Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Fréttir
Ný lög um þingfararkaup afgreidd í gærkvöldi:
Gætu aukið tekjur
þingmanna mikið
- þingforsetifærráöherralaun,bílogbílstjóra
Lög um breytingar á þingfarar-
kaupi og þingfararkostnaöi voru af-
greidd með forgangshraöi á Alþingi
í gær. Þaö tók ekki nema 4 klukku-
stundir frá því Geir H. Haarde, for-
maður þingflokks Sjálfstæöisflokks-
ins, mælti fyrir frumvarpinu þar til
það var búiö aö fara í gegnum 3
umræður og orðið aö lögum. Frum-
varpið var flutt af formönnum allra
þingflokka nema Þjóövaka sem tók
ekki þátt í flutningi þess og sat hjá
viö afgreiðsluna. Hér er ekki um
hinn beina launalið að ræða. Kjara-
dómur ákveður hann.
Það sem vekur mesta athygli í lög-
unum er þrennt. í fyrsta lagi er það
9. grein laganna, þar sem segir að
Alþingi leggi þingmanni til skrif-
stofuaðstöðu, nauðsynlegan búnað
og greiöi kostnað af því. Endurgreiða
skal þingmanni símakostnað. En síð-
an kemur málsgreinin sem er um-
deild og vakti upp umræður á þing-
inu í gær. Kvennalistakonur bentu á
að þarna væri falin hætta á að hægt
væri að misnota þetta til þess að
hækka tekjur þingmanna svo lítið
bæri á. Þessi málsgrein hljóðar
svona.
„Endurgreiða skal þingmanni ann-
an starfskostnað samkvæmt reglum
sem forsætisnefnd setur. Heimilt er
að greiða starfskostnað samkvæmt
í þinglokin i gærkvöldi: Guðni Ágústsson, alþingismaður, þakkar forseta
þingsins, Óiafi G. Einarssyni, samstarfið á sumarþinginu. DV-mynd GVA
þessari málsgrein sem fasta fjárhæö
í stað endurgreiðslu samkvæmt
reikningum."
Þetta heitir almennur starfskostn-
aður og er fyrir utan feröakostnað,
húsnæðis- og dvalarkostnað.
Samkvæmt þessum nýju lögum er
nú forseti Alþingis kominn meö
sömu laun og starfskjör og ráðherr-
ar. Fyrir utan launahækkunina fær
hann nú bifreiö og bifreiðarstjóra
eins og ráöherrar. Varaforsetar fá 15
prósent álag á þingfararkaupið. Þá
fær ráöherra, sem ekki er þingmað-
ur, þingfararkaup.
Þá er sú nýjung í lögunum að þing-
menn fá nú fæðingarorlof þann tíma
sem lög og kjarasamningar segja tii
um. Tekur þá varamaður sæti á með-
an en þingmaðurinn skal í engu
missa af launum né föstum greiösl-
um samkvæmt þingfararkaupslög-
unum meðan á fæðingarorlofi stend-
ur. Nýju lögin lagfæra ýmislegt sem
var orðiö úrelt enda ein 30 ár síðan
lögin um þingfararkaup voru sett.
Meðal þess sem hverfur nú er það
vafasama ákvæði að skylda þing-
menn til að vera með lögheimili í
kjördæminu til þess að njóta
greiðslna sem þingmenn utan af
landi hafa. Þá eru fæðispeningar
þingmanna utan af landi afnumdir.
Stuttar fréttir
Chiracskrifar Davíð
Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra hefur borist bréf frá Jacqu-
es Chirac Frakklandsforseta þar
sem skýrt er frá fyrirhuguðum
kjamorkutilraunum Frakka. Við
móttöku bréfsins lýsti Davíð yfir
áhyggjum sínum vegna málsins.
Prestarræðaófrið
Ófriðurinn í kristilegu starfi
verður ræddur á prestastefnu eft-
ir helgi. Tíminn hefur eftir Ólafi
Skúlasyni biskup aö kirkjan
gjaldi fyrir innri væringar.
