Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 9
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 9 i>v Stuttar fréttir Útlönd KapphlaupíBosníu Sameinuðu þjóðirnar voru í kapphlaupi við að afstýra árásum sljórnarhers Bosniu sem gætu haft gífurlegt mannfall í för meö sér og gerí friðargæsluhlutverk SÞ í landinu að engu. Bíladeila ihnút Deila Bandaríkjamanna og Jap- ana um bílaviðskipti er enn í hnút þrátt fyrir viðræður aðil- anna á fundi leiötoga sjö stærstu iðnríkja heims í Kanada. Aðförkæfð Uppreisnar- tilraun gegn Saddam Huss- ein íraksfor- seta hefur ver- ið kæfö, Útlæg- ir andstæðing- ar Saddams segja borgara nærri Bagdad hafa tekið þátt í tilrauninni. Óánægja með einkarétt Grænlensk stjórnvöld vilja taka upp viðræður við danska sam- gönguráðherrann um einkarétt SAS-fiugfélagsins á flugi til Grænlands. Verkföll öugmanna SAS hafa lamað allt flug til lands- ins. Refsað fyrir hempuna Biskup í Danmörku hefur kraf- ist þess að einum prestanna, sem mótmæltu frjálsum fóstureyðing- um klæddur hempunni, verði refsaö samkvæmt lögum um op- inbera starfsmenn. Hann segir prest ekki vera fulltrúa allrar þjóðarinnar í mótmælagöngu og geti þá ekki klæöst hempunni. Segirafsér Yfirmaður leyniþjónustu spænska liers- ins hefur sagt af sér í kjölfar hlerunar- hneykslis þar sem símtöl:: Öölda hátt- settra manna, þar á meðal kon- ungsins, Juans Carlosar, hafa verið hleruö. Er þetta versta hneyksli sem Felipe Conzalez for- sætisráðherra hefur lent í á 12 ára valdatlð. Meðgúmmíhanska Hommar í Bandaríkjunum eru æfir vegna móttöku sem 40 full- trúar þeirra fengu af öryggis- vörðum Hvíta hussins þegar þeir heímsóttu Chnton forseta. Settu öryggisverðimir upp gúmmí- hanska við líkamsleit. Átak gegn dópsölum í kjölfar handtöku kókaínbaróns- ins Orejuelas hafa kólumb- ísk stjórnvöld sent enn fieiri lögeglu-ogher- sveitir til bar- áttu gegn eiturlyfjahringjunum. Skautsigíhöfuðið Breskur heimilisfaðir skaut sig til bana í örvæntingu yfir að hafa misst af 300 milljóna króna lottó- vinningi vegna gleymsku sinnar. En þegar málið var athugað haföi gleymskan ekki kostað hann nema 4.300 krónur. Línafimmtug Fyrsta bókin um Línu langsokk kom út fyrir fimmtíu árum og er því fagnað í bænum Vimmerby á Skáni í Svíþjóð, heimabæ höfund- arins, Astridar Lindgren. Rcuttr/Hitzau/TT Tsjetsjenskir vígamenn halda óbreyttum borgurum í gísbngu í Rússlandi: Það skiptir ekki máli hvenær við deyjum segir leiötogi þeirra og hótar að drepa gíslana ef þörf krefur Sjálfsmorðssveit tsjetsjenskra vígamanna hélt hundruðum ef ekki þúsundum óbreyttra borgara í gísl- ingu á sjúkrahúsi í bænum Búd- ennovsk í suðurhluta Rússlands í morgun og hótar að taka þá af lífi ef ekki verður gengið að kröfum þeirra. Vígamennirnir, undir forustu Sjamíls Basajevs, komu til Búd- ennovsk á miðvikudag. Þeir drápu að minnsta kosti fjörutíu manns þeg- ar þeir hertóku byggingar í borg- inni. Þeir skutu síðan fimm gísla til bana í gær til að leggja áherslu á kröfur sínar áður en þeir héldu fund með fréttamönnum. Tsjetsjenarnir krefjast þess að rússneskar hersveitir verði