Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 47
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
63
Afmæli
Björgvin Bjömsson
Björgvin Björnsson verslunarmaö-
ur, Digranesheiöi 45, Kópavogi, er
sjötugurídag.
Starfsferill
Björgvin fæddist á Neðra-Núpi í
Fremri-Torfustaðahreppi í Húna-
vatnssýslu en ólst upp á Reynhólum
í Ytri-Torfustaöahreppi. Hann
stundaði nám viö Gagnfræöaskóla
Akureyrar.
Eftir að Björgvin flutti til Reykja-
víkur hóf hann verslunarstörf hjá
verslun 0. Ellingsen en þar starfaöi
hann í fjörutíu og sex ár eöa til árs-
loka 1993 er hann hætti störfum fyr-
ir aldurs sakir. Þá hafði hann verið
. sölustjórihjáEllingsenumárabil.
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins var Hulda
Einarsdóttir, f. 7.8.1928, d. 1987,
gangavöröur við Digranesskóla.
Hún var dóttir Einars Magnússon-
ar, trésmiös á Akureyri, og Sigrúnar
Jónasdóttur, húsmóöur í Reykjavík.
Sonur Björgvins frá því áður var
Guðjón Broddi Björgvinsson, f. 16.8.
1950, d. 1963.
Sonur Björgvins og Huldu er
Björn Birgir Björgvinsson, f. 3.10.
1953, yfirkokkur í Straumsvík,
kvæntur Agnesi Sigurðardóttur
skrifstofumanni og eiga þau þrjú
börn.
Fóstursonur Björgvins er Einar
Magni Sigmundsson, f. 27.10.1949,
byggingameistari á Laugarbakka í
Miöfirði, kvæntur Vilborgu Valdi-
marsdóttur og eiga þau eina dóttur,
auk þess sem hann á þrjú börn frá
fyrrahjónabandi.
Systkini Björgvins: Hólmfríður, f.
5.9.1917, húsmóöir í Sandgerði; Jó-
hanna, f. 27.1.1919, húsfreyja á
Skarfhóli í Miðfirði; Guðmundur, f.
28.8.1920, b. í Tjarnarkoti í Mið-
firði; Ólöf, f. 14.12.1926, húsfreyja á
Kollsá í Hrútafirði; Jóhannes, f. 1.1.
1930, hreppstjóri á Laugabakka í
Miðfirði; Elís, f. 14.7.1932, starfs-
maður Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík.
Foreldrar Björgvins voru Björn
Guðmundsson, f. 23.2.1885, d. 1985,
b. á Reynhólum í Miðfirði, og k.h.,
Ingibjörg Jónsdóttir, f. 5.12.1891, d.
1973, húsfreyja.
Ætt
Björn var sonur Guðmundar, b. á
Reynhólum, Jóhannessonar, b. á
Dalgeirsstöðum, Ólafssonar. Móðir
Guðmundar var Agnes Eiríksdóttir,
b. á Efri-Núpi, Eiríkssonar, prests á
Staðarbakka, Ólafssonar, b. á Kjörs-
eyri, bróður Þórðar, afa Helga
Thordarsen biskups. Ólafur var
sonur Þórðar, b. á Kjörseyri, Ólafs-
sonar, bróður Guðrúnar, langömmu
Björns Gunnlaugssonar stærðfræð-
ings, langafa Ólafar, móður Jóhann-
esarNordals.
