Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RViK, SlMI: 563 2700
FAX: Auglýsingar: 563 2727 - Aðrar deildir: 563 2999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritstj@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
Frönsk tímaskekkja
Sú ákvörðun Jacques Chiracs, nýkjörins forseta
Frakklands, að hefja á næstunni tilraunir með kjarn-
orkuvopn á Mururoa eyju í Kyrrahafi, er stórhættuleg
tímaskekkja. Hún var tekin einmitt þegar allt stefndi í
samkomulag þjóða heims um allsherjarbann við tilraun-
um með kjamorkuvopn.
Charles de Gaulle, sem ól með sér mikilmennsku-
drauma fyrir hönd þjóðar sinnar, hleypti kjamorku-
vopnaáætlun Frakka af stokkunum á sínum tíma til að
reyna að halda á lofti ímynd Frakklands sem stórveldis.
Þessi franski monther de Gaulles hafði aldrei mikið gildi
á alþjóðavettvangi, og því síður nú nokkmm árum eftir
lok kalda stríðsins. Forveri Chiracs, Mitterrand, tók um
það ákvörðun fyrir nokkmm ámm að hætta öllum frek-
ari tilraunum með slík vopn. Þeirri samþykkt hefur
Chirac nú hnekkt á fyrstu valdadögum sínum.
Alþjóðleg barátta gegn tilraunum með gjöreyðingar-
vopn af þessu tagi hefur staðið áratugum saman. Arið
1963 náðist verulegur áfangi í þá átt þegar risaveldin
sömdu um bann við slíkum tilraunum í andrúmsloftinu
og neðansjávar. Fyrir einum mánuði eða svo náðist sam-
komulag um það á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að
framlengja þennan samning til frambúðar.
Samningurinn frá 1963 nær hins vegar ekki til kjam-
orkutilrauna neðanjarðar. Fulltrúar nær fjörutíu ríkja,
þar á meðal allra kjarnorkuveldanna, hafa rætt um bann
við neðanjarðartilraunum á ráðstefnu 1 Genf. Gengið
hefur verið út frá því að samkomulag næðist um bann
við öllum tilraunum með kjamorkuvopn á næsta ári.
Þótt kjamorkusprengingar neðanjarðar hafi ekki ver-
ið bannaðar hafa stórveldin í reynd haldið að sér höndum
þar til nú - Rússar frá árinu 1990, Bretar og Frakkar frá
1991 og Bandaríkin síðan 1992.
Fimmta opinbera kjamorkuþjóðin, Kínverjar, varð
hins vegar til að brjóta þetta óopinbera bann fyrir nokkr-
um vikum og nú hafa Frakkar siglt í kjölfarið. í báðum
tilvikum segjast ráðamenn einungis ætla að gera nokkr-
ar tilraunir en síðan hætta alveg.Það minnir á forfallna
reykingamenn sem segjast bara ætla að kveikja í einum
vindhngi enn áður en þeir hætta - og er jafn ótrúverðugt.
Kjarnorkuveldin fimm hafa lagt á það mikla áherslu
síðustu misseri að knýja aðrar þjóðir til að halda að sér
höndum í kjamorkumálum. Nægir þar að minna á að-
gerðir gegn valdsmönnum í írak og Norður-Kóreu. Vitað
er að nokkrar þjóðir til viðbótar hafa tæknilega kunn-
áttu til að framleiða kjamorkusprengjur. Framferði Kín-
verja og nú Frakka hlýtur að draga úr vilja stjómenda
þessara ríkja til að sitja auðum höndum.
Þá fullyrða sérfræðingar að af hálfu bandaríska vam-
armálaráðuneytisins sé vaxandi þrýstingur á Clinton
Bandaríkjaforseta að opna fyrir tilraunir með htlar
kjamorkusprengjur neðanjarðar í viðræðunum í Genf.
Enn sem komið er hefur forsetinn staðið gegn þessum
óskum - en hversu lengi?
Þetta ferh síðustu daga og vikna sýnir auðvitað að
þrátt fyrir gjörbreyttar aðstæður í heimsmálum eftir fah
kommúnismans og jámtjaldsins em vopnasmiðir stór-
þjóðanna enn á fuhri ferð við að fullkomna kjamorku-
vopn sín. Enda hafa fjárveitingar til þeirra lítið minnkað.
