Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Síða 36
52
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Sviðsljós
Sonur Clarks Gables:
Ég er ekkert
líkur pabba
„Ég var átta eða níu ára þegar ég
sá myndina Á hverfandi hveli. Ég
varð fokreiður að sjá að pabbi var
að kyssa ókunnugar konur. Þrátt
fyrir það horfði ég með lotningu á
þennan mann,“ segir John Clark
Gable, 33ja ára, sonur leikarans
fræga, Clarks Gables. John Clark
Gable er ekki líkur föður sínum í
útliti en margir segja að hann líkist
honum í fari. Hann hefur aldrei hitt
fóður sinn þar sem hann lést fjórum
mánuöum áður en hann fæddist.
Clark Gable hafði þó gert kröfu um
að barnið, ef það yrði strákur, myndi
bera hans nafn.
Móðir Johns er Kay Williams
Spreckels. Hún var íimmta og síðasta
eiginkona leikarans og sú eina sem
fæddi honum barn.
„Ég hef lesið allt sem ég hef komist
yfir um föður minn og séð allar
myndirnar hans. Hann var frábær
og ég er stoltur yfir að vera sonur
hans. En ég líkist honum ekkert og
þó ég sé líka leikari er ég allt önnur
~ týpa. Hann var konungur Hollywood
John Clark Gable er sonur hins fræga leikara, Clarks Gables.
vegna hæfileika sinna. Eg mun aldrei
verða eins og hann.
Það eru ekki áfengisflöskur í bar-
skáp Johns Clarks Gable heldur
þvert á móti appelsínusafi og vítam-
índrykkir. „í pabba tíð var það gæja-
legt útlit og útgeislun sem skipti
máli. í dag er það hins vegar að vera
í góðu formi. Ég geri æfingar þrisvar
til fjórum sinnum á dag, ég syndi, fer
á brimbretti og leik tennis," segir
hann.
John var kvæntur og á tvö börn
en er nú skilinn. „Mér gengur illa
með konur,“ viðurkennir hann og á
því sviðinu líkist hann nú varla foður
sínum sem var ávallt umvafinn
kvenfólki.
Þegar John fæddist sumarið 1961 var það á forsiðum allra heimsblaðanna.
Sherilyn Fenn og Angus MacFadyen í hlutverkum sínum sem Elísabet Tayl-
<V og Richard Burton þegar þau léku í hinni rándýru bíómynd um Cleópötru.
Myndaflokkur um
líf Elísabetar Taylor
Elisabet Taylor, 63 ára, hefur gert
allt sem hún getur, m.a. borgað dýr-
um lögfræðingum, til að stoppa fram-
leiðsluna á þáttaröð sem fjallar um
líf hennar. Sjónvarpsmyndaflokkur-
inn heitir Destiny og ganga upptökur
vel. Nýlega var tekin upp senan um
Liz og Richard Burton þegar þau léku
í kvikmyndinni Cleopötru.
Liz var þrítug þegar myndin var
gerð árið 1962. Það er Twin Peaks
drottningin Sherilyn Fenn sem leik-
ur Liz og þykir sláandi lík henni. Það
er hins vegar Angus MacFadyen sem
leikur Burton.
Myndaflokkurinn er byggður á
sögu C. David Heymann um líf Elísa-
betar Taylor. Þar munu vera að finna
safaríkar lýsingar á ástarleikjum Liz
og Burtons þegar slökkt hafði verið
á kvikmyndatökuvélum. Sjálf mun
leikkonan vera æf yfir myndaflokkn-
um.
Sherilyn Fenn er 160 sm há en El-
ísabet Taylor er mjög lágvaxin kona.
Sherilyn þykir frábær í hlutverkið
um hina frægu leikkonu.
Twin Peak leikkonan Sherilyn þykir
taka sig vel út í hlutverki Liz Taylor.
Ólyginn
... að Walt Disney fyrirtækið
hefði boðið Karli prinsi 115 milij-
ónir fyrir réttinn til að mynda
ævintýrasögu sem hann skrifaði
fyrir 25 árum. Karl sagði yngri
bræðrum sínum söguna þegar
þeir voru litlir og síðan endur-
bætti hann hana fyrir syni sína.
Disney-fyrirtækið hefur komist á
snoðir um söguna sem er sögð
... að töframaðurinn David
Copperfield, sem er kærasti
Claudiu Schiffer, hefði búið til
lista yfir kærustur sfnar undan-
farin ár. Þar munu nú þrjú hundr-
uð stúlkur vera skráðar. David
gefur hverri og einni einkunn frá
einum upp í tíu fyrir frammistöðu
þeirra á hinu eróiíska sviði.
... að fyrir stuttu síðan hefði
Björn Ulvaeus í ABBA fyllt fimm-
tíu árin og hélt hann upp á það
með miklum giæsibrag. Um
hundrað og fimmtiu gestir fögn-
uðu með ABBA-goðinu og þar á
meðal mátti sjá fyrrverandi eig-
ínkonu, Agnethu Faltskog, sem
einnig er úr ABBA-flokknum.
.. að Linda Robson, önnur að-
alleikkvennanna i sjónvarps-
myndaflokknum Sækjast sér um
líkir, hefði misst fóstur nýlega.
Linda og Mark, eiginmaður
hennar, eiga þriggja ára son.
Linda á einnig 12 ára dóttur af
fyrra hjónabandi.
sögur gengju um þaö i
Hollywood að hjónaband Eliza-
beth Taylor og Larrys Fortenskys
gengi illa. Liz og Larry, sem hitt-
ust fyrst á Betty Ford-stofnun-
inni, þar sem bæði voru í með-
ferð, hafa verið gift i fjögur ár.