Móðir Björns var Þorbjörg, systir
Sigurðar, afa Skúla Guðmundsson-
ar alþingismanns. Bróðir Þorbjarg-
ar var Stefán á Hallgilsstöðum, faðir
slökkviliðsstjóranna Eggerts
Melsteds á Akureyri og Egils á
Siglufirði og afi Péturs og Valdimars
Jónassona sem voru með vöruflutn-
inga milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar. Þriðji bróðir Þorbjargar var
Jónas, faðir Guðmundar Hlíðdals
póst- og símamálastjóra. Þorbjörg
var dóttir Jónasar, b. á Tittlinga-
stöðum, Sigurðssonar. Móðir Jónas-
ar var Sigurlaug Bjarnadóttir, b. á
Brekkum, Sigurðssonar, og k.h.,
Rósu Sigfúsdóttur, prests á Felli í
Sléttuhlíð, Sigurðssonar, föður Sigf-
úsar Bergmann á Þorkelshóli, ætt-
föður Bergmannsættarinnar. Móðir
Þorbjargar var Ragnhildur Aradótt-
ur, b. á Neðri-Þverá, Eiríkssonar.
Móðurbróðir Björgvins var Helgi,
faðir Marinós, fyrrv. kaupmanns í
Brynju. Annar móðurbróðir Björg-
vins var Jóhannes, faðir Ólafs, aðal-
umsjónarmanns Happdrættis SÍBS.
Björgvin Björnsson.
Ingibjörg var dóttir Jóns, b. í Huppa-
hlíð í Miðfirði, Jónssonar, b. í Kollu-
fossi, Jónssonar. Móðir Ingibjargar
var Ólöf Helgadóttur, b. í Huppa-
hlíð, Jónssonar, frá Tannastöðum í
Hrútafirði. Móðir Ólafar var Jó-
hanna Jóhannesdóttir frá Nýjabæ í
RifiáSnæfellsnesi.
Björgvin tekur á móti gestum í
Síðumúla 25 í sal Múrarafélags
Reykjavíkur kl. 17.00-20.00 á afmæl-
isdaginn.
Til hamingju með afmælið 17. júní
95 ára 50ára
Bótólfur Sveinsson, Snorrabraut 58, Reykjavík. Sverrir Sæmundsson, Akurholti 16, Mosfellsbæ. Sigurður Sigurðsson, Yrsiifelli 5 Þpykiavik
80 ára ÓskarSigurbjörnsson, Túngötu 13, Ólafsfirði.
Siguijón Ólafsson, Skúlagötu 54, Reykjavík. Hanneraðheiman. Bjarni Njálsson, KögurseÚ 19, Reykjavik. Kona hans er Steinunn Bjarnar- son.
75 ára Þau verða að heiman á afmælisdag- inm
Bóas Emilsson, Reynivöllum 6, Selfossi. Jón Haukur Aðalstemsson, Sólhaga, Vatnsleysustrandar- hreppi.
70ára 40 ara
Halidóra Márusdóttir, Túngötu 2, Hofshreppi. Björg Sumarliðadóttir, Hafhargötu 103, Bolungarvík. Anna Bergþórsdóttir, Lindasíðu 4, Akureyri. Sigurgeir Gíslason, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Sigurður Petur Harðarson, Dalshrauni 13, Hafnarflrði. Birgir Rúnar Eyþórsson, Brautarási 11, Reykjavík. Ásta Ilse Haesler, Ránargötu 4 A, Reykjavlk. Jón Diðriksson, Helgavatni I, Þverárhlíðarhreppi. Inga Maria Ingadóttir, Skálanesgötu 4, Vopnafirði.
Til hamingju meö afmælið 18. júní
80 ára
Stefanía Sigurbergsdóttir,
Hrmgbraut 50, Reykjavík.
75 ára
Guðrún Kristinsdóttir,
Fífilbrekku, AkureyrL
Stefanía Sigurjónsdóttir,
Fannafelli8,
Reykjavík,
verðursjötíu
ogfimmáraá
mánudaginn.
Maðurhennar
erRafnkell 01-
geirssson.
Þau taka á móti
gestum í Langagerði 1, Reykjavík,
eftir kl. 16.00 þann 17,6.
70 ára
Jóhanna Þorláksdóttir,
Kirkiuvegi 10, Keflavík.
60 ára
Helga Jónsdóttir,
Rauðalæk 21, Reykjavík,
Kristín Hróbjartsdóttir,
Vesturgötu 17, Reykjavík.