Ákvörðun Frakklandsforseta hefur verið fordæmd
víða um heim. Það er orðið deginum ljósara að kjamorku-
sprengingamar á Mumroa munu ahs ekki efla stöðu
fYakka á alþjóðavettvangi, eins og th stóð. Þvert á móti.
Elías Snæland Jónsson
Enn á ný er bandarískt þjóöfélag
undirlagt af kosningabaráttu, nú
fyrir forsetakosningar næsta ár.
Af þessu mótast öll pólitísk um-
ræöa. Enginn pólitíkus þorir að
ganga í berhögg við yfirlýst al-
menningsálit í einu eöa neinu. í
þessu er stjórnviska Clintons fyrst
og fremst fólgin. Hann hefur snúist
marga hringi um sjálfan sig í flest-
öllum málum, allt eftir því hvaðan
vindurinn blæs.
Enginn les betur en Clinton úr
skoðanakönnunum. Hann hefur
ekki tekið af skarið í neinu máli,
heldur oftast annað hvort geflst
upp eða fallist á málamiðlun gegn
sjálfum sér. Af þessu leiðir að hann
hefur móðgað tiltölulega fáa, sem
er einmitt tilgangurinn með öllu
saman, því að vitaskuld er það hans
fyrsta forgangsmál að ná endur-
kjöri næsta ár.
Nú má fullyrða að fyrra kjörtíma-
bili Clintons sé lokið, allt sem hann
segir og gerir framvgis hlýtur að
skoðast sem innlegg í kosningabar-
áttuna, sem hefst venjulega ekki
fyrr en í janúar á kosningaári.
„Eins og nú horfir lítur út fyrir að Dole verði frambjóðandinn og Clinton
vinni,“ segir Gunnar m.a. í greininni. Robert Dole og Bill Clinton forseti.
Offramboð af
kandídötum
Það er óhætt að afskrifa með öllu
þátttöku Bandaríkjanna í Balkan-
stríðunum og einskis frumkvæðis
er að vænta í utanríkismálum,
enda er umheimurinn það síðasta
sem bandarískur almenningur læt-
ur sig nokkru varða eftir hrun
kommúnismans. Helst er að bóli á
óvild í garð Japana sem Clinton
hefur komiö til móts við með því
að hóta japönskum lúxusbílafram-
leiðendum ofurtollum.
Kandídatar
Kapphlaupið meðal repúblíkana
um að komast í framboð er löngu
haflð og kennir þar margra grasa.
Þegar eru komnir fram fimm fram-
bjóðendur: Bob Dole, Phil Gramm,
Pete Wilson, Pat Buchanan og
Lamar Alexander, en fleiri bíða
átekta, þeirra á meðal Ross Perot
og Jesse Jackson.
Clinton er öruggur með framboð
síns flokks en flestir eru á því aö
Dole verði mótframbjóðandi hans.
En ekki eru allir ánægðir með
þetta. Dole hefur tvisvar áöur sóst
eftir útnefningu en sökkti sjálfum
sér í bæði skiptin. Hann er mein-
yrtur og hvass í tilsvörum sem
kemur að góðu haldi í starfi leið-
toga meirihlutans í öldungadeild-
inni en þessi sama hvatvísi kom
honum í koll 1976 og 1980 og gætir
hennar enn. Hann er líka oröinn
71 árs en mörgum finnst að flokk-
urinn skuldi honum útnefningu að
þessu sinni.
Phil Gramm, öldungadeildar-
maður frá Texas, þykir heldur
óaðlaðandi persóna og enda þótt
hann hafi meiri peninga en nokkur
annar og hafi fyrstur allra farið af
stað hefur honum tiltölulega lítið
orðið ágengt.
Pete Wilson er ríkisstjóri Kalifor-
níu og sú er eina ástæðan fyrir því
KjaUariim
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður
að hann kemur til greina. Ljóst
Newt og Powell
En sá maður sem nú er trúlega
þykir að kjörmannaatkvæði Kali-
forníu ráði úrslitum í næstu kosn-
ingum og Wilson á þau vís.
