Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ1995 23 Frá Nýja-Sjálandi og rekur fyrirtæki á Fáskrúðsfirði: Langaði að gera eitthvað skapandi - segir Gwendolyn Kemp sem framieiðir tertuskraut „Ég kom til íslands árið 1981 ásamt þrettán öðrum Nýsjálendingum til að vinna í frystihúsi. Það var ævin- týraþrá í mér og mig langaði að ferð- ast. Ég kom hingað til íslands tíi að afla mér peninga. Þá tíðkaðist mjög að hópar af útlendingum kæmu hing- að í flskvinnu. Ég var ráðin til Fá- skrúðsfjarðar ásamt þeim hópi sem ég kom með og dvöhn átti að standa í sex mánuði. Við urðum hins vegar tvær eftir og giftumst íslenskum mönnum," segir Gwendolyn Kemp, sem nú rekur fyrirtækið Hátíða- skreytingar á Fáskrúðsfirði. Gwen- dolyn hefur byggt upp fyrirtækið sl. þrjú ár og náð góðum árangri í að markaðssetja vörur sínar um allt land. Fyrirtækið sérhæfir sig í alls kyns tertuskreytingum fyrir hin ýmsu tækifæri, brúðkaup, ferming- ar, skírnir, afmæli og þess háttar. „Ég var búin að ganga með það í maganum lengi að stofna þetta fyrir- tæki. Áður hafði ég farið heim til Nýja-Sjálands í eitt ár, kynnt mér rekstur svipaðra fyrirtækja og lært kökuskreytingar. I leiðinni prófuð- um við hjónin að búa á Nýja-Sjálandi og breyta aðeins til.“ Tungumálið erfitt Gwendolyn segir að í fyrstu hafi það ekki verið kökuskreytingar sem hana langaði að læra. „Ég hafði enga sérstaka menntun sem hentaði mér hér á íslandi og hafði því ekki úr miklu að velja. Mig langaði þó til að gera eitthvað skapandi. Tungumálið gerði mér líka erfitt fyrir því það tek- ur útlendinga þrjú til fimm ár að ná tökum á máhnu. Ég fór í Háskóla íslands til að læra tungumálið og hafði gott af því. Þar sem tungumáhð háði mér starfaði ég við fiskvinnslu í nokkur ár en fannst það mjög óspennandi. Maðurinn minn, Björg- vin Ragnarsson, er bóndi og ég haföi hjálpað honum htihega við bústörfin. Þetta höfðaði þó ekki til mín. Mig langaði að skapa eitthvað. Maður hefur verið að sjá það víða um land að útlendingar eru að fara út í sér- framleiðslu og hafa komið margvís- legum hugmyndum á framfæri. Kökuskreytingar voru það eina sem mér datt í hug og þáð var vegna þess að þegar ég gifti mig fyrir tíu árum vantaði svo margt í kökuskreyting- arnar. Nú reyni ég að framleiða hér á landi það sem áður var innflutt. Þetta er alls konar skraut, þurr- skreytingar og sykurskreytingar. Einnig flyt ég inn afmæhskerti og smáræði sem fer í tertur en það er aht pakkaö hér á landi.“ Skreytirpáskaegg Gwendolyn segir að fyrirtækið gangi vel og hún sé komin með samn- inga fyrir næsta ár. „Við framleiðum fyrir páskaeggjaframleiðendur á ís- landi þurrskreytingar sem eru flutt- ar inn óunnar en fuhgerðar hér á Fáskrúðsfirði. Það er talsverð vinna í kringum það.“ Hún viðurkennir að stundum geti það verið erfitt að fyrirtækið sé starf- rækt á litlum stað á landsbyggðinni en með aukinni tækni er það vel mögulegt. „Það væri langbest að vera í Reykjavík þar sem markaðurinn er stærstur en faxtækið bjargar." Gwendolyn er með aht upp í fjórar Gwendolyn Kemp ásamt börnum sínum fyrir utan fyrirtækið á Fáskrúðsfirði. DV-mynd Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði manneskjur í vinnu þegar mest er. „Vinnuálag er mest frá september og fram í maí. Mest er að gera í kring- um fermingar. Sumrin eru rólegri, við önnum vel brúðkaupsmarkaðn- um. Þetta þarf þó aht mikinn undir- búning og við höfum orðið fyrir því að það getur verið erfitt að fá ýmsa hluti, t.d. litla sérhannaða kassa. Við höfum þurft að hanna þá sjálf og það er mikill kostnaður samfara því þar sem markaðurinn er htih,“ segir Gwendolyn. „Engu að síður er vel hægt að reka svona fyrirtæki á ís- landi og mér línnst það bæði spenn- andi og skemmtilegt." Saknar fjölskyldunnar Gwendolyn og Björgvin eiga työ böm sem eru 8 og 9 ára gömul. „Ég hef fest rætur hér eins og hægt er en það verður þó aldrei alveg. Mér líður vel hér á landi en sakna fjölskyldu minnar. ísland og Nýja-Sjáland eru ólík lönd, sérstaklega 'hvað varðar menningu og siði. íslendingar eru lokaðir og eiga erfitt meö að tjá th- finningar sínar en mér hefur fundist að þetta sé að breytast. Núna er fólk thbúnara að ræða hin ýmsu mál og mér finnst það mjög gott. Á þessum árum sem ég hef búið hér hefur orðið mikh breyting varðandi fjölmiðla og það hefur breytt íslendingum." Gwendolyn segist þó ekki vera sest að hér á landi fyrir lífstíð. Hana lang- ar th að flytja heim eftir einhver ár. „Það er eitthvað sem togar alltaf í mig.“ HfiNS PETERSEN HF allar myndirnar á einni mynd þannig að þú getur auðveldlega valið mynd til eftirtöku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.