Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Síða 5
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995
5
»
|
I
>
>
í
>
I
I
►
I
Fréttir
I kjölfarið á velgengni plötunnar Post:
Sjón ritstýrir
bók um Björk
- sem kemur út í Englandi og víðar
í undirbúningi er útgáfa á tímariti
um söngkonuna Björk Guðmunds-
dóttur og fylgdarlið hennar. Fyrsta
tölublaöið kemur út í haust í Eng-
landi og víðar í bókarformi og síðan
er stefnt að útkomu tímarits fjórum
sinnum á ári bókarfonni. Bókin
nefnist Post líkt og nýjasta hljóm-
platan og er gefm út af forlaginu Blo-
omsbury í Englandi. Sjón, Sigurjón
B. Sigurðsson, ritstýrir tímaritinu og
skrifar bókina að mestu leyti. í miklu
viðtali í bókinni viö Björk fær Sjón
Skotann Craig McLean til liðs við
sig. Ljósmyndir í bókinni eru m.a.
teknar af Bernharði Valssyni sem nú
starfar í París.
Sjón er að ritstýra bók og tímariti um Björk Guðmundsdóttur söngkonu.
Sjón sagði í samtali við DV aö bók-
in yrði mjög vegleg, 60-70 blaðsíður
og í stóru broti með þykkum pappír
og úrvali litmynda. Bókin kemur
aðeins út á ensku og verður liklega
ekki í boði á íslandi.
„Auk viðtals við Björk verða viðtöl
viö flesta þá sem komu nálægt gerð
plötunnar Post. Meðal annars er við-
tal við leikstjórann sem stýrt hefur
helstu myndböndum Bjarkar," sagði
Sjón.
Um svipað leyti og bókin kemur út
í haust ætlar Björk að gefa út plötu
með nokkrum endurgerðum lögum
af Post, auk nýrra laga með klassísk-
um tónlistarmönnum á borð við Eve-
lyn Glennie og Brodsky kvartettinn.
í umræddri bók er einnig að íinna
viðtöl við Evelyn og Brodsky-hópinn.
í tímaritinu, sem byijar að koma
út um áramót, er að frnna tíðindi af
Björk og samstarfsfélögum hennar í
tónlist og myndbandagerð. Tímarit-
inu er ætlað að svala fróðleiksþyrst-
um áhangendum Bjarkar um allan
heim og dreifingin er í hundruð þús-
undumeintaka. -bjb
Miklar laxatorfur hafa verið í Reykjavíkurhöfn að undanförnu og hafa margir freistað gæfunnar. Dæmi er um að
veiðimaður hafi náð 6 löxum i einni lotu. Bannað er að veiða lax í sjó en stangaveiðar eru heimilar sé ekki bein-
linis verið að bera sig eftir laxi. DV-mynd Sveinn
Sala ríkisfyrirtækja og eigna:
Markmið skilgreind eftir á
- segir ríkisendurskoöandi í afmælisriti endurskoöenda
Nýlega varð Félag löggiltra endur-
skoðenda 60 ára og af því tilefni kom
út veglegt afmælisrit í umsjón Birgis
Guðmundssonar. í ritinu kennir
ýmissa grasa úr sögu endurskoöunar
á íslandi sem ekki hefur verið til
áður á einum staö. Þá eru í ritinu
þrjár viðamiklar faglegar greinar eft-
ir virta fræðimenn sem fengur er að
fyrir áhugamenn um fyrirtækja-
rekstur og viðskipti.
í samtalsgrein um stjórnsýsluend-
urskoðun kemur einnig ýmislegt at-
hyglisvert fram og e.t.v. vekja eftirf-
arandi ummæli Sigurðar Þórðarson-
ar ríkisendurskoðanda athygli í ljósi
einkavæðingar stjómvalda á undan-
gengnum árum:
„Hins vegar er annað sem við höf-
um gagnrýnt og hefur gert okkar
starf erfiðara en ella og það er að oft
hefur verið misbrestur á því að
markmið með sölu fyrirtækja eða
eigna hafi verið vel skilgreind fyrir-
fram. Raunar virðist það hafa verið
nokkuð algengt að eignir era seldar
og svo era fundin og skilgreind ein-
hver markmið eftir á, sem gætu pass-
að niðurstöðunni úr tiltekinni sölu.“
-bjb
HELGARTILBOfl
- í Rúmfatalagernum
ÍmuM
Vandað garðsett úr
smíðajárni.
Áður: 14900 kr.
Nú aðeins:
kr.
E
v
Á hjólum. Eitt hliöarborö
og ein undirhilla.
Aður: 2990 kr.
Nú aðeins:
Sólstóll á hjólum með
þykkri sessu.
Aður: 1500 kr.
Nú aðeins:
Skyrtur
Þekkt vörumerki.
Margar stærðir og mynstur.
Verð i U.S.A. 15.95$ (1013 isl/kr.)
hjá okkur
I fallegum litum og
mörgum stærðum.
Verð ÍU.S.A. 39.95$ (2537 ísl/kr)
Aðeins
hjá okkur
® Holtagóröum Skeifunni 13
A Reykjavík Reykjavik
72 Noröurtanga 3 UU
Akureyn *
Reykjarvíkurvegi
Hafnarfiröi
RUMFATA