50ára_________________________
Kjartan Reynir Ólafsson,
Þórunnarstræti 110, Akureyri.
Sigríður Karlsdóttir,
Garðavegi 15, Hvammstanga.
Margrét Pálfríður Magnúsdóttir,
Amarheiði 25, Hveragerði.
Haraldur Erlendsson,
Hvannhólma 22, Kópavogi.
40ára
Guðrún Indriðadóttir,
Jöklafold 29, Reykjavfk.
Birgir Ingibergsson,
Norðurvöllum 48, Keflavík.
Ingibjörg Einarsdóttir,
Stigahlíð 28, Reykjavík.
Sigrún Kjartansdóttir,
Skálabrekku 9, Húsavík.
Matthias Kjartansson,
Kársnesbraut 125, Kópavogi.
Þorlákur Sigtryggsson,
Svalbarði, Svalbarðshreppi.
Elisa Jóhanna Stefánsdóttir,
Hjalteyrargötul, Akureyri.
Kristín Bergþóra Torfadóttir,
Neðri-Tungu, Vesturbyggð.
Valgerður Kristín Olgeirsdóttir,
Huldubraut 40, Kópavogi.
Sighvatur Jón Gíslason
Sighvatur Jón Gíslason, Suðurgötu
49, Keflavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Sighvatur fæddist á Sólbakka í •
Garði í Gerðahreppi og ólst þar upp.
Hann stundaði ýmis almenn störf
til sjós og lands en starfaði þó lengst
af hjá Olíufélaginu Essó á Keflavík-
urflugvelli.
Fjölskylda
Sighvatur kvæntist 21.8.1943 Ing-
veldi Hafdísi Guömundsdóttur, f.
23.12.1923, húsmóður og sjúkraliða.
Hún er dóttir Guðmundar J. Magn-
ússonar, f. 1897, d. 1975, vélstjóra í
Keflavík, og Sigurðínu Jóramsdótt-
ur, f. 1903, d. 1975, húsmóður.
Börn Sighvats og Ingveldar Haf-
dísar eru Gísli Steinar Sighvatsson,
f. 29.11.1943, skólastjóri í Neskaup-
stað, kvæntur Ólöfu Steinunni Ól-
afsdóttur og eiga þau þrj ú börn og
tvö barnabörn; Sigrún Sighvatsdótt-
ir, f. 23.3.1945, húsmóðir og skrif-
stofumaður í Njarðvík, gift Karli
Georg Magnússyni og eiga þau þrjú
börn; Steinunn Sighvatsdóttir, f.
11.11.1950, húsmóðir og skrifstofu-
maður, gift Gunnari Þórarinssyni
og eiga þau þrjú börn; Guðmundur
Ómar Sighvatsson, f. 30.5.1958, lög-
regluþjónn í Keflavík, kvæntur
Kristínu Haraldsdóttur og eiga þau
þrjúbörn.
Systkini Sighvats: Guðrún Gísla-
dóttir, f. 25.2.1916, húsmóðir í Kefla-
vík; Þorsteinn Gíslason, f. 7.10.1917,
d. 25.8.1939; Ingibjörg Gísladóttir,
f. 4.8.1926, húsmóðir í Keflavík.
Hálfbróðir Sighvats er Höröur
Gíslason, f. 11.6.1948, skrifstofu-
stjóri í Reykjavík.
Foreldrar Sighvats voru Gísh Sig-
hvatsson, f. 4.5.1889, d. 19.9.1981,
útgerðarmaður í Garði í Gerða-
hreppi, og Steinunn Stefanía Steins-
dóttir Knudsen, f. 18.10.1895, d. 31.1.
1944, húsmóðir.
Ætt
Gísli var sonur Sighvats Jóns,
kaupmanns í Garði, Gunnlaugsson-
ar og Ingibjargar Gísladóttur.
Steinunn Stefanía var dóttir
Steins Lárussonar Knudsens, út-
vegsb. og formanns í Garði, Lauritz-
sonar Michaels Knudsen, verslun-
Sighvatur Jón Gíslason.
armanns og bókara í Reykjavík, sem
var sonur Lauritz Michaels Knud-
sens, ættföður Knudsenættarinnar.
Móðir Steins var Jóhanna Carlotta
Johnsen.
Móðir Steinunnar var Guðrún
Þórðardóttir, skipasmiðs ogfor-
manns í Gróttu og b. í Engey, Jóns-
sonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún
Guðmundsdóttir.
Friðgeir Sigurgeirsson
Friögeir Sigurgeirsson bátsmaöur,
Bugðutanga 13, Mosfellsbæ, verður
sextugur á sunnudaginn.
Starfsferill
Friðgeir fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp til sex ára aldurs.
Skömmu fyrir andlát foreldra hans
var hann sendur í fóstur til Björns
Markússonar að Gafli í Villinga-
holtshreppi í Árnessýslu. Þar dvaldi
hann til sextán ára aldurs en flutti
þá aftur til Reykjavíkur þar sem
hann stundaði ýmis almenn störf til
sjósoglands.
Hann hóf störf hjá Ríkisskipum
1964 og var þar bátsmaður frá 1971.
Þá hóf hann störf hjá Eimskipafé-
lagi íslands 1980 þar sem hann hefur
starfað síðan, lengst af sem báts-
maður.
Fjölskylda
Friðgeir kvæntist 21.10.1961 Sig-
urrós Jóhannsdóttur, f. 28.9.1941,
húsmóður. Hún er dóttir Jóhanns
Kristjáns Hannessonár, f. 1916,
pósts í Reykjavík, og íngibjargar S.
Björnsdóttur, f. 1918, d. 1980, hús-
móður.
Börn Friðgeirs og Sigurrósar eru
Jóhann Friðgeirsson, f. 27.1.1961,
bílstjóri í Reykjavík, kvæntur
Margréti Gunnarsdóttur húsmóður
og eru börn þeirra Brynjar Sigurðs-
son og Sigurrós Jóhannsdóttir;
Magnea Margrét Friðgeirsdóttir, f.
20.11.1965, húsmóðir í Mosfellsbæ,
gift Sindra Skúlasyni þjóðfélags-
fræöingi og er dóttir þeirra Tinna
Sif Sindradóttir; Jónbjöm Frið-
geirsdóttir, f. 24.1.1968, sölumaður
í Mosfellsbæ.
Systkini Friðgeirs: Guðrún Guð-
laug Sigurgeirsdóttir, f. 26.8.1926,
húsmóðir í Reykjavík; Rósa María
Sigurgeirsdóttir, f. 23.7.1928, hús-
freyja á Bakka í Leirársveit; Benný
Sigurgeirsdóttir, f. 9.9.1929, hús-
móðir á Akranesi, Jónbjörn Sigur-
geirsson, f. 2.3.1931, d. 5.8.1951;
Fanney Sigurgeirsdóttir, f. 29.5.
1932, ræstingakona í Reykjavík;
María Sigurgeirsdóttir, f. 30.8.1933,
húsmóðir í Reykjavík; Margrét Sig-
urbjörg Sigurgeirsdóttir, f. 1.9.1936,
starfsmaður hjá Pósti og síma á Sel-
fossi; Sigvaldi Friögeirsson, f. 16.2.
Friðgeir Sigurgeirsson.
1939, starfsmaður hjá tollstjóraemb-
ættinuíReykjavík.
Foreldrar Friðgeirs vom Sigur-
geir Björnsson, f. 25.10.1899, d. 18.11.
1943, símritari og síðar bakari í
Reykjavík, og Fanney Jónsdóttir, f.
7.3.1909, d. 26.10.1943, húsmóðir.
Friðgeir verður að heiman á af-
mæhsdaginn.