Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995 41 íslendingur kvæntistbreskri konu í fjöldabrúðkaupinu í Seoul fyrir þremur árum: Þau þekktust ekki fyrir brúðkaupið í ágúst 1992 gengu 60 þúsund safnað- armeðlimir í Kirkju sameiningar og heimsfriðar í hjónaband á ólympíu- leikvanginum í Seoul í Suður-Kóreu. Meðal þessara 30 þúsund para sem voru vígð í Seoul var íslendingurinn Þorsteinn Scheving Thorsteinsson og Pauline McCarthy frá Skotlandi. í ágústhefti breska tímaritsins Marie Claire er viðtal við Þorstein og Pauline og fjöldabrúðkaupið riíjað upp. Greint er frá því að nokkrum mánuðum fyrir hjónavígsluna hafi Sun Myung Moon, leiötogi Kirkju sameiningar og heimfriðar (Unific- ationist Church), parað saman að því að fullyrt er menn og konur í söfnuði sínum sem hann taldi myndu eiga saman. Fæst höfðu sést áður Þar til nokkrum dögum fyrir brúð- kaupið höfðu fæst paranna sést. Þau höfðu aðeins fengið mynd og bréf frá væntanlegum maka. Fyrirskipað var að bíða þyrfti með fullkomnun hjónabandsins þar til 40 dögum eftir brúðkaupið. Viðkomandi þurftu einnig að láta gefa sig saman á ný í heimalöndum sínum þar sem hjóna- vígslan í Seoul stóðst ekki fyrir lög- um. Við grípum hér niður í viðtalið við Pauhne og Þorstein sem voru meðal þeirra sem ekki þekktust fyrir brúð- kaupið. „Eg reyndi að kaupa blóm til að gefa Þorsteini á flugvellinum, rauðar rósir eða eitthver rómantísk blóm, en það var hvergi blóm að fá. Ég tók að lokum rauða blómaskreytingu frá borði á veitingastað og rétti honum hana. Hann hélt að ég ætlaði að Þorsteinn og Pauline voru meðal 60 þúsund para sem gefin voru saman í Seoul í Suður-Kóreu fyrir þremur árum. heilsa honum með handabandi og kreisti blómin í staðinn. Við hlæjum enn að þessu. Það fór frábærlega á með okkur frá byrjun," segir Pauline Thorsteinsson. Búin að vara foreldrana við Pauline segist svo frá að hún hafi verið búin að vara foreldra sína við því að hún gæti verið gefrn Zulu- manni frá Afríku. Hún segir foreldra sína mjög hrifna af Þorsteini. Eftir vígsluna í Seoul fór Pauline til Man- chester til að þjálfa trúboða en hélt til íslands í desember 1992. Hún og Þorsteinn höfðu bæði verið gift áður og biöu því ekki í 40 daga eftir vígsl- una með að fullkomna hjónabandið. Þau eiga nú son á öðru ári. Pauline segir margt ólíkt með henni og Þor- steini, hún sé opin og hann lokaður en þau eigi margt sameiginlegt. „Eg held að tilíinningar mínar í garð hans muni vara að eilífu. Þegar við erum innan um fólk er það ég sem tala og ég held að fólk hljóti að vor- kenna honum að eiga konu eins og mig. En þegar við erum heima er það hann sem er húsbóndinn." Bæði taugaóstyrk í viðtahnu segir Þorsteinn að sér hafi létt við það að fá að vita að hann ætti að ganga að eiga konu frá Bret- landi. „Ég hugsaði með mér að við töluðum að minnsta kosti sama tungumálið. En myndin sem ég fékk af Pauline var svolítið einkennileg. Hún var í fótum sem gerðu það að verkum að hún leit út fyrir að vera miklu eldri en ég en það stemmdi ekki miðað við fæðingardag hennar. Ég hafði einnig áhyggjur af því hvaö það væri mikill hæðarmunur á okk- ur. En þegar ég sá hana leið mér miklu betur. Hún virtist mjög taugaóstyrk og gat ekki horft framan í mig. Ég talaði heldur ekki mikið því ég var líka feiminn. Eftir nokkrar klukkustundir fórum við að slappa af... Næsta dag bauð hún mér á kín- verskan veitingastað og þá fór ég að hugsa með mér að þetta væri konan fyrir mig. Ég var með hræðilegan höfuðverk við hjónavígsluna og var taugaóstyrkur og annars hugar. Á eftir spurði ég Pauline hvernig hún gæti enn verið svona almennileg við mig þegar ég væri svona geðillur. Hún sagði eitthvað á þá leið að ef ég sæi það sem hún sæi liði mér vel. Næstu fjóra mánuðina, þar til Paul- ine kom til íslands, hringdum við hvort til annars og skrifuðumst á allan tímann. Það var mjög rþman- tískt þegar hún loksins kom og við ■* höfum verið hamingjusöm síðan. Pauline er dásamleg manneskja og í hvert skipti sem ég er í burtu sakna ég hennar hræðilega og er alltaf að hringja í hana.“ mm mm ■ w *ee» m Si 2H !S ffi fffi HHL r mwoLmjE i 9 0 4 * 1 7 0 0 kr. 39.90 min. Don't'lose contact with the world. Call 904-1700 and hearthe latest in world news in English orDanish. i NEWSo/wr 9 0 4 * 1 7 0 0 feta í fótspor bróður Cadfaels? TAKTU ÞÁTT í spennandi leik BÓKANNA °9 SJONVARPSINS Þú getur unnið þér inn helgarferð með heimsókn í Shrewsburyklaustur, heimaslóðir spæjaramunksins nsæla sem er frægur af bókunum og Ifka úr sjónvarpi. Það eina sem þú þarft að gera er að leysa eina eða fleiri af fjórum gátum um Bróður Cadfael svörin við gátunum finnur þú f bókunum um Cadfael. Ef þú leysir allar fjórar gáturnar fjórfaldar þú vinningsmöguleika þína. Gáturnar birtast ein í einu í HELGARBLAÐI DV. I. júlí-gáta Líki ofaukið Irj 8. júlí-gáta Bláhjálmur 15. júlí-gáta Líkþrái maðurinn 22. júlí-gáta Athvarf öreigans úxtrjnrS Glæsi eg utanlandsferð í boði Dregið verður úr réttum lausnum og hlýtur einn : heppinn sigurvegari glæsilega helgarferð fyrir tvo ; til Shrewsbury með heimsókn í klaustrið. JL4 y Flogið verður 25. ógúst með Air Emerald / lljðfftU til Luton ó Englandi - möguleiki er að fram- 1 c-i.K T£An. lengja dvölino í Englandi eðo ó Irlandi. AUKAVERÐLAUN! Tíu heppnir þótttakendur verða dregnir úr pottinum og hljóta þeir tíu Urvalsbækur að eigin vali, að heildarverðmæti 8.950 kr. I hver pakki. - Skilafrestur er til 9. ógúst. Þú sendir lausnirnar til ÚrvalsbókciJ - merkt Bróðir Cadfael - Þverholti 11 - 105 Reykjavík. Bækurnar um bróður Cadfael fóst ó næsta sölustað og kosta aðeins 895 kr. °9 enn þd minna ó sérstöku tilboði í bókaverslunum. FXJALjUfiOLMIÍLUN HF, ^jFSVsbunj' SfÓNVARPIÐ .RlWX- flP EMBRALDAIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.