Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Neytendur
Helsjta^hiutverk vítamína
B-12
Kóbalamín
Taugakerfi,
rauðu
blóðkornin
Helsta hlutverk:
nauðsynleg við myndun
rauðra blóðkorna og
starfsemi taugakerfis.
Uppspretta:
mjólk, ostur, kjöt,
fiskur og egg.
[PV
formi aftur í rödd þess sem talaði.
Þannig geta menn talað saman rétt
eins og í gegnum síma.
Hvað þarftil?
Til þess að hægt sé að nota þessa
tækni þarf að eiga tölvu og vera með
tengingu við Internetið í gegnum
,,móthald“(modem), lítið tæki sem
fæst í öllum tölvuverslunum og kost-
ar undir 20 þúsund kr. Samband við
netið fæst svo í gegnum sérhæfð fyr-
irtæki sem sjá um það, til dæmis ís-
lenska menntanetið.
Til þess að geta notað netið eins og
síma þarf ekki mikinn viðbótarbún-
aö. Nauösynlegt er að í tölvunni sé
hljóðkort, en það er í nánast öllum
tölvum sem nú eru á markaðnum.
Hljóðnema og heyrnartólum er
stungiö í samband við tölvuna og þar
með er búnaðurinn kominn. Inn á
Internetinu er forritið sem flytur
röddina á milli. Það heitir Internet-
phone og heimasíða þess er http:
//www.vocaltec.com/.
Síbería-netkaffi
„Okkar markmið er fyrst og fremst
að kynna þessa nýju möguleika fyrir
fólki. Menn eru nú þegar komnir út
á þessa upplýsingahraðbraut og ef
við ætlum ekki að láta keyra okkur
niður verðum við að taka þátt og
læra,“ segir Einar Örn Benediktsson,
einn af aðstandendum Síberíu en sá
staður býður fólki að koma og fá sér
kaffibolla, prófa sig áfram á Internet-
inu og fá ókeypis leiðsögn. Klukku-
tími í tölvunum á Síberíu kostar 500
kr., hvort sem menn nota hann til
þess að „hringja" til Ástralíu eða lesa
sér til íróðleiks á netinu. Kaffihús
eins og Síbería spretta nú upp víða
um heim og séu menn ekki tengdir
netinu heima hjá sér geta menn
mælt sér mót á netinu og talað svo
saman á milli kaffihúsa.
Intemetið:
Símtal til Ástralíu fyrir
8,3 krónur mínútan
Það má með sanni segja að Internet-
ið haíi haldið innreið sína á tölvu-
markað heimsins á síðustu misser-
um. Þessi samtenging tölva, sem ger-
ir fólki kleift að miðla upplýsingum,
skiptast á skoðunum eða kynnast
öðru fólki heimshlutanna á milli, er
oröin órjúfanlegur hluti af daglegu
lífi fjölda fólks.
Símtöl á Internetinu
Stööugt fleiri möguleikar bjóðast
þeim sem nota Internetið. í nokkurn
tíma hafa notendur netsins getað
skrifast á við kunningja sína, hér-
lendis sem erlendis, á þann hátt að
einstakar setningar eða orð eru send
á milli tölva jafnóðum og þau eru
skrifuð. Á þennan hátt hefur fólk
getað „talað sarnan" nánast eins og
í síma, nema hvað ekkert hljóð heyr-
ist. Þetta er að sjálfsögðu háð því að
báðir aðilar séu tengdir Internetinu
og sitji við tölvuna á sama tíma. Kost-
urinn við þetta umfram hefðbundinn
síma er fyrst og fremst sá að öll sam-
skipti í þessu formi kosta það sama
og innanbæjarsímtal, hvort sem
„viðmælandinn" er í Súdan eða
Grímsnesinu.
Með nýjustu tækni á netinu hefur
sá möguleiki hins vegar opnast að
menn þurfa ekki lengur að skrifa það
sem þeir vilja koma á framfæri held-
ur geta einfaldlega talað, rétt eins og
í síma. Tölvan breytir þá röddinni í
form sem hún ræður við að senda í
aðra tölvu og sú tölva breytir því
Guðlaugur Ottarsson, einn af aðstandendum Síberíu-netkaffis, „hringir" í gegnum Internetið.
La Baguette
f lytur sig
umset
Verslunin „La Baguette" er
flutt í Skeifuna 7 en hún var áður
til húsa á Laugaveginum. Versl-
unin selur margs konar franskan
bakarísmat, svo sem „croissants"
(smjördeigshorn), „baguette“-
brauð og fleira.
Á staðnum er lítil kaffistofa þar
sem hægt er að setjast niður og
renna veitingunum niður með
kaffisopa.
Olís f agnar
árangri
Olíuverzlun íslands hf. hefur
nú selt bensínið Hreint System 3
síðan í ágúst á síðasta ári. Tals-
menn fyrirtækisins fullyrða að á
þessum tíma hafl komið mjög góð
reynsla á bensínið og að við-
skiptavinirnir hafi lækkaö bens-
ínkostnað sinn með notkun þessa
bensíns.
„03“ ókeyp-
is úr tíkalla-
símum
Innan fárra vikna verður sú
nýbreytni tekin upp hjá Pósti og
síma að símtöl í upplýsingaþjón-
ustuna, 03, verða gjaldfrjáls ef
hringt er úr símasjálfsala. Eins
og bent hefur verið á hér á síð-
unni kosta símtöl í 03 kr. 28,25 á
mínútuna og auk þess er almennt
dýrara að hringja úr sjálfsala.
Það er því mikið fagnaöarefni að
Póstur og sími skuli veita notend-
um þessa þjónustu. Að sögn Guð-
bjargar Gunnarsdóttur, hjá ifþp-
lýsingadeild Pósts og síma, er
aðeins eftir að ganga frá tækni-
legum atriðum áður en þessi
þjónusta kemst í gagnið.
Aukin út-
breiðsla
GSM
Stöðugt stækka þau svæði þar
sem hægt er að nota GSM-far-
síma. í vor hefur verið unnið að
því að koma sumarbústaðasvæð-
um inn í GSM-kerfið og mun sú
þróun halda áfram. Þaö er hins
vegar fagnaðarefni fyrir GSM-
farsímaeigendur sem þurfa mikið
að ferðast að þrjú Evrópulönd
hafa nú bæst við þau sem hafa
virkt GSM-símakerfi. Þau eru
Belgía, Lúxemborg og írland.
myndbandstœki
VCA - 239
Frábært tæki á
frábæru verði.
Raðgrelðslur til
all't að 24 rnanaða
LEMfl
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA