Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 29. JtJLÍ 1995 3 dv Fréttir Stígamót: Efna til fræðslu- og forvarnar- átaks - fyrir verslunarmannahelgi „Við höfum gefið út mjög hand- hægan upplýsingabækling sem gæti nýst þeim sem vilja kynna sér eitt- hvað um nauðganir og ég tala nú ekki um ef fólk er svo óheppið að verða fyrir slíku. Bæklingurinn er þá svona eins og fyrsta hjálp," sagöi Juðrún Jónsdóttir, starfskona Stíga- móta, en samtökin ætla að efna til fræðslu- og forvarnarátaks fyrir verslunarmannahelgina. Átakið felst í útgáfu upplýsingabæklings þar sem m.a. spurningum um nauðganir er svaraö og verður honum t.d. dreift við brottfararstaði um fyrrnefnda helgi. Einnig hafa Stígamótakonur látið hanna fyrir sig veggspjald með sínu sígilda slagorði „Nei, þýðir nei!“ Vonum að þetta hafi áhrif „Við vonum aö svona fræðsla hafi áhrif. Ég held að fræðsla sé af hinu góða og það er nú kannski eina for- varnarleiðin sem er tiltæk, þ.e. að reyna að koma út upplýsingum um aö þarna eru alvarlegir hlutir á ferð- inni,“ sagði Guðrún. Aðspurð hvort Stígamótakonur ætluðu að bjóða þjónustu sína á mörgum útihátíðum um verslunar- mannahelgina sagði Guðrún að sú ákvörðun hefði verið tekin að leggja aðaláhersluna á að koma út þessu forvarnarfræðsluátaki. „Ef móts- haldarar eru tilbúnir að borga kostn- aðinn sem felst í því að hafa Stígamó- takonur á útihátíðunum þá förum við fúslega. Hingaö til höfum við sjálfar þurft að standa undir öllum kostnaði en það getum við ekki leng- ur. Við ákváðum að verja peningun- um frekar í fræðslu- og forvarnar- starf. Okkur finnst kannski eðlilegt eftir að hafa sýnt fram á nauðsyn svona þjónustu að mótshaldarar hafi þetta sem fastan lið á öllum útihátíð- um.“ Glens og grín í Hrísey Valdís Þoisteinsdóttir, DV, Hrísey: Mannlífið hér á eyjunni er rólegt og gott og þó hálfgert vetrarveður geri um hásumar raskar það ekki ró íbúa. Atvinna er stöðug, talsvert um farandverkafólk og ég veit ekki betur en atvinnyleysisskýrslan sé alauð. Nú er blessuð sóhn búin að skína í viku - algjör orkusprauta og því verður heilmikii uppákoma 30. júlí. Útimarkaður við elliheimilið með ótal básum og er það vel til fundið því fjöldi ferðamanna er hér. Skemmtun verður í Sæborg um kvöldið þar sem Örn Árna og Jónas Þór, eldri og yngri, koma fram. Það verður því glens, grín og gaman í Hrísey 30. júh. í GALTALÆ KJARSKÓGI 'ág hef farið á | Bindindismótiðj í 17 árog | 1 það er eins ■ log að sleppa | \ jólunum að I 4 fara ekki.../Ú (Á PALLI) REGGAE OH ICE * 'l B !s l NATT NACHIIS SCHEVIMG AFNAI (Á PALLI) Ji Ny SPAUGSTOFAN SERA PALMl SKITAMORALL ISLAHDSNOT í POXI FIOLSKYLDVNNAR ÆVINTÝRAHEINVR BARNA 06 VN6LIN6A RUTUFERÐIR FRA ; KEFLAVÍK OG BSÍ KÍ NÆGTJALDSTÆÐI fy - GÓÐ HREINLÆTISAÐSTAÐA f SJÚKRAVAKT GÆSLA HJÓLHÝSASVÆÐI UNGLINGABUÐIR VEITINGAHÚS 0^- LOFTKASTALAR m > ,, %% ■ HESTALEIGA GONGUFERÐIR ÆVINTÝRALAND FLUGELDASÝNING VARÐELDUR '*/A| BARNALEIKHÚS OKULEIKNI HJÓLREIÐAKEPPNI STREETBALL | DISKOTEK í KÚLU I OG MARGT FLEIRA.. Bindindismót ekki gleyma því FYRIR AÐEINS 4.500 kr. 16 ára o.e. 3.500 kr. 13-15 ára frítt fyrir 12 ára og yngri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.