Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1995, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
Stuttar fréttir
Utlönd
MiklosRozsalátinn
Kvikmyndatónskáldið Miklos
Rozsa lést af völdum lungnabólgu
á sjúkrahúsi í Los Angeles á
fimmtudag, 88 ára að aldri.
Pavarotti styður Bosníu
ítalski óperu-
söngvarinn
Luciano Pava-
rotti ætlar að
slást í lið með
írska rokkar-
anum Bono og
syngja til
styrktar börn-
unum í Bosníu á tónleikum í
heimabæ sínum, Modena, i sept-
ember.
Guðáundanhaldi
Guö er á miklu undanhaldi
meðal íbúa landa Evrópusam-
bandsins, segir í nýrri könnun,
og skiptir guð Dani minnstu máli.
Nýnasistar i loftið
Danskir nýnasistar hafa fengið
leyfi til útvarpssendinga og munu
senda út nasistarokk og áróður.
VígaferlíáSríLanka
Rúmlega 200 skæruliðar Tamfla
á Sri Lanka féllu í árás á herbæki-
stöð þar sem hermennimir höfðu
fengiö vitneskju um hvað til stóð.
Norðmenn ekki hrifnir
Norsk stjórnvöld eru ekki hrif-
in af hótunum rússneska sjávar-
útvegsráðherrans um að taka ís-
lensk skip í Smugunni ef úthafs-
ráðstefna SÞ ber ekki árangur.
Dóniviðmyndatöku
Ungur maður hefur verið gerð-
ur útlægur úr neðanjarðarlesta-
kerfi Lundúna fyrir að taka
myndir upp undir pilsklæddar
konur í stigum stöðvanna.
Þríríhaldi
Þrir menn, tveir í Frakklandi
og einn í Danmörku, eru í varð-
haldi vegna bankaráns og morðs
á lögregluþjóni í Árósum i síðasta
mánuði.
Clintonvísarábug
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti vísaði í gær
á bug fréttum
um að Banda-
ríkin væru að
brjóta vopna-
sölubannið á
Bosníu og að-
stoða við að koma vopnum á laun
til múslíma í Bosníu.
Löggaívanda
Franska lögreglan á í erfiöleik-
um með að bera kennsl á sprengi-
efnið sem notaö var í tilræðinu í
neðanjarðarlestinni en smiðin
ber einkenni öfgamúslíma.
Reuter, Kitzau, NTB
Vöruverö erlendis:
Bensínið
á uppleið
Eftirspurn eftir bensíni á heims-
markaði hefur verið að aukast og
verðið því hækkað. Á Rotterdam-
markaði hefur 92 oktana bensín
hækkað um 2,4% á nokkrum dögum.
Sérfræðingar spá því að verðið eigi
eftir að hækka enn meir en eftir miðj-
an ágúst eigi það síðan eftir að lækka.
Stuðst er þá við þróun síöustu ára.
Hlutabréf í Wall Street lækkuðu í
veröi í byrjun vikunnar en hafa ver-
ið á uppleið síðan. Dow Jones hluta-
bréfavísitalan var komin í 4732 stig
á fimmtudag og var aö nálgast sögu-
lega hámarkiö sem náðist 17. júlí sl.
Hlutabréfaverð í kauphöllinni í
London hefur einnig verið að hækka
og sömu sögu ipá segja um Frank-
furtíÞýskalandi. -Reuter
Sjö stunda umsátur í Köln um gíslatökumann í langferöabíl:
Þrír skotnir til
bana í rútunni
Sérsveitir þýsku lögreglunnar,
íklæddar grænum samfestingum,
skotheldum vestum, með hjálma á
höfði og vopnaðar jámstöngum og
byssum, brutu sér leið inn í lang-
ferðabíl síðdegis í gær og skutu
grimuklæddan byssumann til bana
og frelsuöu um tuttugu gísla sem
hann haföi í haldi.
Lögreglan hafði setið um rútuna í
sjö klukkustundir i borginni Köln við
Rínarfljót. Einn gíslanna og rútubíl-
stjórinn, sem var skotinn í upphafi
umsátursins, fundust látnir inni í
bílnum. Lögregluþjónn hlaut einnig
alvarleg sár en að sögn er hann ekki
í lífshættu.
„Ódæðismaðurinn var skotinn tfl
bana. Auk bílstjórans fundum við
einn gíslanna látinn," sagði talsmað-
ur lögreglunnar við fréttamenn.
Hann sagðist ekki vita hvort ein-
hverjir hinna gíslanna hefðu hlotið
sár. Farþegarnir í langferðabflnum
höfðu verið í skoðunarferð um falleg-
ar sveitir Rínarlands.
Undir kvöld í gær var ekki vitað
hver byssumaðurinn var, né heldur
var vitað hvað honum gekk til.
Atburðirnir hófust í gærmorgun
þegar rútan var um það bil að nema
staðar við útsýnisstað. Kona, sem
tókst aö flýja úr rútunni, sagði að
maðurinn, sem var meðal farþeg-
anna, hefði farið að rífast við bílstjór-
ann og síðan gripið til byssunnar og
skotið hann.
„Hann dró grímu yfir andlit sér og
ógnaöi fólki og var að öllum líkindum
að biðja um verðmæti," sagði sjónar-
vottur í viðtali við fréttamann sjón-
varpsstöðvarinnar RTL.
