Norskir hrefnusjómenn búa sig nú
undir ósigur á ársfundi Alþjóða hval-
veiðiráðsins í Dyflinni á írlandi. Tölum
visindamanna þeirra um fjölda hrefna
í sjónum er ekki trúað og engar líkur
eru á að heimild fáist til að flytja út
kjötið sem berst á land á þessari vert-
íð. Ofan í kaupið er ósamkomulag um
hver eigi að greiða kostnaðinn við eftir-
titiö með veiðunum.
Norðmenn segja að um 75 þúsund
hrefnur séu í Norður-Atlantshafi. i
fyrra töldu þeir 87 þúsund hrefnur
en urðu að viðurkenna að sú tala var
á misskilningi byggð og breyttu
henni í 65 þúsund dýr. Þessi óvissa
hefur leitt til þess aö meirihluti fuh-
trúa á ársfundinum í Dyflinni trúir
ekki á útreikninga Norðmannanna.
Meðan svo er þurfa norskir hrefnu-
sjómenn ekki að reikna með aö fá
heimild til að flytja út kjöt. Þeir ætla
í ár að skjóta á þriðja hundrað hrefn-
m- en kjötið er ihseljanlegt á heima-
markaði og óvíst hvort veiöamar
borga sig meðan ekki er hægt að
koma afurðunum á borð Japana.
Káre Bryn, fulltrúi Noregs á árs-
fundinum, féllst á þá niðurstöðu
hvalveiðiráðsins að skekkjur hefðu
veriö í stöfnstærðarmatinu en hann
sagði að nýju útreikningunum væri
treystandi.
„Við höfum ekki ástæðu til að ætla
annað en að þessar tölur séu rétt-
ar,“ sagði Bryn við fréttamenn við
lok fyrsta dags ársfundarins.
Á þriðja hundrað grænfriðungar
mótmæltu hvalveiðum Norðmanna
fyrir utan fundarstaöinn.
um allt og standa sums staðar hm-
lest út úr steypu- og gijóthaugunum.
Óttaslegnir ættingjar safnast saman
við upplýsingatöflur þar sem nöfn
eftirlifenda eru hengd upp.
Rússneskur embættismaður í Nef-
tegrosk sagði hamfarirnar undir-
strika það hugsunarleysi stjómvalda
á Sovét-tímanum sem fæhst í að reisa
háar byggingar á virku skjálfta-
svæði.
Reuter
skotinnálóð
Madonnu
Óvopnaður maöur sem laumast
hafði yfir girðingu umhverfis
glæsivfilu söngkonunnar Ma-
donnu í Hollywood-hæðum var
skotinn þremur skotum í átökum
við öryggisvörö í nótt. Maðurinn
klifraði yfir girðinguna skömmu
eftir miönætti og lenti strax í
átökum við öryggisvörðinn þegar
hann reyndi að afvopna hann.
Öryggisverðinum tókst að hrinda
manninum í burtu en þegar hann
gerði aðra atjögu skaut öryggis-
vörðurinn og hæföi hinn óboðna
gest í handlegg og kviðarhoi.
Maðurinn var fluttur á sjúkra-
hús en var ekki lífshættulega
særður. Hann mun heita Hotch-
kiss og heíur margsinnis haft í
hótunum viö söngkonuna. Ma-
donna var ekki heima þegar at-
vikið átti sér stað en maöurinn
komst tnj ög nálægt húsi hennar.
Þetta er í annað skiptið sem
óboðinn gestur reynir að komast
inn í hýbýh Madonnu en í júlí var
maður handtekinn eftir að hafa
komist inn á lóðina.
Súpermandatt
afhestbaki
Leikarinn Christopher Reeves,
sem þekktastur er fyrir leik sinn
sem Súperman í samnefndum
kvikmyndunum, féh af hestbáki
og hlaut alvarleg hálsmeiðsl í
reiökeppni í Virginíufylki um
helgina. Hestur Reeves stoppaði
mjög skyndilega þannig að leik-
arinn hentist ffam fyrir sig og
lenti á höfðinu. Reeves var með
hjálm sem tahð er aö hafi bjargað
lfii hans. Hann er á gjörgæslu en
úr lífshættu. Reeves er vanur
hestamaður og á fjölda hesta svo
ekki er ókunnugleika um að
kenna. Reuter