Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Side 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
íslendingar koma víða við í atvinnurekstri erlendis:
Uti um allan heim og dauð-
hræddir við erlenda fjárfesta
- segir Bjöm Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofmmar
*l-• Kanada
A'aska 33 ;
Rússland,
Kámtsjatka
Bandaríkln.
ss
'■f/l...........m
BS, \% - as ■
exlkó _____
, M \\
Grænhöföaeyjar
Kó,umbía i:v.ÍL ■■ sádl-Arabía
S
Perú
nda
Taíland,
Japan
7- ....
Filabelnsströndli
• "flSS :4teirta
)//,
Chíle
Sw .
\ t
1 vfcK.
Namlbía;|^MalaVÍ
L^'Víetnam
Indónesía',
Zlmbabwe
ss
Suöur-Afríka
V;L Rdjleyjar
/Ástralía
NýJa-SJáland
„Það eru íslendingar úti um allan
heim í atvinnurekstri og störfum og
það merkilega er að við erum dauð-
hræddir við erlenda fjárfesta hér
heima,“ segir Björn Dagbjartsson,
framkvæmdastjóri Þróunarstofnun-
ar íslands, sem hefur einna mest yflr-
Ut yflr þá íslendinga sem eru í at-
vinnurekstri og störfum á erlendri
grund.
Flatkökur í Bandaríkjunum
Það eru að verða fá lönd í veröld-
inni þar sem íslendingar hafa ekki
með einum eða öörum hætti haft af-
skipti af atvinnulífmu. Þekkt eru
dæmi um lakkrísverksmiðju í Kína,
flatkökubakstur í Bandaríkjunum og
innflutning á Prince Polo til Noregs.
Engin leið er að gera tæmandi úttekt
á landnámi íslendinga vítt og breitt
en þó er hægt að nálgast það við-
fangsefni.
Þróunarsamvinnustofnun íslands
hefur í nokkur ár verið með þróunar-
verkefni í gangi í Namibíu. Þar eru
nú á annaö hundrað íslendingar bú-
settir og þar af eru 12 starfandi á
vegum Þróunarstofnunarinnar en
nálægt 40 manns starfandi við einka-
rekstur. Þar er fyrirtækið Nýsir hf.
í rekstri tengdum útgerð og fisk-
vinnslu.
Á Kamtsjatka eru íslendingar
nokkuð fyrirferðarmiklir. íslenska
fyrirtækið ísbú hf. stendur þar að
útgerð og fleiri verkefnum, m.a. í
byggingariðnaði. Meðal frumherja
þar er Jens Valdimarsson sem var
þekktur hérlendis sem fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Pat-
reksíjarðar hf. Hann er eigandi ísbús
hf. auk Björns Ágústs Jónssonar. Þá
er Ingólfur Skúlason meðeigandi
þeirra ísbúsmanna að fyrirtækinu
Kamhnit sem haslað hefur sér völl í
byggingariðnaði.
Víetnam vænlegur kostur
Margir horfa nú til Víetnams sem
vænlegs kosts til að koma af stað
rekstri. Þar starfar Haukur Haralds-
son arkitekt og á aðild að fyrirtæki.
ísbú er meö skrifstofu þar og kannar
möguleika á rekstri.
Risarnir í íslenskum fiskútflutn-
ingi eru báðir fyrirferðarmiklir á
erlendri grund. Bæði íslenskar sjáv-
arafurðir hf. og Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna standa í rekstri í
Bandaríkjunum, Japan og Evrópu
auk þess að hafa ákveðin tengsl í
Víetnam. Fyrirtækið flytur út fisk til
28 landa og er stærst íslenskra fyrir-
tækja í erlendum viðskiptum enda
flytur það út um 20 prósent af öllum
útflutningi þjóðarinnar.
Grandi hf. stendur ásamt Hampiöj-
unni og fleirum að rekstri í Chiie.
Fyrirtækið á um fjórðung i fisk-
vinnslufyrirtækinu Friosur sem
starfrækt er í suðurhluta landsins
nálægt 44 gráðum suðlægrar breidd-
ar. Friosur gerir út 6 fiskiskip og
vinnur úr um 15 þúsundum tonna
af hráefni árlega. Þar starfa 3 ís-
lenskir skipstjórar auk útgerðar-
stjóra og vélstjóra.
Útgerðarfyrirtækið Samherji hf. á
Akureyri hefur einnig haslað sér
völl erlendis. Þeir Samherjamenn
hafa þó ekki leitað langt yfir skammt
og hafa keypt sig inn í rekstur í Fær-
eyjum og á Grænlandi. Útgerðarfélag
Akureyringa á stóran hlut í þýska
útgerðarfyrirtækinu Mecklenburger
Hochseefischerei. Sá rekstur hefur
gengið brösulega og hefur verið ÚA
þungur baggi.
