Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Side 16
16
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Menning
Laugarásbíó - Dauðinn og stúlkan: ★★★
Dómur skal upp kveðinn
Dauöinn og stúlkan (Death and the Maiden) er gerð eftir frægu leikriti
Ariels Dorfman sem er frá Chile en býr nú í Bandaríkjunum. Leikrit
þetta hefur fariö sigurför um heiminn og var sýnt hér á landi í Borgarleik-
húsinu.
Texti verksins er svo vel saminn
og sterkur aö nánast er nóg að fá
góða leikara og setja kvikmynda-
vélina í gang og ekkert á aö geta
farið úrskeiðis. Roman Polanski fer
að mestu þá leið. Hann hefði varla
getað valið betri leikkonu en Sigo-
urney Weaver til að leika Paulina.
Persónan er mjög sterk andlega og
þaö er járnvilji hennar sem hefur
fleytt henni lifandi í gegnum þær
hörmungar sem hún hefur upplif-
að. Enginn túlkar betur slíkar kon-
ur en Sigoumey Weaver, það sýndi
hún í Alien-myndunum og Gorillas
in the Mist svo dæmi séu tekin. Ben
Kingsley og Stuart Wilson komast
einnig sérlega vel frá hlutverkum sínum þótt þeir falli aðeins í skuggann
af stórleik Weaver.
Dauðinn og stúlkan gerist í Suður-Ameríku og ekki þarf að leiða hug-
ann lengi að því hvaða ríki er þar um að ræða. Paulina, sem nú er gift
æskuunnusta sínum, sem hún kom aldrei upp um, hefur ekki getað aðlag-
ast lífinu eftir þær hörmungar sem hún lenti í þegar hún var fangelsuð
af herforinaastjórninni. Tilviljun ræður því að hún heyrir rödd manns-
ins sem fór verst með hana í fangelsinu og í huga hennar kemst ekkert
annað að en hefnd og það að niöurlægja hann á sama hátt og hann niður-
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
lægði hana. í kjölfarið fylgir mikið tilfinningastríð aðalpersónanna þriggja
og uppgjörið er kannski ekki á þann veg sem áhorfandinn býst við.
Roman Polanski er leikstjóri sem hefur yfirleitt alltaf þorað að taka
áhættu en hér þarf hann þess ekki; hann er, eins og fyrr segir, nánast
með sjálfstýringu á efni og leikurum en sú litla útvíkkun sem hann gerir
á leikritinu er fagmannlega og skynsamlega gerð og kvikmyndavélinni
beitt hárrétt. Margir kvikmyndagerðarmenn heföu sjálfsagt freistast til
að láta söguna ganga til baka til þess tíma þegar Paulina var fangi og
læknirinn böðullinn en Polanski gerir sér grein fyrir að þaö er engin þörf
á slíku, leikararnir túlka textann af tilfmningu og skilningi á viðfangsefn-
inu þannig að auðvelt er að gera sér í hugarlund þær hremmingar sem
Paulina lenti í.
Leikstjóri: Roman Polanski.
Aðalhlutverk: Sigourney Weaver, Ben Kingsley og Stuart Wilson.
Regnboginn - Eitt sinn stríðsmenn: ★★★ '/2
Þegar fortíðin íýnist
Áfengi er böl, segir gamalkunn upphrópun bindindismanna. Sjálfsagt
má deila um sannleiksgildi hennar en þó er víst að þessi orð eiga einkar
vel viö um Maóríana á Nýja-Sjálandi, þessa stoltu frumbyggja og eitt sinn
stríösmenn sem rnyndin Eitt sinn stríðsmenn fjallar um.
Nei, það er ekki par glæsilegt líf
né eftirsóknarvert sem þau Ufa,
hjónin Jake og Beth og bömin
þeirra fimm. Þegar sagan hefst er
nýbúið að reka hann úr vinnunni
og því ekkert annað aö gera en að
standa í stöðugu partíhaldi, í fyrstu
með samþykki og fullri þátttöku
eiginkonunnar, með tilheyrandi
drykkju, slagsmálum, leiöinda-
röfli, bömmerum og ofbeldi gagn-
vart fjölskyldunni. Sérstakiega er
það Beth sem fær að finna fyrir
skapofsa eiginmanns síns og eitt kvöldið lemur hann hana í þvílíka klessu
að annað eins hefur ekki sést lengi. Eins og nærri má geta kemur þetta
heimilisástand misjafnlega niður á bömunum. Sum eiga erfiöara með að
feta mjóa vegi dyggðarinnar en önnur.
En Lee Tamahori leikstjóri er ekki bara að sýna okkur fólk sem er fang-
ar brennivínsins og eigin ofbeldis þar sem hið fallega og viðkvæma fær
ekki þrifist. Brennivínið er bara afleiöing rótleysisins. Þetta er fólk sem
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
er slitið úr tengslum við eigin sögu og fortíð, spilar bara og hlustar á slag-
ara hvíta mannsins. Þaö er ekki fyrr en það áttar sig á þessu að vonin
kviknar. Það er til ljós í svartnættinu en það þarf harmleik til aö persón-
urnar komi auga á það.
Eitt sinn stríðsmenn er með áhrifameiri kvikmyndum sem hér hafa
verið sýndar í langan tíma. Tamahori er ekkert að hlífa áhorfandanum
við óþægilegum orðum og athöfnum. Hann hefur einstaklega góða stjórn
á því sem hann er að gera, er með gott handrit milli handanna, þótt þar
komi svo sem fátt á óvart, og hefur á að skipa einvala leikaraliöi sem er
mjög svo trúverðugt í hlutverkum þessa ógæfusama fólks. Maður trúir
því að þetta fólk geti verið til.