kallaðar heim frá Tsjetsjeníu og sögöust reiðubúnir að láta lífið fyrir málstað- inn. „Það skiptir okkur engu máh hve- nær við deyjum, það sem skiptir máli er hvernig við deyjum. Við verð- um að deyja með sæmd,“ sagði Basajev á fundi með fréttamönnum þar sem staöa vígamannanna var skýrð. „Við munum skjóta gíslana ef þörf krefur." Itar-Tass fréttastofan skýrði frá því í morgun að tvær konur hefðu verið látnar lausar í nótt. Ekki verður þverfótað í bænum fyrir sérsveitum rússneska hersins svo og öðrum hersveitum. Þá hafa íbúar bæjarins myndaö vopnaðar sveitir og tekiö sér stöðu á gatnamót- um til að hafa eftirlit með hverjir fari þar um. „Við gripum til vopna tfi að verja okkur,“ sagði einn varðliðanna. Leyniskyttur voru komnar á kreik og Tsjetsjenarnir skutu á alla sem nálguðust sjúkrahúsið sem þeir lögðu undir sig á miðvikudag. Samn- ingaviðræður við þá lágu niðri í nótt. Basajev virtist afslappaður í felu- búningnum sínum og með kakíhatt- inn á höföinu þegar hann ræddi viö fréftamenn. Hann sagðist hafa fimm þúsund karla, konur og börn í haldi á sjúkrahúsinu. Gíslarnir sátu örvæntingarfullir inni á deildum og á göngum sjúkra- hússins á öllum íjórum hæðum þess. „Gerið það, hjálpið okkur,“ hrópaði ein kona örvæntingarfull aö blaða- mönnum sem gengu hjá. „Við erum ekki bófar, við höfum neyðst til að vígbúast til að verja land okkar, fjölskyldur og frelsi," sagði Basajev. Reuter . - . Alþjófetollgasslustofnunin segir meginhluta eiturlytja lara um Rúmeniu og Búlgaríu á leii sinni til Veslur-Evrópu. NYJAR SMYGLLEIÐIR EITURLYFJAHRINGJA Eitrið fer nýjar leiðir Búlgaría, Rúmenía og Ungverja- land hafa tekið við af löndunum á Balkanskaga sem helstu miöstöðvar eiturlyfjasmygls til Vestur-Evrópu. Ástæðan er stríðsáttökin í Bosníu og sundurlimun Júgóslavíu en hafnar- borgir á Ítalíu og Grikklandi eru mikilvægar miðstöðvar fyrir smygl til suðurhluta Evrópu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Alþjóða tollgæslustofnunin sendi frá sér í gær. REUTER Stríðið í Bosnfu hefur neytt eiturlyfjasmyglara til að finna nýjar smyglleiðir Inn f Vestur-Evrópu. Kólumbískir kókalnframleiðendur tengjast glæpasamtökum I Rússlandi, Búlgaríu og Eystrasaltslöndunum. Sautján látnlr eftir jarðskjálftann: Frakkar senda leit- arsveit til Egion Frönsk leitarsveit og grískir björg- unarliðar leituöu í alla nótt í húsa- rústum að fimm frönskum ferða- mönnum sem enn er saknað eftir jarðskjálftann í borginni Egion í Grikklandi í fyrrinótt. Aö minnsta kosti sautján manns týndu lífi. Emb- ættismenn sögðu að átta borgarbúa væri enn saknað. „Það er enn of snemmt að segja til um hvort einhverjir eru á lífi undir rústunum en ef fórnarlömbin eru ekki kramin geta þau lifað í allt að átta daga,“ sagði David Komes, einn frönsku björgunarmannanna. Franska sveitin kom með tvo leit- arhunda með sér og snuðruðu þeir um rústir Eliki-hótelsins þar sem um 150 ferðamenn dvöldu þegar skjálft- inn reið yfir. Hótehð hrundi í skjálft- anum sem mældist 6,1 stig á Richter. „Við vitum að fimm manns eru undir rústunum og við lítum svo á að þau séu öll