Lögreglan lét til skarar skríða gegn
Itla særður gisl skríður (rá rútunni í Köln í átt að bílum lögreglunnar. Ekki
er vitað hvað gísiatökumanninum gekk til með athæfi sínu. Símamynd Reuter
byssumanninum stuttu eftir að gísl, brotna afturrúðu langferðabílsins og
sem mikið blæddi úr, skreið út um hneigniður. Reuter
Norskir heiöingjar reistu níöstöng úr plasti í miðborg Óslóar:
Virðum arf inn frá Sveinbirni
- sagði Maj-Britt Björklund hofgyöja ásatrúarmanna í Ósló
Gíali Kristjánsson, DV, Ósló:
t,Við metum og virðum arfinn sem
heiðingjar um allan heim hafa frá
allsherjargoðanum Sveinbirni Bein-
teinssyni. Hann var endurreisnar-
maður heiðinnar trúar sem nú breiö-
ist út um allan heim,“ sagði Maj-
Britt Björklund, þéttvaxin valkyrja
og hofgyðja ásatrúarmanna í Ósló,
þegar DV hitti hana undir níðstöng
heiðingja í miðborg Óslóar í vikunni.
Norrænir heiðingjar eru nú á fjög-
urra daga móti í Ósló. Hófst „blótið“
á Eiösvallatorgi á miövikudag með
kveðskap, færeyskum dansi og
trumbuslætti. Níðstöng úr plasti var
reist menningarmálaráöi Noregs á
torginu og þótti mátulegt þar sem
ráðið hefur daufheyrst við öllum
bónum um fjárstyrk.
Á fimmtudag voru ristar rúnir úti
á Langeyju í Óslóarfirði og um kvöld-
ið voru tónleikar. Þá verður einnig
stefnt til markaðar á áðurnefndri
Langeyju hvar varningur mun
skipta um eigendur aö hætti víkinga.
Um 70 heiðingjar voru í miðborg-
inni og höfðu hátt. Flestir töldust til
ásatrúarmanna en einnig gat að líta
fulltrúa indíána og heiöingja úr Afr-
íku. Þrír litlir hópar ásatrúarmanna
starfa í Noregi. Að sögn Maj-Britt
hafa þeir leitað eftir kynnum við ís-
lenska heiðingja en ekkert orðið
ágengt.
Grænlandsversl-
uniníhinu
mesta basli
Lars Emil Jo-
hansen, for-
maöur græn-
lensku heima-
stjómarinnar,
treystir á aö ný
stjóm stærsta
verslunarfyrir-
tækis landsins,
Grænlandsverslunarinnar, muni
koma skikkan á fjárhag þess.
Miklir erfiðleikar steðja nú að
Grænlandsversluninni. Á vor-
fundi grænlenska þingsins fékk
fyrirtækið yfirdráttarheimild hjá
ríkissjóði upp á tæpa tvo millj-
arða íslenskra króna. Hún kemur
í viðbót við rúmlega milljarðs yf-
irdráttarheimild í grænlensku
bönkunum tveimur og í ár verður
rekstrartap fyrirtækisins að
minnsta kosti 700 mifljónir ís-
lenskra króna.
Miklarlíkur
ákjarnorkuslysi
í Litháen
Miklar líkur eru taldar á að al-
varlegt slys eigi eftir að verða í
stærsta kjarnorkuveri heimsins,
Ignalina í Litháen, sem talið er
eitt hið óöruggasta. Þetta kemur
fram í skýrslu sem bandaríska
orkuráðuneytið hefur samið og
sænska blaðið Dagens Nyheter
skýrði frá.
Höfuöorsakirnar fyrir hættu-
ástandinu í Ignalina, samkvæmt
skýrslunni, eru smíðagallar,
slæmt viöhald, bágborið efna-
hagsástand í landinu, stjóm-
málaórói og slælegt öryggi.
Að sögn skýrsluhöfunda verður
annað hvort að bæta kjarnorku-
verið i Ignalina eða hreinlega
loka því en slys þar gæti skaðað
tugþúsundir íbúa í Lettlandi, Pól-
landi, Sviþjóð og Rússlandi, auk
íbúa Litháens.
Karadzic setur
herlögíríki sínu
Radovan Karadzic, leiðtogi
Bosníu-Serba, lýsti í gær yfir her-
lögum í sjólfskipuðu lýðveldi sínu
til að geta kvatt alla vopnfæra
menn tfl aö berjast gegn óvinin-
um, eins og hann oröaði það í
yfirlýsingu sinni.
Þungvopnaðar hersveitir Kró-
ata lögðu undir sig Serba-bæinn
Grahovo í vesturhluta Bosníu í
gær og stökktu fimm þúsund
óbreyttum borgurum á flótta.
Missir bæjarins þykir mikið áfall
fyrir aðskflnaðarsinna Serba í
Króatíu þar sem skoriö er á sam-
gönguæðar milh serbneskra
svæða í Króatiu og Bosníu.
Kosmohjólar
ekkigegnkjarn-
orkutilraunum
Jörgen
Kosmo, varnar-
inálaráðherra
Noregs, ætlar
ekki að taka
þátt í hjólreiða-
boðkeppninni
frá Ósló til Par-
ísar til aö mót-
mæla tilraunum Frakka meö
kjarnorkuvopn i Kyrrhafinu.
„Ég tel aö við náum mestum
árangri með beinum samskiptum
við frönsk stjórnvöld," sagði
Kosmo.
Jens Stoltenberg, atvinnu- og
orkumálaráöherra, steig hins
vegar á hjól sitt og hjólaði fyrsta
sprettinn til Ljósakurs, rétt utan
við Ósló.
Það voru danskir ungkratar
sem áttu hupiyndina að hjól-
reiöaleiðangrinum.
Ritzau, Reuter, NTB