Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 FERÐIR /////////////////////////////// Aukablað FERÐIR - INNANLANDS Miðvikudaginn 28. júní mun aukablað um ferðir innanlands fylgja DV. I blaðinu verða upplýsingar um helstu valkosti sem boðið er upp á í hverjum landsfjórðungi. Lesendur fá því möguleika á að kynna sér ýmsa spennandi ferðamöguleika um Island. Ferðablaðið mun kynna alla helstu gististaði úti á landi með nákvæmu korti í opnu. Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu blaði vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur í síma 563 2723. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 22. júní. Bréfasími okkar er 563 2727. Með Kuklfélögum 1984. Björk Guðmundsdóttir: Var farin að syngja lög sjö mánaða Björk Guömundsdóttir var farin að syngja lög sjö mánaða gömul, að því að haft er eftir móður hennar, Hildi ímarit fyrir alla Hml : . ' V* rn- ~ »m ■ ~ HEFTI Meðal efnis: 16. janúar 1995 gleymist Súðvíkingum aldrei. Pá féllu þrjú snjóflóð á þetta 200 manna byggðarlag á Vestfjörðum með þeim afleiðingum að 14 manns létu lífið í einu þeirra. Stór hluti þorpsins var rústir einar eftir hamfarimar. FJÖLSKYLDAN SEM SNJÓFLÓÐEÐ GAT EKKI GRANDAÐ Augu manna beinast að nýju að mætti snertingar■ innar SNERTING ER LÆKNANDI MÁTTUR Rannsóknir varpa nýju Ijósi á þöglan morðingja sem nauðsynlegt er að vita sem mest um. HÁR BLÓÐPRÝSTINGUR Tökum mark á draumum - bls. 44 160 blaðsíður - aðeins 485 kr. á næsta sölustað - og ennþá ódýrara í áskrift í síma 2700 Hauksdóttur, í tímaritinu Record Collector. Björk hóf tónlistamám sex ára gömul og lærði að leika á píanó og flautu. Hún lýsti því eitt sinn yflr að eiginlega hefði henni þótt skemmtilegast í tónfræðitímunum þegar hún fékk að fást við tónsmíðar. Fyrsta hljómplatan 1977 Björk var ekki nema ellefu ára þeg- ar fyrsta platan með söng hennar kom út. Fósturfaðir Bjarkar, Sævar Árnasort, var meðal hljómlistar- mannanna sem léku undir með Björk. Björgvin Gíslason, Pálmi Gunnarsson og Sigurður Karlsson tóku einnig þátt í gerð hljómplötunn- ar sem kom út fyrir jólin 1977. Gagn- rýnendur sögðu að þrátt fyrir ungan aldur hefði persónuleiki Bjarkar skiniö í gegn á plötunni. Exodus 1979 til 1980 Björk var með þeim fyrstu sem til- einkuðu sér pönkið þegar sú tónlist kom til landsins seint á áttunda ára- tugnum. Árið 1979 stofnaði Björk fyrstu hljómsveitina sína, Exodus. Tappi tíkarrass 1981 til 1983 Björk var fjórtán ára þegar hún stofnaði hljómsveitina Tappa tíkar- rass. Hljómsveitin gaf út nokkrar plötur og var ein af þeim hljómsveit- um sem komu fram í heimildar- myndinni Rokk í Reykjavík sem gerð var 1982. Kukl 1984 til 1986 Eftir að hljómsveitin Tappi tíkar- rass leystist upp gekk Björk til liðs við Einar Örn Benediktsson og Sig- trygg Baldursson. Saman stofnuðu þau hljómsveitina Kukl sem þótti talsvert ögrandi í flutningi sínum á anarkísku pönki eins og fræðingarn- ir skilgreindu tónlistina. Hljómsveit- in vakti athygli erlendis og í Bret- landi voru gefnar út tvær hljómplöt- ur með henni. Sykurmolamir 1986 til 1992 Björk, Einar og Sigtryggur stofn- uðu nýja hljómsveit árið 1986, Sykur- molana, sem varð heimsfræg. Lög Sykurmolanna þóttu með þeim frumlegustu sem fram komu á níunda áratugnum. Björk lýsti því yfir að Sykurmolarnir væru ööruvísi en allir aðrir og þeir þóttu sanna það. Eftir sex ár i Sykurmolunum þótti Björk kominn tími til að stokka upp og láta gamlan draum rætast. Hún ákvað að yfirgefa Sykurmolana og hefja sólóferil. Sóló Reyndar var Björk farin að starfa með ýmsum öðrum aðilum áður en Sykurmolarnir leystust upp. Hún söng til dæmis jass á plötu með Tríói Guðmundar Ingólfssonar 1990 og eignaðist nýja aödáendur meðal gamalla jassunnenda. Nokkru áður hafði hún sungið á þremur plötum með Megasi auk þess sem hún hafði haft samstarf við ýmsa aðra tónlist- armenn. Það var svo 1992 sem Björk flutti til London. Árið eftir kom breiðskífa hennar, Debut, henni í fremstu röð í tónlistarheiminum. Nafn Bjarkar var komið á hvers manns varir. Við- tökumar við breiðskífunni Post eru ekki síðri. Björk í sveiflu með Tappa tíkarrassi 1982.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.