Lamar Alexander er auðkýfingur
sem hefur fátt annað fram að færa
en eigin metnað. Pat Buchanan er
óraleið til hægri, einangrunarsinni
og fulltrúi þeirra sem hafa bók-
stafsskilning á biblíunni að leiðar-
ljósi. Sá hópur hefur furðumikil
áhrif, eins og sást í síðustu þing-
kosningum.
valdamestur stjórnmálamanna
vestanhafs og sem margir repú-
blíkana vildu fá í framboð, mun lík-
lega ekki gefa kost á sér. Hann er
Newt Gingerich, forseti fulltrúa-
deildarinnar og leiðtogi repúblík-
ana, höfundur stefnuskrár flokks-
ins, sem hann hefur komið að
mestu í gegnum þingið, og aðalsig-
urvegari þingkosninganna síðasta
haust. Gingrich er væntanlegur
frambjóðandi en tæpast í þetta
sinn, hann mun vilja festa sig í sessi
fyrst. Samt er aldrei að vita og víst
er að ef Gingerich færi fram yrði
mikið neistaflug.
Annar frambjóðandi, sem repú-
blíkanar vilja fá, er Colin Powell,
fyrrum æðsti hershöfðingi banda-
ríska herráðsins á tímum Persa-
flóastríðsins. Hann er blökkumað-
ur og nýtur mikillar virðingar en
sá er gallinn á að hann er ekki
repbúlíkani né heldur flokksbund-
inn demókrati. Repúblíkanar gæla
samt við að fá hann að minnsta
kosti í varaforsetaframboð. Færi
svo mætti Clinton fara að vara sig.
Eins og nú horfir lítur út fyrir
að Dole verði frambjóðandinn og
Clinton vinni. En enn er hálft ann-
að ár til stefnu og allt á eftir að
breytast. Það sem ekki breytist er
sú staðreynd að kosningabaráttan
er hafm og þar með er Clinton að
vissu leyti sviptur sjálfræði.
Gunnar Eyþórsson
„Það er óhætt að afskrifa með öllu þátt-
töku Bandaríkjanna 1 Balkanstríðun-
um og einskis frumkvæðis er að vænta
í utanríkismálum.“
Skoðanir annarra
Tvítóna tónninn kratíski
„GATT-frumvarp ríkisstjórnarinnar er nú komið
í gegnum þingið, við litla hrifningu stjórnarandstöð-
unnar... Óneitanlega er það þó gagnrýni kratanna
sem hljómar líkast söng Garðars (Hólm). Þeir hafa
hæst og nota svæsnustu orðin, tala um svik við neyt-
endur og samsæri framsóknarmanna til að útiloka
innflutning og tryggja einokun landbúnaðar þvert á
yfirlýst markmið samningsins... Hinmkratíski tónn
er því hvorki einn né hreinn. Hann er tvítóna og
hljómar ekki þegar báðir eru slegnir í einu.“
Garri í Tímanum 15. júní.
Þeir leysi deiluna sjálfir
„Neyðarástand er að skapast víða um land í at-
vinnumálum, þar sem fiskvinnslufyrirtækin hafa
ekki hráefni til vinnslu og flskvinnslufólk er af þeim
sökum verkefnalítið eða verkefnalaust... Endurtek-
in verkföll sjómanna ár eftir ár vegna deilu um verð-
myndun á sjávarfangi undirstrika nauðsyn þess að
leysa þetta vandamál til einhverrar frambúð-
ar... Að þessu sinni á ekki að leysa kjaradeiluna
fyrir deiluaðila, heldur ætlast til að þeir geri það
sjálfir."
Ur forystugrein Mbl. 14. júní.
Banndagar - róðrardagar
„Röksemdirnar gegn banndögum Þorsteins Páls-
sonar eru augljósar. Trillusjómönnum er þannig
bannað að sækja sjó frá 21. nóvember til 12. febrúar.
Þar með er fjöldi fiölskyldna sviptur lífsbjörg
sinni .. Nú vill svo til, að í sjávarútvegsnefnd Al-
þingis var meirihluti nefndarmanna hlynntur því
að komið yrði til móts við trillukarla, og tekið upp
róðrardagakerfi. Það var hins vegar að kröfu Þor-
steins Pálssonar sem stjórnarliðar í nefndinni lögðu
blessun sína yfir banndagana."
Úr forystugrein Tímans 15. júní.