Flutningafyrirtæki í Kenía
Ingi Þorsteinsson, ræðismaður ís-
lands í Kenía, hefur verið iðinn við
rekstur í fjarlægum löndun. Hann
er aðili að flutningafyrirtæki í Kenía
og einnig er hann eigandi að nýju
fyrirtæki í Úganda sem hyggst hasla
sér völl í útgerð og fiskvinnslu Við
Viktoríuvatn. Auk Inga er Júlíus
Sólnes, fyrrum umhverfisráðherra,
þátttakandi í fyrirtækinu ásamt fleiri
Islendingum.
íslendirígar halda uppi þróunaraö-
stoð í Malaví þar sem geröir eru út
tveir bátar smíðaðir á ísiandi og þrír
íslendingar eru með aðsetur. Þá hef-
ur fyrirtækið Icecon, sem er í eigu
SH, verið meö ráðgjafarstarfsemi
mjög víða. Þar má nefna Perú, bygg-
ingu rækjuverksmiðju á Grænlandi
og margt fleira. Nú síðast tóku þeir
að sér ráðgjöf á Kyrrahafseyjum. Á
eýjunni Fiji er Icecon fyrir tilstuðlan
Álþjóðabankans þar sem þeir eru að
kanna möguleika til markaðssetn-
Fréttaljós
Reynir Traustason
ingar sjávarafurða heimamanna.
Einnig er fyrirtækið með ráðgjafar-
starfsemi í íran. Alls hefur fyrirtæk-
ið komið við sögu í um 30 löndum.
íslendingar eru úti um allan heim i
atvinnurekstri. Fyrirtækið lcecon er
umsvifamikið á þvi sviði og rekur
meðal annars ráðgjafarstarfsemi í
íran.
Túnfiskútgerðá
Fílabeinsströndinni
Páll Gíslason, sem lengi var fram-
kvæmdastjóri Icecon, lét af því starfi
um síðustu áramót og stjórnar nú
útgerð túnfiskveiðiskips á Fílabeins-
ströndinni. Magnús Magnússon rek-
ur rækjuútgerð í Kólumbíu og einnig
rekur Islendingur útgerð í Mexíkó.
Þrátt fyrir að lakkrísverksmiðjan í
Kína hafi ekki gengið upp telja menn
samt að þar séu gullin tækifæri. Ice-
con horflr nú mjög til þeirra mögu-
leika sem þar kunna að vera. Það
undrar engan enda er þar til staðar
fimmtungur mannkyns.
í Suður-Afríku starfa margir ís-
lendingar. Sama er að segja um
Ástralíu og Nýja-Sjáland. Fjöldi ís-
lendinga býr í báðum þessum lönd-
um og þar eru mörg dæmi um að
fólk hafi haslað sér völl í landbún-
aði. Eitt dæmi er einnig um aö íslend-
ingur reki keðju af fatahreinsunum.
Þróunarstofnun íslands lagði til
fiskiskipið Feng til Grænhöfðaeyja
og hefur það verið þar síðan. Nú er
þar að vísu bara einn starfsmaður
en íslenskir athafnamenn hafa lengi
rennt hýru auga þangað þótt ekki
hafi orðið af rekstri þar. Eðli málsins
samkvæmt eru flestir þeir sem fara
í rekstur erlendis á sviði sjávarút-
vegs. Það þykja ekki sérstök tíðindi
að menn hasli sér völl á því sviði í
Evrópu eða Bandaríkjunum. i þjón-
ustugeiranum hafa nokkrir komið
við sögu og haldið uppi góðri kynn-
ingu á íslandi erlendis. Stofnun flug-
félags í Lúxemborg er þekkt þar sem
Cargolux er enn við lýði þótt íslensk-
ir frumherjar séu komnir út úr
rekstrinum. Nú er Kristinn Sig-
tryggsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Arnarflugs, tekinn til við að
reka flugfélagiö Emerald Air á ír-
landi. íslendingar eru víða eigendur
öldurhúsa og pöbba. Það sem er nýj-
ast í þeim geira er trúlega það að
Vilhelm Wessmann er að taka við
rekstri Holliday Inn hótels í
Zimbabwe.
