Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995 Danska stúlkan Janne er enn meðvitundarlaus eftir árás í Hróarskeldu í mars siðastliðnum. Meðvitund- arlausir í mörg ár í mars síðastliðnum var danska stúlkan Janne Truesgaard slegin niður á bílastæði í Hróarskeldu eftir að hún hafði yfirgefið veitingastað í fylgd með ungum manni. Hún lá í dái í fjóra mánuði. Meðal gestanna á veitingastaðnum voru nokkrir íslendingar. Dönsku lögreglunni þótti ástæða til að yfir- heyra þá nánar og kom hingað núna í júlí í þeim tilgangi. Ofbeldismaður- inn er enn ófundinn. Janne, sem er aðeins 17 ára, hefur legið alveg meðvitundarlaus þar til fyrir um það bil viku að hún gat gert sig skiljanlega með höfuðhreyfingum. I Sviþjóð vaknaði 35 ára kona eftir átta ára meðvitundarleysi sem orsak- aðist af heilablæðingu. Það er þó sjald- gæft að fólk vakni eftir langan dásvefn. Þess eru mörg dæmi að foreldrar hafa tekið börn í dái heim til sín til að annast þau þar. Bandarísk móðir hefur í 36 ár hugsað um dóttur sína sem vaknaði ekki eftir botnlangaað- gerð þegar hún var sex ára. Frönsk kona fékk orðu frá Frakklandsfor- seta fyrir að hafa annast meðvitund- arlausan son sinn í 18 ár. Sonurinn varð fyrir bíl þegar hann var 19 ára og gegndi herþjónustu. Það hefur komið fyrir að gerðir hafi verið keisaraskurðir á konum í dái. Börnin voru heilbrigð en mæð- urnar dóu fljótlega á eftir. Það hafa einnig verið gerðir keis- araskurðir á heiladauðum konum. Heiladauði er þó allt annað ástand en dásvefn. Þegar um heiladauða er að ræða er ekkert blóðstreymi í heil- anum og öll heilastarfsemi hætt. Engir möguleikar eru á því að heiladauðir vakni aftur. Ef öndunar- vél, sem viðkomandi er í, er tekin úr sambandi hættir hjartað fijótlega að slá. Það gerðist hjá Grace Kelly, furst- ynju í Mónakó, árið 1982. Hún hafði hafði fengið heilablæðingu við akst- ur þannig að bíll hennar fór út af. Sólarhring eftir slysið hafði hún ver- ið heiladauð í margar klukkustundir. Samkvæmt læknisráði ákvað fursta- fjölskyldan að taka öndunarvélina úr sambandi. Þar með hætti einnig öll hjarta- og lungnastarfsemi. Dómstólar þurfa oft að fjalla um mál sem tengjast fólki í dásvefni. Kona nokkur krafðist lífeyris- greiðslna frá manni sínum sem hafði legið meðvitundarlaus í nær ár. Hún tapaði málinu. Fyrir rúmum áratug var Claus von Bulow, ákærður fyrir að hafa gefið forríkri eiginkonu sinni, Sunny, insúhnsprautu á jólunum 1980 með þeim afleiðingum að hún féll í dá. Það voru böm konunnar af fyrra hjónabandi sem kærðu von Bulow. Þau höfðu ekki löngu áður orðið fyr- ir áfalli. Þegar móðir þeirra missti meðvitund hafði faðir þeirra, austur- ríski prinsinn, Alfie von Auersperg, legið í dái á þriðja ár i Munchen eft- ir bílslys. Claus von Búlow var í undirrétti dæmdur í 30 ára fangelsi. En vegna formgalla varð að rétta aftur í máhnu og 1985 var von Bíilow sýknaður. Það var mat réttarins að dásvefn eigin- konunnar stafaði ekki af insúlín- sprautunni heldur af neyslu áfengis og taflna. Sunny liggur enn í dái í eins konar fósturstellingu á hjúkrun- arheimih í Bandaríkjunum. Endursagt úr Jyllands-Posten NÁÐU ÞERIFARIIMISUMARLEIK HAPPAÞRENNUNNAR 06 DV DRAUMAFERÐ OG FARAREYRIR Með Farmiða ert þú kominn I spennandi SUMARLEIK Happaþrennunnar og DV Farmiðinn er tvlskiptur og gefur tvo möguleika á vinningi. Á vinstri helmingi eru veglegir peningavinningar, sá hæstí 2,5 MILUÓNIR, og á þeim hægrí eru glæsilegir ferðavinningar og „My First Sony" hljómtæki. GLÆSILEGIR VINNINGAR! Auk peningavinninga eru I boði: Fjölskylduferð fyrir fjóra til Flórída 28 borgarferðir fyrir tvo til New York, Baltimore, Frankfurt, London eða Par/s 150 stk. „My First Sony" hljómtæki HAPPATÖLUR DV Daglega frá þriðjudegi til föstudags birtast happatölur I DV Par getur þú séð hvort númer á Farmiðanum þlnum hefur komið upp. Pú skalt geyma vandlega hægri helming Farmiðans þar til sölu upplagsins lýkur og öll vinningsnúmerin hafa birst, þvl þú átt möguleika I allt sumar. Uppsöfnuð vinningaskrá birtist í DV 1. ágúst, 1. september og 2. október 1995. FLUGLEIOIRM SONY iixix yíII blondínu Elsti jólasveinninn á 135 manna ársþingi jólasveina í Kaupmanna- höfh á dögunum var Ðayton C. Fouts frá Chicago. Hann er 83 ára og hefur verið jólasveinn í 57 ár. Dayton, sem hefur verið ekkiil í 30 ár, sagði á þinginu að það eina sem sig iangaði til að fá í jólagjöf væri blondína. Aðrir jólasvemar voru raunsærri og stofnuðu félag sem hefur það aö markmiði að jólahlað- borð verði á boðstólum allt árið. Jólasveinarnir 135, sem komu frá 5 heimsálfum, fengu að minnsta kosti að njóta dansks jólahlaðborðs í sumarblíðunni á Dyrehavsbakk- en. Þar röðuðu þeir í sig svínasteik, brúnuðum kartöflum og hvítum kartöflum, sveskjum og rauðkáii og „ris a la mande“ i eftirrétt. Með kaffinu voru bornar fram jólasmá- kökur og kleinur. Þar sem hitinn var um 25 stig þótti sveinunum gott að kæla sig með dönsku jólaöli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.