Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 52
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Kólnandi veður
A sunnudag má búast við nokkuð stífri sunnanátt um mestallt land. Það rignir víðast hvar en mest suðvestan- og vestanlands. Hiti verður á biiinu 12
til 15 stig en gæti náð 20 stigum norðaustan til.
Á mánudag er útlit fyrir hæga suðvestlæga átt. Fremur þungbúið verður víða á Suður- og Vesturlandi en yfirleitt þurrt og bjart á Noröur- og
Austurlandi. Veður fer kólnandi. „ . _ , , . , ,
Veðnð í dag er a bls. 61
Fyrsta íslenska lesbían gengur í hjónaband::
Erum innilega
hamingjusamar
Gisli Kristjánsscm, DV, Ósló:
„Við heföum ekki getað gift okk-
ur ef við hefðum báöar verið ís-
lenskar. Það eru auðvitað engin
mannréttindi en svona eru íslend-
ar aftarlega á merinni," segir
Bryndís Elnarsdóttir, fyrsta ís-
lenska lesbían sem gengur í hjóna-
band, í samtali við DV.
Bryndís gekk í gær að eiga
norsku stúlkuna Vigdísi Rasten í
þinghúsi Óslóar. Sólin brosti við
þeim á tröppum hússins þar sem
ættingjar og vinir frá íslandi og
Noregi voru fjölmennir. Bryndis
og Vigdís voru klæddar 1 þjóðbún-
inga landa sinna í stað hefðbund-
inna brúðkaupsklæða.
„Við erum innilega hamingju-
samar,“ sagði Vigdís á ágætri ís-
lensku þótt hún sé annars norsk
og hafi bara lært málið „svona í
framþjáhlaupi" af sambýliskonu
sinni. Vigdís er félagsráðgjafi en
Bryndís er við nám í matreiðslu.
Þær hafa búið saman í rúmlega
fimm ár en Bryndís hefur verið í
12 ár í Noregi.
Eftir vígsluna buðu þær til veislu
og var hangikjöt og brennivín á
borðum. „Við vildum hafa þetta
þjóðlegt þótt ég viti ekki alveg
hvernig hangilgöt og brennivín fer
saman," sagði Bryndís.
ÞREFALDUR1. VINNINGUR
Stúíkan sem fékk nýtt nýra:
Er á batavegi
Stúlkan sem fékk grætt nýra í sig
úr ömmu sinni í Boston í síðustu
viku, Ásta Kristín Árnadóttir, er nú
á batavegi. Engin merki hafa komið
fram um að líkami hennar hafni nýr-
anu og fór hún í fyrsta skipti fram
úr í fyrradag. Amma hennar sem gaf
nýrað, Ásta Steinsdóttir, fékk að
koma heim af spítalanum í vikunni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Ásta fær nýtt nýra. Hún fékk nýra
frá fóður sínum fyrir 11 árum en
nýra ömmu hennar kom nú í stað
þess. Fyrir 8 árum fékk Brynja, syst-
ir Ástu, einnig grætt nýra í sig. Það
fékk hún frá móðurinni. Þá þrengdi
það mikið að fjölskyldunni að hún
varð að selja íbúðina sína.
Söfnun
Mikill kostnaður er við förina til
Boston. Eru foreldrar Ástu þar úti
og leigja íbúð fyrir 80 þúsund krónur
á mánuði og fá engar tekjur á sama
tíma. Vegna kostnaðarins hafa íbúar
Ámeshrepps hafið söfnun fyrir fjöl-
skylduna en Vilborg, móðir Ástu, er
ættuð þaðan. Stofnaður hefur verið
sérstakur reikningur fyrir söfnunina
sem Félag Árneshreppsbúa er skrif-
að fyrir. Reikningurinn er ávísana-
reikningur hjá Sparisjóði Árnes-
hrepps og er númer 1124-26-50. Heim-
ilisfang félagsins er: Boðagrandi 4,
107 Reykjavík. -GJ
Heilbrigðismál:
Yf irstjórn færð
til kjördæma
Yfirstjórn heilbrigðismála veröur
færð í kjördæmin ef tillögur þess efn-
is frá Ingibjörgu Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra verða samþykktar.
Markmiðið með tillögunum er að
nýta fjárfestingar sjúkrastofnana
betur og auka sérfræðiþjónustu.
Ingibjörg hefur síðustu daga átt
fundi með forráöamönnum sjúkra-
húsa. Hún átti í gær fundi með
stjórnum sjúkrahúsanna á Húsavík
og Akureyri þar sem tillögurnar
voru kynntar. Með einni yfirstjórn í
hverju kjördæmi verður sjúkra-
stofnunum fækkaö og þær sameinað-
ar. Að sögn ráðherrans er grundvall-
armarkmiðið að fjármagn flytjist
með sjúklingum fari þeir á milh kjör-
dæma til meðhöndlunar. -bj b
Mánudagur
Skora á stjómvöld:
Vilja varðskip
á slóðina
- dræm veiði í Smugunni
Áhafnir 25 togara, sem eru að veið-
um í Smugunni, skora á dómsmála-
ráðherra að senda varðskip í Smug-
una. í fyrrasumar var varðskipið
Óðinn á þessu svæði með lækni inn-
anborðs og þjónaði þar íslensku skip-
unum og nú vilja sjómennirnir fá
sambærilega þjónustu. Það kom
fram í viðtali DV að fjárþröng Land-
helgisgæslunnar réö því að enn væri
ekki búið að senda varðskip norður
eftir.
Kristinn Gestsson, skipstjóri á
frystitogaranum Snorra Sturlusyni
RE, segir að nú séu á þessum slóðum
25 íslensk skip og þeim fari ört fiölg-
andi. Þá eru að sögn Kristins 5 portú-
galskir togarar og 3 færeyskir.
íslensku skipin eru flest með flot-
troll og hafa veitt sæmilega en hin
skipin eru eingöngu með botntroll
og hafa lítið fengið. Kristinn segir að
nú sjáist lítið lóð og aflinn sé frá
hálfu tonni á togtímann og niður í
ekki neitt. -rt
LOKI
Þá á ég fyrir blandi í poka!
'fw*
**
Bryndis Einarsdóttir og Vigdís Rasten voru klæddar í þjóðbúninga þegar þær gengu í hjónaband i þinghúsi Óslóar
i veðurblióunni i gær. DV-símamynd Gísli Kristjánsson
SIMATORG DV 904 1700
FRETTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar
nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563*2700
BLAÐAAFG REIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriöjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SIMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGARDAGS OG MÁNUDAGSMORGNA
Frjalst,ohaö dagblaö
LAUGARDAGUR 29. JÚU 1995.
Krónurnar
falla niður
t „Við leggjum ekki í neinn kostnað
við innheimtu á svona lágum tölum.
Menn hafa ekki treyst sér til þess að
setja einhverjar reglur um hvað eigi
að rukka inn fyrir fram og hvað ekki.
Hins vegar hefur það verið þannig
aö allar upphæðir innan við 100
krónur hafa fallið sjálfkrafa niður
þegar árið er liðið. Sú aðgerð er gerð
hjá Ríkisbókhaldi fyrir allt landið í
einu,“ sagði Sigurður Kristjánsson
hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík.
Fjöldi fólks þarf aö greiða eina
krónu og upp í hundrað krónur
vegna álagningarinnar, sumir á allt
að fimm gjalddögum. -sv
Ertu búinn að panta?
dagar til þjóðhátíðar
FLUGLEIÐIR
Innanlandssími 5050 200