Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995 5 Fréttir 331.932 3 iWiLl Tekjur núverandi ráðherra 1994: Sjálfstæðismenn tekjuhæni Eins og við mátti búast voru ráð- herrar Sjálfstæðisflokks tekjuhærri á síðasta ári en ráðherrar Framsókn- arflokks þar sem framsóknarmenn áttu enga ráðherra á árinu. Þó var Björn Bjarnason, hinn nýi ráðherra Sjálfstæðisflokks, tekjuhærri en allir framsóknarráðherrar. Davíð Oddsson forsætisráðherra var langtekjuhæstur allra ráðherra. Meöalmánaðartekjur 1994 hans voru um 448 þúsund krónur. Næstur á eftir honum kemur Halldór Blöndal samgönguráðherra með 360 þúsund krónur á mánuði. Þá koma Friðrik Sophusson, Þorsteinn Pálsson og Björn Bjarnason. Hæstur framsóknarráðherra var Páll Pétursson. Hann var með 252 þúsund krónur í meðalmánaðartekj- ur. Næstur er formaðurinn, Halldór Ásgrímsson, með 246 þúsund á mán- uði. Þá koma Guðmundur Bjarna- son, Finnur Ingólfsson og loks Ingi- björg Pálmadóttir. -GJ Útihátíðir um verslimarmannahelgina: Meirihlutinn sleppir miða- sölu og kemst hjá vaski Svo virðist sem virðisaukaskattur sé aðeins greiddur af aðgangsmiöum á sex útihátíðir af 16 um verslunar- mannahelgina þar sem ókeypis er inn á svæðið á níu fjölskylduhátíðum á víð og dreif um landið. Samkvæmt upplýsingum DV er vaskur greiddur af mannræktarmótinu á Hellnum á Snæfellsnesi, tónlistarhátíðinni Uxa á Kirkjubæjarklaustri, þjóðhátíð í Eyjum, ættarmóti Helga magra í Hrafnagili, hátíð KFUM í Vatnaskógi og bindindismótinu í Galtarlæk en óljóst er hvort vaskur verður greidd- ur af mótsgjaldi á landsmóti hvíta- sunnumanna í Kirkjulækjarkoti. Allir mótshaldarar greiða hins vegar vask af dansleikjum. „Við seljum ekki aðgang að síldar- ævintýrinu því að það er ekki hægt að selja aðgang í bæinn þannig að við erum alveg lausir við áhyggjur af virðisaukaskatti. Við reynum að selja merki til styrktar hátíðinni og fólk ræður því sjálft hvort það kaup- ir merki,“ segir Theodór Júlíusson, einn þeirra sem standa að síldaræv- intýrinu á Siglufirði. Forráðamenn tónlistarhátíöarinn- ar Uxa á Kirkjubæjarklaustri eru ósáttir við að greiða virðisaukaskatt af miðum á tónleika og benda á að menningarviðburðir á borð við klassíska tónleika séu ekki skatt- skyldir. Þeir telja að verið sé að mis- muna tónlistarstefnum. „Það er í sjálfu sér enginn greinar- munur gerður á því hvaða tegund af tónlist er flutt en það liggur fyrir úrskurður og túlkun ríkisskatt- stjóra. Samkvæmt honum er sala á útihátíðir virðisaukaskattsskyld og skatturinn er nánast innheimtur á staðnum," segir Indriði H. Þorláks- son hjá íjármálaráðuneytinu. - Þeir segjast ekki vera með útihátíð heldur tónlistarhátíð. Breytir það engu? „Hvað er þetta annað en útihátíð? Þeir selja aðgang að svæðinu og þess- um skemmtiatriðum og sú sala er virðisaukaskattsskyld,“ segir hann. Aðstandendur tónleika um versl- unarmannahelgina hafa árum sam- an átt í stríði við skattyfirvöld. Frægt varð í byrjun áratugarins þegar forsprakkar tónlistarhátiðarinnar í Húnaveri freistuöu þess að fá vask- inn felldan niður á þeirri forsendu að um menningarviðburð væri að ræða. Það tókst ekki. -GHS (m. fótóse11u) (Heildarverð) Núna er rétti tíminn til að huga að útilýsingu fyrir haustið og veturinn. Vertu i réttu Ijósi þegar sól lækkar á lofti. rir fólkið i landinu Holtagörðum við Holtaveg Póstkröfuslmi 800 6850 10 ára ryðvarnarábyrgð á öllum stálljósum Fæst í hvítu og svörtu Fæst í hvltu, svörtu og grænu. Fasad Larma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.