Ekki er hægt aö skilja viö myndina án þess að kvarta yfir því að hún
skuli vera sýnd í B-sal Regnbogans, að minnsta kosti daginn sem undirrit-
aður sá hana. Slíkur salur er langt frá því að vera boðlegur mynd sem
þessari.
Leikstjóri: Lee Tamahori. Handrit: Riwia Brown, eftir skáldsögu Alans
Duffs. Kvikmyndataka: Stuart Dryburgh.
Leikendur: Rena Owen, Temuera Morrison, Mamaegaroa Kerr-Bell.
Matgæðingur vikuimar
Pastasalat
- og zucchini a la Gunna
Guðrún Björg Kristinsdóttir á Eskifirði er matgæð-
ingur vikunnar að þessu sinni. Guðrún hefur verið
grænmetisæta undanfarin sjö ár og hefur farið á
matreiðslunámskeið bæði í Bandaríkjunum og Bret-
landi til að læra að matbúa grænmetisrétti.
„Ég var au pair í Bandaríkjunum og fjölskyldan
sem ég vann hjá neytti makróbíótísks fæöis. Ég lærði
talsvert í sambandi við grænmetisfæði hjá íjölskyld-
unni og fór auk þess á nokkur námskeið," segir
Guðrún sem býður upp á einfalda og ljúffenga græn-
metisrétti.
Gulrótasúpa
1/2 kg gulrætur
1 meðalstór laukur
2 tsk. olía
6 bollar vatn
1/2 tsk. salt
Gulræturnar og laukurinn skorið í bita. Laukurinn
er steiktur í olíunni í potti i smástund. Gulrótum,
vatni og salti bætt út í. Suðan látin koma upp. Látið
krauma við vægan hita í tuttugu mínútur eða þar
til gulræturnar eru orðnar mjúkar. Allt sett í bland-
ara. Súpan er síðan hituð upp í pottinum aftur áður
en hún er borin fram.
Zucchini a la Gunna
1 zucchini
1 egg
hveiti
salt
pipar
sojasósa
olía
Zucchini er skorið í sneiðar. Hveiti, salti og pipar
blandað saman í skál. Eggið þeytt og sojasósunni
bætt út í. Sneiöunum er fyrst velt upp úr eggjablönd-
unni og síðan hveitiblöndunni áður en þær eru steikt-
ar á pönnu.
Með þessu er gott að bera fram hrísgrjón og salat
og jafnvel annan grænmetisrétt.
Pastasalat
225 g pastaslaufur
Guðrún Björg Kristinsdóttir.
1 rauð paprika
1/2 agúrka
50 g svartar ólífur
175 g fetaostur
100 g furuhnetur
olía
salt
Dressing
3 msk. ólífuolía
2 tsk. edik (rauðvíns eða
annað eftir smekk)
1 tsk. salt
pipar á hnífsoddi
Pastaö er soöið í um átta mínútur með dálítilli
ólífuolíu og salti og látiö kólna. Paprikan er hreinsuð
og skorin í teninga ásamt agúrkunni. Pastað, paprik-
an, agúrkan, ólífurnar, fetaosturinn og hneturnar
sett í skál og öllu blandað saman. Síðan er dressing
hellt yfir. Guðrún mælir með nýbökuðu brauði með
pastasalatinu.
Hún skorar á Guðnýju Önnu Ríkharösdóttur á
Reyðarfiröi að vera næsti matgæðingur.
Eftir helgina má fá uppskriftina í Símatorgi DV.
Símanúmerið er 904-1700.
Hinhliðin
Ég aetla að gifta
mig í sumarfríinu
- segir Bima Bjömsdóttir sundkona
Birna Björnsdóttir sundkona
hlaut sérstök verðlaun fyrir
drengilega keppni á smáþjóðaleik-
unum í Lúxemborg á dögunum. í
keppninni bætti Birna viö safn sitt
af verðlaunapeningum sem nú eru
orðnir nær 250 talsins eftir langan
keppnisferil í ýmsum íþróttum.
„Eg er búin að æfa sund í tólf ár.
Ég hef einnig æft fótbolta og hlaup
en sundiö varð fljótlega ofan á,“
greinir Birna frá.
Fullt nafn: Birna Björnsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 2. júní 1973.
Maki: Egill Ingi Jónsson.
Börn: Engin.
Bifreið: Fiat Uno ’87.
Starf: Afgreiðslumaður.
Laun: Mjög góð.
Áhugamál: íþróttirnar og útivera.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Aldrei.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að fara í útilegu og njóta
náttúrunnar með kærastanum og
hundinum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vaska upp.
Uppáhaldsmatur: Pitsa með skinku
og banönum.
Uppáhaldsdrykkur: Epladjús.
Hvaða iþróttamaður stendur
Birna Björnsdóttir.
fremstur í dag? Jón Arnar Magnús-
son frjálsíþróttamaður.
Uppáhaldstímarit: Ég les eiginlega
ekkert af tímaritum.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Kevin Costn-
er.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Ég er ekki mikið inni í pólitík.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Sylvester Stallone.
Uppáhaldsleikari: Tom Hanks.
Uppáhaldsleikkona: Jodie Foster.
Uppáhaldssöngvari: Enginn sér-
stakur.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Hall-
dór Ásgrímsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Spennu-
myndir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Argent-
ína.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Ég veit ekki hvaða bækur eru á
markaðnum því ég les eiginlega
aldrei bækur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Eiríkur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið, ég er ekki
áskrifandi að Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég
man ekki eftir neinum sérstökum.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ing-
ólfscafé.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Stjarn-
an.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni: Að koma mér vel fyr-
ir, eignast börn og verða rík.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég ætla að gifta mig og fara í
brúðkaupsferð.