á lífi. Þannig lítum við á það þar til annað kemur í ljós,“ sagði John Fred Grouzillard, blaða- fulltrúi björgunarsveitarinnar. Georg Taxiarhis, slökkviliðsstjóri í nágrannabænum Patras, sagðist ekki geta verið jafn bjartsýnn og Frakkarnir. „Það er útilokað að nokkur geti lif- að undir þessari hrúgu eftir allan þennan tíma,“ sagði hann. Grískir björgunarsveitamenn björguðu fimm Frökkum lifandi úr rústunum en fimm aðrir, þar á með- al fimm ára gömul stúlka, fundust látnir. Reuter Öf lug sprenging skók þinghúsið Öflug sprengja sprakk í geymslu- herbergi í kólumhíska þinghúsinu seint í gær og olli þó nokkrum skemmdum. Gluggar brotnuðu og veggir sprungu. Umræður voru í fullum gangi í þingsalnum og þustu óttaslegnir þingmenn í allar áttir í leit að skjóh meðan drunurnar gengu yfir. Engan sakaði. Enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér. Reuter Leyniskýrslur upplýsa um þátt Serbíuforseta í stríðsrekstri Bosníu-Serba: Slobodan Milosevic er lykil- maður í lausn átakanna í Bosníu Slobodan Milosevic Serbíuforseti lokaði landmærunum að Bosníu í fyrra gegn tilslökunum á viðskipta- banni Sameinuðu þjóðanna og hann lýsti því jafnframt yfir að Bosníu- Serbar fengju enga hernaðaraðstoð frá bræðrum sínum í Serbíu. Annað hefur komið á daginn. í leyniskýrslum vestrænna leyni- þjónusta kemur fram að júgóslav- neski sambandsherinn, þar sem Ser- bar hafa tögl og haldir, borgar laun margra hershöfðingja Bosníu-Serba, auk þess sem hann sér þeim fyrir skotfærum, eldsneyti, þjálfun og varahlutum. Bandaríska leymþjón- ustan hefur m.a. beitt hlerunum á íjarskipti Serba allt frá því þeir hófu stríðsreksturinn í Bosníu fyrir þrem- ur árum. Slobodan Milosevic Serbíuforseti Símamynd Reuter Fjölmargir bandarískir sérfræö- ingar halda því til dæmis fram að júgóslavneski herinn hafi séð Bos- níu-Serbum fyrir varahlutum og tæknimönnum til að annast viðhald á loftvarnakerfinu sem á dögunum grandaði flugvélinni sem bandaríski orrustuflugmaöurinn Scott O’Grady flaug. Skiptar skoðanir eru um hversu mikil aðstoð júgóslavneska sam- bandshersins er við hersveitir Bos- níu-Serba. Bandarískir sérfræðingar segja að aðstoðin hafi gert Bosníu- Serbum kleift að halda uppi stríðs- rekstri sínum. Jafnvel þeir sem eru tortryggnir á leyniskýrslurnar við- urkenna að ekki hafi alfarið verið klippt á birgðaflutningana. Ymsir leyniþjónustumenn halda því fram að þáttur Milosevic Serbíu- forseta felist fremur í því að hreyfa ekki andmælum við stuðningi her- foringja sinna við Bosníu-Serba en að hann stjórni honum beint. Vesturlönd reyna -um þessar mundir að fá Milosevic í lið með sér til aö binda enda á átökin í Bosníu með því að viðurkenna landamæri lýðveldisins gegn því að viðskipta- banni SÞ verði aflétt. Leyniþjónustu- skýrslurnar um áframhaldandi þátt hans í Bosníustríðinu vekja því upp erfiðar spurningar fyrir leiðtoga Vesturlanda. „Þessi náungi er lykil- maður í lausn deilunnar," segir bandarískur embættismaöur. „Við verðum að semja við hann, hvort sem okkur líkar betur eða verr.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.