Forseti í heimsókn
Forseti Finnlands, Martti
Ahtisaari, hefur þegið boð forseta
íslands um að koma i opinbera
heimsókn til íslands í haust.
Hörður verðlaunaður
Hörður Torfason trúbador fær
í dag verðlaun frá menningar-
samtökum samkynhneigðra á
Norðurlöndum. Hörður fær verð-
launin fyrir að hafa veriö óþreyt-
andi í baráttu homma-og lesbía
fyrir mannréttindum á íslandi.
Háskólahátið 17. júní
Brautskráning kandídata frá
Háskóla íslands fer fram á morg-
un, 17. júní. Athöfnin fer í fyrsta
sinn fram í Laugardalshöllinni
og hefst kl. 13. Alls verða 450
kandídatar brautskráðir og auk
þess Ijúka 60 viðbótamámi.
Vending í Reykholtsmáli
Bjöm Bjamason menntamála-
ráðherra íhugar að færa Reyk-
holtsskóla undir Fjölbrautaskóla
Vesturlands og skilgreina skóla-
starfið sem tilraun til tveggja ára.
Ef af verður mun Ólafur Þ. Þórö-
arson hætta sem skólastjóri.
-kaa
Vilhelmína Ragnarsdóttir sem þurfti að sofa í bíl sínum:
Margir hringja
til að bjóða hjálp
- en hún er enn húsnæðislaus
„Eg er voðalega þakklát fyrir það
hversu margir hafa hringt til að
bjóða fram hjálp sína. Það hringdi í
mig kona frá Akureyri sem bauð mér
að koma til sín og Guðrún Guðjoh-
nsen hjá Hundaræktarfélaginu er
búin að setja allt af stað hjá sér.
Starfsmannastjórinn minn hefur
sýnt góðan skilning á þessu. Ég er
búin aö vera mikið frá vinnu vegna
veikinda og svo bætist þetta ofan á,“
segir Vilhelmína Ragnarsdóttir
krabbameinssjúklingur sem hefur
ásamt syni sínum og varðhundi sofið
á gólfi bíls síns í Heiðmörk undan-
farna viku vegna húsnæðisleysis.
Frásögn DV af húsnæðisleysi Vil-
helmínu Ragnarsdóttur á miðviku-
dag vakti mikinn áhuga og höfðu fjöl-
margir samband til að bjóða fram
hjálp sína. Starfsmannastjóri Vil-
helmínu hjá hinu opinbera hafði
samband við Láru Bjömsdóttur, fé-
lagsmálastjóra hjá borginni, til að
athuga hvort hægt væri að hjálpa
Vilhelmínu. Félagsmálastofnun hef-
ur boðið Vilhelmínu að fara á hótel
og setja hundinn á hundahótel en
hún segist ekki geta hugsað sér aö
skilja við hann. Lífið snúist um son
sinn og hundinn.
„Ég vil fá húsnæði um óákveöinn
tíma en ekki flakka úr herbergi í
herbergi. Ég er búin að gera þaö síð-
astliðið ár og get ekki lagt þaö á okk-
ur aö fara úr einum stað í annan.
Félagsmálastofnun hefur bara íbúðir
í blokkum og þar get ég ekki haft
hundinn. Ég er búin aö fá tilboð um
íbúð í Seljahverfi en það er of dýrt.
Ég ræð ekki við það fjárhagslega,“
segir Vilhelmína.
DV hefur rætt við Sigurö R. Blomst-
erberg, fyrrverandi sambýlismann
Vilhelmínu, í tvígang og óskað eftir
viðtali við hann til að hans sjónarmið-
um verði komið á framfæri. Sigurður
hefuralfariðhafnaöviðtali. -GHS
Eldur í íbúðarhúsi:
Miklar
skemmdir
Miklar skemmdir urðu af völdum
elds, vatns og reyks á rishæð húss
viö Njálsgötu síödegis í gær. Eldur
kom upp í fataherbergi hússins sem
er forskalað timburhús, hæð og ris.
Neðri hæð hússins slapp að mestu.
óskemmd.
Grunur leikur á að eldurinn hafi
kvikrtað út frá rafmagni en skemmd-
ir voru mestar við perustæði í fata-
herberginu. Slökkvistarf gekk mjög
vel og var húsið mannlaust þegar
eldurinnkomupp. -pp
Alþmgi:
Tveir kjörnir
í bankaráð
Landsbanka
í gær var kosið á Alþingi í
margar stjórnir og ráð á vegum
ríkisins. í bankaráö Landsbank-
ans voru kjörnir þeir Helgi S.
Guðmundsson, starfsmaður VÍS
og Jóhann Ársælsson, fyrrum
alþingismaður. Þeir koma í stað
Steingríms Hermannssonar
Seðlabankastjóra og Lúðvíks
heitins Jósepssonar. Varamenn
voru kiörin Haukur Halldórsson
bændaforingi og Sigríður Stef-
ánsdóttir frá Akureyri.
í stjórn Landsvirkjunar voru
kjörnir Árni Grétar Fínnsson
hæstaréttarlögmaður, Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi
alþingismaður, og þingmennirnir
Sturla Böðvarsson og Svavar
Gestsson.
í Þingvallanefnd voru kjörnir
Björn Bjamason menntamála-
ráöherra, Gísli Ágústsson og Öss-
ur Skarphéðinsson alþingismaö-
ur.
í stjóm Byggðastofnunar vom
kjömir Egill Jónsson alþingis-
maður, Stefán Guðmundsson al-
þingismaður, Einar K. Guðfinns-
son alþingismaður, Guðjón Guð-
mundsson alþingismaður, Krist-
inn H. Gunnarsson alþingismað-
ur og Sigbjöm Gunnarsson, fyrr-
verandi alþingismaður.
Karvel Pálmason, fyrrverandi
alþingismaður var kjörinn í flug-
ráð í stað Sigbjöms Gunnarsson-
ar.
Landsbankinn:
17 milljón
krónakröfu
Hæstiréttur sýknaði í gær
Landsbanka íslands (LÍ) af rúm-
lega 17 milljóna króna kröfu
Tryggingar hf. Krafan var til
komin annars vegar vegna ásak-
ana á hendur LÍ um vanefndir á
samningum um skil og skiptingu
á söluandvirði eldisfisks í eigu
Hafeldis og hins vegar fyrir þá
sök að óseldur eldisfiskur hefði
tapast óvátryggöur eftir að hann
komst í vörslu LÍ. Fiskurinn, sem
verið haíði í kvíum í Straumsvík-
urhöfn, glataðist í ofviðri.
Taldi rétturinn LÍ ekki hafa
skuldbundið sig til annars gagn-
vart Tryggingu en að hafa milli-
göngu um greiöslur til hans. Ekk-
ert hafi komiö fram að greiðslur
hafi borist LÍ.
Kröfumar vom upphaflega
reistar á skuidabréfi, með veði í
laxinum, sem útgefið var af fisk-
eldisstöðinni til handa skipafé-
lagi en sami forsvarsmaöur var
aö báðum félögum. í Ijósi þess að
skipfélagi er ekki heimilt að taka
hluti vörsluveði var veðsetning
dæmd ólögmæt. -pp
Lágheiðin
opnuð?
„Það er mikill þrýstingur á okk-
ur að opna Lágheiðina og maður
frá okkur er þar uppi núna til að
kanna aðstæður. Eg held að það
sé fullmikill snjór þarna núna og
er hræddur við hallann upp á
heiöina. Ef þar er mikill snjór og
þiöna fer ofan í göngin er hætt
við að vegurinn geíi rofnað. Við
reynum auðvitað að sleppa sem
ódýrast frá þessu,“ sagði talsmaö-
ur Vegagerðarinnar á Sauðár-
króki viö DV.
Hann sagði aö heiðin hefði opn-
astlO.júníífyrra. *sv