Tengsl viðTaíland
Margir íslendingar hafa í dag sterk
tengsl við Taíland, þá sérstaklega
þeir sem sótt hafa sér kvonfang þang-
að. Nokkrir eru búsettir þar og
stunda viðskipti. í Indónesíu reka
íslendingar trjávöruverksmiðju sem
þeir keyptu eftir að Danir gáfust upp
á rekstrinum. Framleiðslan er að
mestu mjög dýr húsgögn framleidd
úr harðviði.
í ísrael hafa margir íslendingar
haft viðkomu á samyrkjubúum og á
Gaza-svæðinu reka íslenskir aðilar
verkfræöistofu. Þá hefur landinn
lagt Sádi-Aröbum lið varðandi rekst-
ur verksmiðju sem framleiddi
áveiturör. Litlum sögum fer þó af
þeim rekstri í seinni tíð. í Eystra-
saltslöndunum eru íslendingar í
nokkrum tengslum við fyrirtæki. Þar
ber hæst tengsl íslenskra aðila við
útgerðir þar, sérstaklega frystitog-
ara. Þá er nýlega búið að opna lyfja-
verksmiðju í Litháen sem er að hluta
í eigu opinberra aðila hérlendis.
í Kanada á búseta íslendinga sér
langa sögu og þar eru margir máttar-
stólparnir í atvinnulífi sem ættir eiga
að rekja til íslands. Þar eru líka fyrir-
tæki sem stunda umdeild umsvif svo
sem fyrirtækið Can-Ice sem rekið er
af íslendingi og stundar viðskipti
með fiskafurðir og fleira. Fyrirtækið
hefur átt í útistöðum við íslensk fyr-
irtæki vegna viðkipta hérlendis.
Hreindýrarækt á Grænlandi
Það þykir tíðindum sæta að íslend-
ingurinn Magnús Magnússon bakar
nú íslenskar flatkökur í New York
ofan í Bandaríkjamenn með tækja-
kosti sem er fluttur héðan. Sömuleið-
is hefur þaö vakið nokkra athygli að
annar Islendingur er búsettur á
Grænlandi þar sem hann hefur um
árabil stundað hreindýrarækt og er
kvæntur þarlendum félagsmálaráð-
herra. Annar íslendingur er búsettur
nyrst í Alaska þar sem hann lifir af
elgsdýraveiðum og býr með konu af
indíánaættum.
Það er raunverulega sama hvert ht-
ið er um heiminn, víðast hafa íslend-
ingar komið að atvinnulífi með einum
eða öðrum hætti. í sumum tilfellum
hafa hlutimir gengiö upp en í öðrum
ekki. Eitt er þó alveg ljóst; landnám-
inu er eills ekki lokið og íslendingar
munu eftir sem áður uppgötva ný
tækifærierlendis. -rt
Rotþró stíflaðist við tjaldsvæðið í Þjórsárdal:
Hundur veiktist eftir leik í skurði
- vinnum að lagfæringum, segir Bjöm Jóhannsson
„Við vorum þarna á neðra tjald-
svæðinu í Þjórsárdal og hundurinn
var að leika sér í skurði sem ramm-
ar svæðið inn. Skólpið í skurðinum
var ógeðslegt og líktist ekki neinu
nema því sem gengur niður af
mannskepnunni. Ég dró hundinn
upp úr, dreif hann niður að á og
spúlaði vel af honum. Um kvöldið
var hann svo orðinn fárveikur. Hjá
dýralækni fékk ég síðan þær upp-
lýsingar að hann hefði fengið ein-
hvers konar eitrun, hugsanlega
vegna músaeiturs og sápuúrgangs.
Ef þama hefði verið rottueitur
hefði hundurinn drepist,“ sagði
kona sem hafði samband við DV í
gær. Hún sagðist hafa heyrt að frá-
rennsli frá rotþró hjólhýsastæðis
lægi út í skurðinn og þakkaði guði
fyrir að hún heföi áttað sig á við-
bjóðnum áður en bömin hennar
tvö komust í tæri við leðjuna, öll
böm hefðu gaman af því að drullu-
malla og sulla í vatni.
„Þetta er fallegasti staðurinn
þarna, undir skógarhlíðinni, ogþað
er ekki forsvaranlegt að hafa skólp-
mál í þvílíkum ólestri þar sem börn
og fullorðnir dvelja,“ sagði konan.
„Það sem þarna gerðist var að
rotþró stíflaðist og það sem í henni
var tók að flæða í skuröinn. Við
hófumst handa við að laga þetta í
gær og höldum áfram við það í
dag. Þetta verður allt komið í lag á
morgun,“ sagði Björn Jóhannsson,
bóndi á Skriðufelli, en hann sér um
umrætt tjaldsvæði.
-SV