Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Side 23
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
23
Fáni frá Hafsteinsstöðum er hæst dæmda kynbótahross ársins. Knapi er Skafti Steinbjörnsson. DV-mynd E.J.
Hæsta einkimn Fána
Sumarland BYKO
garðvörur í ótrúlegri breidd
Stóðhesturinn Fáni frá Hafsteins-
stööum er hæst dæmdi stóðhestur
ársins eftir dóma á Vindheimamel-
um í Skagafirði þar sem hann fékk
8,41 í aðaleinkunn.
Fáni, sem er undan Feyki frá Haf-
steinsstöðum og Kylju frá Kjartans-
stöðum, fékk 7,90 fyrir byggingu en
8,93 fyrir hæfileika, sem er með
hærri hæfileikaeinkunnum undan-
farin ár.
Sjö hestar voru fulldæmdir í sex
vetra flokknum og fengu þrír þeirra
8,00 eða meir og fjórir7,75 eða meir.
Prúður frá Neðra-Ási, undan Her-
vari frá Sauðárkróki og Þokkadís frá
Neðra-Ási, kom næstur með 8,27 í
aöaleinkunn. Prúður fékk 8,03 fyrir
byggingu og 8,51 fyrir hæflleika.
Gimsteinn frá Laufhóli fékk 8,03
og Rökkvi frá Álftagerði 7,97.
Glaðssynir
efstir fimm vetra
Bassi frá Syðra-SkÖrðugili stóð
efstur sjö fulldæmdra fimm vetra
hesta með 8,07 í aðaleinkunn. Bassi
er undan Glað frá Sauðárkróki og
Fiðlu frá Syðra-Skörðugili og fékk
8,10 fyrir byggingu og 8,04 fyrir hæfl-
leika.
Fjalar frá Bjargshóli, undan Glað
frá Sauðárkróki og Fenju frá Stó'ra-
Hofi kom næstur með 7,99. Byggingin
gaf 8,08 og hæfiieikarnir 7,90.
Fáni frá Hvalsnesi fékk 7,89 og Fer-
ill frá Hafsteinsstöðum 7,87.
í fjögurra vetra flokknum voru
fulldæmdir tveir stóðhestar. Kol-
skeggur frá Garði, undan Baldri frá
Bakka og Jörp frá Garði, fékk 7,81 í
aðaleinkunn og gaf bygging 7,80 og
hæfileikarnir 7,83.
Hinn hesturinn fékk lakan dóm.
Glaður
afkvæmasýndur
Þrír stóðhestanna sem fyrr eru
nefndir eru undan Glað frá Sauðár-
króki sem var sýndur með afkvæm-
um og fékk 1. verðlaun. Það er ekki
algengt orðið að stóðhestar séu sýnd-
ir með afkvæmum á héraðssýning-
um.
Margir stóðhestar hafa náð þeim
stigafjölda sem þarf um miðjan maí,
til að eiga rétt á verðlaunum fyrir
afkvæmi. Til 1. verðlauna þarf 125
stig, en einnig þarf að skrá stóðhest-
inn til afkvæmasýningar og tilkynna
sex afkvæmi sem á að sýna með hon-
um ásamt varahrossum og tryggja
að þau mæti á sýningu.
Glaður er með 125 stig fyrir 28
dæmd afkvæmi og var sagt um hann
í dómsorðum að hann gefi reist, geð-
góð og rúm ganghross og hlýtur fyrir
þau 1. verðlaun.
Fleiri topp-
hryssurvantaði
Tvær af fjörtíu og fjórum full-
dæmdum hryssum í elsta flokki
fengu 8,00 eða meir í aðaleinkunn en
tuttugu og sjö 7,50 eða meir.
Þær tvær hryssur sem fengu yfir
8,00 eru Vaka frá Krithóli með 8,08
og Þerna frá Hofl með 8,06.
Vaka er undan Tvisti frá Krithóli
og Lipurtá frá Varmalæk og fékk 7,90
fyrir byggingu og 8,26 fyrir hæfileika.
Þema er undan Dúdda frá Syðra-
Sköröugili og Páls-Rauðku frá Hofi
og fékk 8,13 fyrir byggingu og 8,00
fyrir hæfileika.
Fulldæmdar voru tuttugu fimm
vetra hryssur og náði helmingurinn
7,50 í aðaleinkunn eða meir.
Freyja frá Þverá stóð efst með 7,89.
Hún er undan Sóloni frá Hóli og Glóð
tímarit fyrir alla
A NÆSTA SÖLUSTAÐ
SÍMA 563 2700
frá Þverá og fékk 7,98 fyrir byggingu
og 7,80 fyrir hæfileika.
Næstar komu: Rás frá Flugumýri
II með 7,84 og Perla frá Sauöárkróki
með 7,77.
Tíu fjögurra vetra hryssur fengu
fullnaðardóm. Sjö þeirra fengu 7,50
eða meir. Hrafnhildur III frá Akur-
eyri stóð efst og lofar góðu með 7,85
í aðaleinkunn. Hún er undan Baldri
frá Bakka og Dögg frá Akureyri og
fékk 7,85 fyrir byggingu og 7,84 fyrir
hæfileika.
Næstar komu Jonna frá Lamb-
leiksstöðum meö 7,72 og Drift frá
Sauðárkróki með 7,69.
-E.J.
BYKÖ
-byggir með þér
Garðverkfæri, sláttuvélar, hekkklippur, sláttuorf,
úðarar, slöngur, tengi, safnkassar, ruslagrindur,
hjólbörur, sólpallaefni, undirstöður, áburður, fræ,
garðplöntur, blómapottar, túnþökur, grill og
fylgihlutir, útileikföng, kastalar, sandkassar,
körfuboltaspjöld, reiðhjól, veiðivörur,
viðlegubúnaður, garðhúsgögn, útisnúrur, fánar,
fánastangir, skrautsteinar, gosbrunnar, styttur
og ótal margt fleira.
Við leitum til þln eftir slagorði fyrir Barbecook
Grill-strompinn! Taktu þátt í þessari
skemmtilegu leit meö því að hringja í síma
904-1750 og leggja inn þína tillögu. Þú getur
lagt inn eins margar tillögur og þú vilt.
Barbecook Grill-strompurinn er bylting á
íslandi fyrir grilláhugamenn sem vilja fá hiö
ómissandi kolagrillbragð af matnum. Grillið
sameinar það besta úr kola- og gasgrillum
því grillið nýtir kolin betur, gerir fólki kleift
aö grilla í hvaða veðri sem er og gefur hið
ekta grillbragð. Barbecook Grill-strompurinn
er náttúruvænn því það þarf engin kemísk
efni, eins ogt.d. grillolíu, til þess að kveikja
upp í grillinu og grillið er tilbúið á innan við
15 mínútum.
Verðlaun:
Glæsileg verðlaun eru í boöi fyrir heppna þátttakendur.
Meðal annars hlýtur eigandi besta slagorðsins 10
manna grillveislu sem Klúbbur matreiðslumeistara sér
um. Matreitt verður á Barbecook Grill-strompinum sem
síöan veröur skilinn eftir hjá vinningshafa.
Þú getur lagt inn slagorð til 16. júní.